Kynlífssena sautján ára stúlku hafi splundrað samstarfi bræðranna Magnús Jochum Pálsson skrifar 27. janúar 2026 17:28 Joshua og Benjamin Safdie leikstýrðu fimm myndum saman yfir tíu ára tímabil áður en þeir fóru hvor í sína áttina. Ástæðan er sögð vera ólögleg kynlífssena sautján ára stúlku. Getty Kynlífsatriði sautján ára stúlku í kvikmyndinni Good Time frá 2017 ku hafa valdið því að bræðurnir Josh og Benny Safdie, heitasta leikstjórnartvíeyki Hollywood, slitu samstarfi sínu eftir rúmlega fimmtán ára samvinnu. Josh á að hafa komist að aldri stúlkunnar á tökustað en Benny ekki orðið almennilega meðvitaður um aldur hennar fyrr en sex árum síðar.
Safdie-bræðurnir hófu að gera myndir saman sem börn og fyrsta samstarfsverkefni þeirra í fullri lengd var The Pleasure of Being Robbed sem kom út 2008. Þeir hófu í kjölfarið að leikstýra saman, slógu í gegn með spennumyndinni Good Time árið 2017 og vöktu svo enn meiri athygli með Uncut Gems árið 2019 með Adam Sandler í aðalhlutverki. Adam Sandler sýndi stjörnuleik í Uncut Gems.TIFF Henni ætluðu þeir að fylgja eftir með ónefndri hafnaboltamynd með Sandler og Ben Affleck. Ekkert varð af henni, verkföll seinkuðu tökum og bræðurnir héldu á endanum hvor í sína átt. Benny hefur síðan haft nóg að gera, lék í fjölmörgum verkefnum og leikstýrði svo The Smashing Machine í fyrra með Dwayne Johnson í aðalhlutverki, meðan Josh leikstýrði borðtennismyndinni Marty Supreme með Timothee Chalamet sem hlaut nýverið níu Óskarstilnefningar. Sjá einnig: Slappur smassborgari Skýringin á því af hverju bræðurnir fóru hvor í sína áttina hefur aldrei legið almennilega fyrir. Sögusagnir um að Josh væri orðinn harður MAGA-maður fóru í umferð og opinberlega kenndu bræðurnir verkföllum í bransanum um. Nú virðist raunveruleg ástæða fyrir skilnaðinum komin í ljós. Dægurmálamiðillinn Page Six Hollywood sem sérhæfir sig í gulum fréttum úr skemmtanabransasnum segir að rekja megi skilnaðinn aftur til myndarinnar sem kom þeim á kortið, Good Time. Varð meðvitaður um aldurinn eftir senuna Bræðurnir hafa allan sinn ferill lagt upp með að ráða óreynt fólk í hlutverk og samkvæmt heimildarmönnum Page Six réðu þeir sautján ára stúlku til að leika vændiskonu í myndinni. Á tökustað var stúlkunni síðan gert að leika í senu sem innihélt nekt og leikið kynlíf með leikaranum Buddy Duress (sem hét réttu nafni Michael Stathis og lést úr of stórum skammti 2023). Duress var þá 32 ára og nýkominn úr fangelsi eftir að hafa afplánað dóm í tengslum við vopnalagbrot, sölu á stolnum varningi og vörslu vímuefna. Josh fylgdist með atriðinu úr leikstjórnarstólnum var Benny í horninu með hljóðnema. Senan hófst og á Duress, sem er sagður hafa verið í mikilli vímu, þá að hafa tekið niður um sig buxurnar og spurt hálfnakta stúlkuna hvort hann mætti „stinga honum inn“. Buddy Duress lést nokkrum árum eftir tökur á Good Time. „Hvaða leikstjóri sem hefði séð þetta hefði átt að hrópa „kött!“ og stoppa senuna, en Josh leyfði henni að halda áfram,“ segir heimildarmaður sem var á vettvangi tökustaðarins. Miðillinn hefur eftir þremur heimildarmönnum að Josh, sem var í síðustu viku tilnefndur til Óskarsverðlaun fyrir bestu leikstjórn, hafi orðið meðvitaður um aldur stúlkunnar á tökudegi, skömmu eftir að senan var tekin upp og stúlkan brotnaði saman. Fyrir utan að vera að öllum líkindum ólöglegt þá brjóta slík vinnubrögð í bága við reglur SAG (e. Screen Actors Guild) um að vinnuaðstæður megi ekki vera „skaðlegar heilsu, siðgæðum og öryggi barns“. Skeytingarleysi leikstjóranna hafi þverbrotað þær. Lak í fjölmiðlum vegna skilnaðar framleiðandans Atriðið umdeilda var tekið úr myndinni áður en hún var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 2017. Upplýsingar um tökurnar komu ekki almennilega í ljós fyrr en 2022 þegar fyrrverandi framleiðslufélagi bræðranna, Sebastian Bear-McClard, átti í hörðum skilnaðardeilum við leikkonuna Emily Ratajkowski og upplýsingar um málið láku til fjölmiðla. Bræðurnir komust í kjölfarið að því að Bear-McClard hafði verið meðvitaður um aldur stúlkunnar frá byrjun og ráku hann. En það var líka þá sem Benny komst í fyrsta skiptið að raunverulegum aldri stúlkunnar og að bróðirinn hefði haldið upplýsingunum frá honum. Skarð hafi myndast í samstarfið. Þeir héldu þó áfram að vinna saman í níu mánuði samhliða vaxandi ólgu áður en allt sprakk endanlega í loft upp við undirbúning á nýrri mynd bræðranna með Adam Sandler. „Þú þróar ekki skyndilega með þér samvisku sex árum síðar. Það virkar ekki þannig,“ hefur Page Six eftir nafnlausum heimildarmanni tengdu málinu. Þó ber líka að athuga tímasetninguna, þó öll smáaatriði málsins hafi ekki legið fyrir fyrr en nú hafði mikið af upplýsingum málsins þegar komið fram. Josh Safdie er í miðri kosningabaráttu hjá Óskarsakademíunni og því hentar það keppinautum hans ágætlega að koma svona fréttum í dreifingu.
