Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 28. janúar 2026 15:15 Um ein og hálf milljón manna starfar fyrir Amazon. Getty Tæknirisinn Amazon ætlar í niðurskurð og geta sextán þúsund starfsmenn fyrirtækisins átt von á uppsagnarbréfi. Tilkynnt var um niðurskurðinn nokkrum klukkustundum eftir að tölvupóstur sem innihélt trúnaðarupplýsingar var sendur á starfsfólkið fyrir mistök.
Í gærkvöld var tölvupóstur sendur út sem gaf til kynna að fjöldi starfsmanna risans í Bandaríkjunum, Kanada og Kosta Ríka yrði sagt upp. BBC hefur skilaboðin undir höndum en þeim var eytt fljótlega eftir birtingu. Í morgun tilkynntu forsvarsmenn Amazon að þeir vildu koma í veg fyrir skrifstofuveldi innan fyrirtækisins. Ekki liggur fyrir í hvaða löndum eigi að skera niður starfsemina. Alls eru um 1,5 milljón manns sem starfa hjá Amazon út um allan heim, þar af 350 þúsund í skrifstofuvinnu. Aðstoðarmaðurinn sendi fundarboð Aðstoðarmaður Colleen Aubrey, aðstoðarforstjóra Amazon Web Services (AWS), sendi fyrir mistök fundarboð í gærkvöldi sem bar titilinn „Senda tölvupóst vegna Dawn-verkefnisins“ (e. project Dawn). Um er að ræða þekkt hugtak fyrir uppsagnir innan Amazon. Fjöldi starfsmanna fékk sent umrætt fundarboð. Í fundarboðinu kom fram að segja ætti fólki upp, en það væri framhald á þeirri vinnu sem hafi verið í gangi í fyrirtækinu. Markmiðið er að fækka stjórnunarlögum, auka ábyrgð og draga úr skrifræði. „Breytingar eru erfiðar fyrir alla. Þessar ákvarðanir eru erfiðar og teknar af yfirvegun þegar við undirbúum fyrirtækið og AWS fyrir framtíðarárangur,“ sagði í fundarboðinu. Að sögn heimildarmanns BBC hafði starfsfólkið búist við uppsögnum í margar vikur. Í október var fjallað um að til stæði hjá fyrirtækinu að segja upp fjórtán þúsund manns vegna tækifæra til að nota gervigreind.
Amazon Tækni Bandaríkin Vinnumarkaður Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira