Óðinn stórkostlegur: „Þessi ákvörðun var spot on hjá Snorra“ Sindri Sverrisson skrifar 29. janúar 2026 12:32 Óðinn Þór Ríkharðsson er í góðum tengslum við stuðningsmennina og sýnir tilfinningar inni á vellinum. VÍSIR/VILHELM „Hann var stórkostlegur,“ sögðu sérfræðingarnir í Besta sætinu um Óðin Þór Ríkharðsson sem fór á kostum í sigrinum stóra gegn Slóveníu í gær. Ákvörðun Snorra Steins Guðjónssonar fyrir mót hafi gengið fullkomlega upp.
Óðinn fékk hæstu einkunn fyrir leikinn í gær þar sem hann skoraði sjö mörk, fiskaði þrjá ruðninga og smitaði út frá sér orku og baráttuhug. Rætt var um Óðin í Besta sætinu og má hlusta á þáttinn hér að neðan og á hlaðvarpsveitum. „Hann fiskaði þrjá ruðninga og var bara frábær. Hans framlag inni á vellinum og heilt yfir í mótinu hefur verið stórkostlegt,“ sagði Einar Jónsson í Besta sætinu. Snorri Steinn ákvað að taka Óðin með á EM sem eina hreinræktaða hægri hornamanninn en Teitur Örn Einarsson, sem Íslendingar þekkja betur sem skyttu, er honum til halds og trausts en hefur nánast ekkert spilað. Sigvaldi Björn Guðjónsson og fleiri sitja heima en Óðinn hefur verið í slíkum ham að það hefur engu máli skipt. „Ef einhver er glaður þá er það Snorri“ „Hann er búinn að vera algjörlega aleinn þarna, frábær í vörn, stelur boltum, tekur ruðninga, fyrstur fram í hraðaupphlaup. Ég hélt á tímabili að hann færi upp í stúku, til að fagna með áhorfendum. Þegar hann fiskar ruðning eða stelur bolta þá fagnar hann því jafnvel meira en þegar hann hamrar boltann upp í skeytin. Þetta er ógeðslega dýrmætt,“ sagði Einar. „Ef einhver er glaður þá er það Snorri. Hann tók smáséns og valdi í raun bara einn hægri hornamann. Ef Óðinn hefði svo átt lélegt mót þá getið þið rétt ímyndað ykkur hvað Snorri væri búinn að fá að heyra það. Hvar Sigvaldi væri og hvernig honum dytti þetta í hug,“ sagði Jóhann Gunnar Einarsson og Einar greip þann bolta á lofti: „Hann er varla búinn að fá að anda allt mótið en gaurinn er í sturluðu standi. Þetta er ein af þessum ákvörðun sem Snorri hefur tekið, sem hefði getað farið í báðar áttir en gekk upp. En við eigum tvo geðveika leiki fram undan og það er spurning hvernig Óðinn verður þar. En við erum búin að ná okkar markmiðum og þetta gekk upp. Þessi ákvörðun var spot on hjá Snorra,“ sagði Einar.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Mbappé með tvö og Frakkar áfram eftir leik sem seinkaði um tvo tíma Fótbolti Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Wimbledon-meistari í fjögurra ára bann Sport Einum mánuði yngri en Eiður Smári Íslenski boltinn Uppgjörið: KR - ÍA 5-3 | Átta marka súpa á Meistaravöllum Íslenski boltinn Áhorfendur beðnir um að mæta ekki Fótbolti UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé Fótbolti Titilbaráttunni formlega lokið í kvöld? Sport „Hefðum við nýtt okkar færi væri ég ekki að fara heim með núll stig“ Fótbolti Fleiri fréttir Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Sjá meira