Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Kristján Már Unnarsson skrifar 28. janúar 2026 21:31 Vestmannaeyjar eru stærsta loðnuverstöð landsins. Vísir/Egill Aðalsteinsson Sjávarútvegurinn bíður nú í ofvæni eftir nýju mati Hafrannsóknastofnunar á stærð loðnustofnsins. Fréttir sem bárust af loðnuleitinni um helgina juku mönnum bjartsýni um meiri loðnukvóta en urðu líka til þess að hlutabréf sjávarútvegsfyrirtækja hækkuðu í verði.
Í fréttum Sýnar var fjallað um loðnuna sem í meira en hálfa öld hefur verið næstmikilvægasti nytjastofn Íslendinga, á eftir þorskinum, það er að segja þau ár sem ekki er loðnubrestur. En einmitt vegna þess hve loðnan er dyntótt og veiðitíminn skammur er talið mikilvægt á þessum árstíma að kortleggja vel loðnugöngurnar og stærð þeirra. Siglingaferlar skipanna fimm sem tóku þátt í loðnumælingunni.Hafrannsóknastofnun Mynd Hafrannsóknastofnunar sýnir siglingaferla þeirra fimm skipa sem tóku þátt í loðnuleitinni í síðustu viku, sem voru tvö hafrannsóknaskip og þrjú veiðiskip frá útgerðinni. Menn voru sérstaklega áhugasamir að sjá hvar hlykkir komu á ferlana því það þýddi að þar sást á bergmálsmælum nægilega mikið af loðnu til að setja út troll til sýnatöku. Slíkir hlykkir sáust víða, eins og undan Suðausturlandi, undan Langanesi, norður af Húnaflóa og út af Horni. Kortið sýnir þéttleika loðnunnar sem fannst.Hafrannsóknastofnun Kort sem Hafrannsóknastofnun birti svo á sunnudag sýndi svo betur þéttleika loðnunnar sem mældist. Stærsta loðnutorfan sást í fremsta hluta loðnugöngunnar undan sunnanverðum Austfjörðum. Fleiri torfur sáust út af Austfjörðum en einnig stórar torfur norður af Húnaflóa. Þessi mynd varð til þess að hlutabréfaverð í þremur sjávarútvegsfyrirtækjum sem stunda loðnuveiðar hækkuðu á mánudag um allt að fimm prósent. Loðnuvinnslur eru núna í átta byggðum á landinu.Grafík/Sara Rut Fannarsdóttir Spennan er væntanlega mest í þeim bæjum landsins sem eiga mest undir loðnuveiðum. Vestmannaeyjar eru stærsta verstöðin og Norðfjörður númer tvö en loðnuvinnslur eru einnig á Þórshöfn, Vopnafirði, Eskifirði, Fáskrúðsfirði, Hornafirði og á Akranesi. Á öllum þessum stöðum má búast við mikilli tekjuinnspýtingu ef loðnukvótinn verður aukinn að einhverju ráði. Loðnubæjunum hefur fækkað um einn frá því í fyrra. Seyðisfjörður er dottinn út eftir að bræðslunni þar var lokað. Búist er við að Hafrannsóknastofnun tilkynni niðurstöður sínar á morgun. Miðað við núverandi kvóta stefnir í allt að tíu milljarða króna loðnuvertíð. Það eru ekki mörg ár síðan við fengum fimmtíu milljarða vertíð þannig að miklir hagsmunir eru undir að meira finnist, eins og fjallað er um í frétt Sýnar:
Loðnuveiðar Sjávarútvegur Vestmannaeyjar Fjarðabyggð Langanesbyggð Vopnafjörður Sveitarfélagið Hornafjörður Akranes Efnahagsmál Síldarvinnslan Ísfélagið Brim Tengdar fréttir Halda til loðnuveiða í kvöld Reiknað er með því að tvö skip haldi til loðnuveiða frá Neskaupstað í kvöld, Barði NK frá Síldarvinnslunni og grænlenska skipið Polar Amaroq. Polar Amaroq kom með fyrstu loðnu vertíðarinnar til Neskaupstaðar síðastliðinn þriðjudag. 26. janúar 2026 12:14 Loðna fundist á stóru svæði Loðna hefur fundist á stóru svæði í mælingu Hafrannsóknastofnunar sem er langt komin. Stefnt er að því að birta veiðiráðgjöf í seinni hluta þessarar viku en einungis á eftir að fara yfir takmarkað svæði út af Vestfjörðum. 25. janúar 2026 19:44 Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Gleði ríkti á Norðfirði í dag þegar fyrstu loðnunni á þessari vertíð var landað hjá Síldarvinnslunni. Loðnunni er lýst sem stórri og fallegri og fer hún öll í heilfrystingu til manneldis. 20. janúar 2026 21:56 Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Loðnuvertíðin er hafin en fyrsta loðnan veiddist í dag út af Austfjörðum og er stefnt að því að henni verði landað á Norðfirði á morgun. Þá héldu fimm skip á miðin í dag til loðnumælinga á vegum Hafrannsóknastofnunar en niðurstöðurnar ráða miklu um það hversu stór loðnukvótinn verður. 19. janúar 2026 22:20 Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira
Halda til loðnuveiða í kvöld Reiknað er með því að tvö skip haldi til loðnuveiða frá Neskaupstað í kvöld, Barði NK frá Síldarvinnslunni og grænlenska skipið Polar Amaroq. Polar Amaroq kom með fyrstu loðnu vertíðarinnar til Neskaupstaðar síðastliðinn þriðjudag. 26. janúar 2026 12:14
Loðna fundist á stóru svæði Loðna hefur fundist á stóru svæði í mælingu Hafrannsóknastofnunar sem er langt komin. Stefnt er að því að birta veiðiráðgjöf í seinni hluta þessarar viku en einungis á eftir að fara yfir takmarkað svæði út af Vestfjörðum. 25. janúar 2026 19:44
Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Gleði ríkti á Norðfirði í dag þegar fyrstu loðnunni á þessari vertíð var landað hjá Síldarvinnslunni. Loðnunni er lýst sem stórri og fallegri og fer hún öll í heilfrystingu til manneldis. 20. janúar 2026 21:56
Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Loðnuvertíðin er hafin en fyrsta loðnan veiddist í dag út af Austfjörðum og er stefnt að því að henni verði landað á Norðfirði á morgun. Þá héldu fimm skip á miðin í dag til loðnumælinga á vegum Hafrannsóknastofnunar en niðurstöðurnar ráða miklu um það hversu stór loðnukvótinn verður. 19. janúar 2026 22:20