Hollywood Bandaríkin Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir Þessi nældu sér í verðlaun á Golden Globe Kvikmyndin One Battle After Another og sjónvarpsserían Adolescence uppskáru flest verðlaun á Golden Globe verðlaunahátíðinni sem fram fór í Kaliforníu í gær. Hinn 16 ára gamli Owen Cooper, sem fer eitt af aðalhlutverkunum í Adolescence, var valinn besti leikarinn í aukahlutverki, en hann er sá yngsti til að næla sér í verðlaunin í þeim flokki frá upphafi, en þetta var 83. Golden Globe verðlaunahátíðin. 12. janúar 2026 08:13 Barðist við tárin yfir fimmtán mínútna lófataki Leikarinn Dwayne Johnson brast í grát á Kvikmyndahátíðinni í Feneyjum þegar nýjasta kvikmynd hans, Smashing Machine, hlaut fimmtán mínútna lófatak. Fólk er þegar byrjað að máta leikarann við Óskarsverðlaunastyttuna. 2. september 2025 15:46 Mest lesið „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Lífið Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Menning „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar Lífið Nakinn á kóræfingu Lífið Síðasti leynigesturinn opinberaður Lífið Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Bíó og sjónvarp Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Fleiri fréttir Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Meryl Streep verður Joni Mitchell Dragi úr trúverðugleika Eddunnar og útiloki fagfólk Leikið sjónvarpsefni aftur hluti af Eddunni Segir sig frá hlutverkinu vegna óánægju með upprunann Ólafur Darri verður Þór Sækir um skilnað frá Schneider Kynlífssena sautján ára stúlku hafi splundrað samstarfi bræðranna Leo og félagar hlutu flestar tilnefningar Tíminn og vatnið frumsýnd á Sundance: „Viska afa í Teigó sigraði hjörtu þeirra“ Sinners slær met yfir flestar Óskarstilnefningar Balti tæklar veðmálasvindl með Wahlberg Þau eru tilnefnd fyrir verstu kvikmyndagerð síðasta árs Sveppi, Edda og Villi Neto keppa í Taskmaster Kvikmyndirnar sem beðið er eftir 2026 Maðurinn sem vann með Elton John, ABBA og Donnu Summer Fáum við einn þátt í viðbót af Stranger Things? Blaðri því út um allan bæ að hann sé næsti Bond Béla Tarr er látinn Óttast að kvikmyndahús endi eins og djassklúbbar Játaði ást sína á Jenner Marvel-stjarna varð fyrir heilaskaða Enduðu Stranger Things í Þjórsárdal Sjá meira
Þessi nældu sér í verðlaun á Golden Globe Kvikmyndin One Battle After Another og sjónvarpsserían Adolescence uppskáru flest verðlaun á Golden Globe verðlaunahátíðinni sem fram fór í Kaliforníu í gær. Hinn 16 ára gamli Owen Cooper, sem fer eitt af aðalhlutverkunum í Adolescence, var valinn besti leikarinn í aukahlutverki, en hann er sá yngsti til að næla sér í verðlaunin í þeim flokki frá upphafi, en þetta var 83. Golden Globe verðlaunahátíðin. 12. janúar 2026 08:13
Barðist við tárin yfir fimmtán mínútna lófataki Leikarinn Dwayne Johnson brast í grát á Kvikmyndahátíðinni í Feneyjum þegar nýjasta kvikmynd hans, Smashing Machine, hlaut fimmtán mínútna lófatak. Fólk er þegar byrjað að máta leikarann við Óskarsverðlaunastyttuna. 2. september 2025 15:46