Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Kristján Már Unnarsson skrifar 29. janúar 2026 21:42 Gunnþór Ingvason er forstjóri Síldarvinnslunnar og formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Anton Brink Eftir tvö vonbrigðaár í loðnunni bárust loks gleðitíðindi í dag þegar Hafrannsóknastofnun lagði til fimmföldun loðnukvótans. Það þýðir að loðnuvertíðin næstu tvo mánuði gæti skilað þjóðarbúinu 35 til 40 milljarða króna útflutningstekjum, að mati forstjóra Síldarvinnslunnar.
Í fréttum Sýnar mátti sjá myndir frá Norðfirði sem er eina höfnin sem fengið hefur loðnu á þessari vertíð. Í morgun kom Barði NK með tæp 900 tonn til vinnslu í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Þegar skipið hélt út á miðin á mánudag var íslenski kvótinn 31 þúsund tonn en fer núna yfir 150 þúsund tonn. „Þetta eru náttúrulega gleðitíðindi að við séum að fá fimmföldun á okkar kvóta. Þannig að þetta er ánægjulegt,“ segir Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar og formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Loðnuskipið Beitir NK siglir inn Norðfjörð.Björn Steinbekk „Við erum að sjá það fram á að geta framleitt núna inn á okkar verðmætustu markaði, inn á Asíumarkað og Austur-Evrópu, og svo loðnuhrogn. Við höfum ekki verið að sinna þessum mörkuðum að neinu viti síðustu árin vegna loðnuskorts. Þannig að það er gríðarlega mikilvægt að ná að viðhalda þessum mörkuðum og fá þetta inn núna.“ -Þýðir þetta að verðin eru góð? „Já, ég held við séum að fara í tóma markaði. Já, ég held ég sjái bara gott útlit.“ Loðnu pakkað til heilfrystingar hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum.Egill Aðalsteinsson Miðað við fyrri kvóta hafði Gunnþór áætlað að útflutningsverðmætið gæti orðið allt að tíu milljarðar króna. En hvað segir hann núna? „Ég myndi skjóta svona á 35 til 40 milljarða króna vertíð. Og það munar um minna,“ svarar Gunnþór. Hann telur þó að útgerðir loðnuskipa muni bíða átekta þar til hrognafylling loðnunnar verður meiri. „Og þetta fari í okkar verðmætustu flokka. Það er alveg ljóst að þessi kvóti er ekki það mikill að það er ekki svigrúm til þess að vera að veiða loðnu með beinum hætti í fiskimjöl og lýsi. Þannig að menn munu bíða eftir hrognafyllingu og manneldismörkuðunum.“ Frá loðnuveiðum undan Dyrhólaey. Búast má við að loðnan verði komin á þessar slóðir upp úr miðjum febrúarBjörn Steinbekk. Sem gæti gerst eftir tvær vikur eða svo. Þá ætti loðnan að vera farin að ganga meðfram suðurströndinni. -Hvað þýðir þetta fyrir stemninguna í loðnubyggðum landsins? „Ég held að þetta sé náttúrulega gríðarleg lyftistöng. Það eru auðvitað hundruð manna sem fá vinnu þennan einn og hálfan mánuð sem þetta mun taka okkur að koma þessu í verðmæti. Og það eru margir sem fá sneið af kökunni,“ svarar forstjóri Síldarvinnslunar á Norðfirði. En er hugsanlegt að loðnukvótinn gæti orðið enn meiri? Þeim möguleika er velt upp hér í frétt Sýnar:
Loðnuveiðar Sjávarútvegur Síldarvinnslan Matvælaframleiðsla Fjarðabyggð Vestmannaeyjar Langanesbyggð Sveitarfélagið Hornafjörður Akranes Efnahagsmál Tengdar fréttir Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Hafrannsóknastofnun leggur til að rúm 197 þúsund tonn af loðnu verði veidd á þessu fiskveiðiári. Upphaflega lagði hún til innan við fimmtíu þúsund tonna hámarksafla. 29. janúar 2026 09:10 Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Gleði ríkti á Norðfirði í dag þegar fyrstu loðnunni á þessari vertíð var landað hjá Síldarvinnslunni. Loðnunni er lýst sem stórri og fallegri og fer hún öll í heilfrystingu til manneldis. 20. janúar 2026 21:56 Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira
Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Hafrannsóknastofnun leggur til að rúm 197 þúsund tonn af loðnu verði veidd á þessu fiskveiðiári. Upphaflega lagði hún til innan við fimmtíu þúsund tonna hámarksafla. 29. janúar 2026 09:10
Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Gleði ríkti á Norðfirði í dag þegar fyrstu loðnunni á þessari vertíð var landað hjá Síldarvinnslunni. Loðnunni er lýst sem stórri og fallegri og fer hún öll í heilfrystingu til manneldis. 20. janúar 2026 21:56