Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Árni Sæberg skrifar 29. janúar 2026 09:00 Húsnæðisverð vegur þungt í vísitölu neysluverðs. Vísir/Vilhelm Verðbólga mælist nú 5,2 prósent, miðað við 4,5 prósent í desember. Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í desember 2025, er 668,3 stig og hækkar um 0,38 prósent frá fyrri mánuði. Verðbólga eykst umfram spár viðskiptabankanna.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Hagstofunnar. Þar segir að útsölur séu nú í fullum gangi og verð á fötum og skóm hafi lækkað um 7,4 prósent og haft 0,27 prósenta áhrif á vísitöluna til lækkunar. Verð á húsbúnaði, heimilistækjum og fleira hafi lækkað um 5,4 prósent og haft 0,23 prósenta áhrif til lækkunar. Flugfargjöld til útlanda hafi lækkað um 10,8 prósent og haft 0,27 prósenta áhrif til lækkunar. Verð á mat og óáfengum drykkjum hafi hækkað um eitt prósent og haft 0,15 prósenta áhrif til hækkunar. Breytingar á gjaldheimtu höfðu mikil áhrif Þá segir að um áramótin hafi verið gerðar ýmsar breytingar á gjöldum tengdum ökutækjum sem höfðu áhrif á vísitölu neysluverðs. Olíugjald og vörugjöld á eldsneyti hafi verið lögð niður og kolefnisgjaldið verið hækkað. Tekin hafi verið upp kílómetragjöld fyrir öll ökutæki, vörugjöldum á ökutæki hafi verið breytt og rafbílastyrkurinn lækkaður. Bensínverð hafi lækkað um 27,4 prósent og haft 0,68 prósenta áhrif á vísitöluna til lækkunar og díselverð um 24,2 prósent, 0,26 prósenta áhrif til lækkunar. Veggjöld hafi hækkað um 633,4 prósent, 0,99 prósenta áhrif til hækkunar, vegna kílómetragjalda og verð á bifreiðum hafi hækkað um 13,3 prósent, 0,56 prósenta áhrif til hækkunar. Þar af hafi hækkun á rafbílum mælst 6,4 prósent, hækkun á tvinnbílum 16,3 prósent og hækkun á bensín/díselbílum 19,8 prósent. Verðbólga ekki meiri frá því í september árið 2024 Síðastliðna tólf mánuði hafi vísitala neysluverðs hækkað um 5,2 prósent og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,5 prósent. Greiningardeild Landsbankans hafði spáð 5,1 prósent verðbólgu og greiningardeild Arion banka fimm prósenta verðbólgu. Stýrivextir eru nú 7,25 prósent og næsta vaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands verður kynnt þann 4. febrúar næstkomandi. Fréttin hefur verið uppfærð.
Verðlag Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Efnahagsmál Fjármál heimilisins Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Sjá meira