Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Atli Ísleifsson skrifar 30. janúar 2026 12:51 Kolfinna María Níelsdóttir. Sindri Swan Kolfinna María Níelsdóttir hefur verið ráðin leiðtogi markaðs- og viðburðamála hjá Drift EA.
Í tilkynningu segir að Kolfinna bætist þar með í kjarnateymi Driftar EA sem hafi það að markmiði að efla frumkvöðla- og nýsköpunarumhverfi á Norðurlandi. „Kolfinna er með BA-gráðu í félagsvísindum frá Háskólanum á Akureyri og stundaði meistaranám í ferðamálafræði og samfélagsgreiningum við Álaborgarháskólann í Kaupmannahöfn. Hún býr yfir víðtækri reynslu af markaðs- og nýsköpunarstarfi, en áður starfaði hún m.a. sem verkefnastjóri kynningarmála hjá Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) og hefur síðustu fjögur ár leitt markaðs- og nýsköpunarstarf hjá Eimi, félags um bætta nýtingu auðlinda á Norðurlandi,“ segir í tilkynningunni. Þá segir að Kolfinna hafi gegnt lykilhlutverki í verkefnum á borð við nýsköpunarverkefnið Norðanátt og meðal annars haft umsjón með skipulagi Fjárfestahátíðar á Siglufirði. „Hún hefur víðtæka reynslu af stefnumótun og miðlun, meðal annars á sviði samfélagsmiðla, vefsíðugerðar og markaðsefnis, kynningarstarfi í alþjóðlegum samstarfsverkefnum og skipulagningu viðburða af ýmsum toga,“ segir í tilkynningunni. Drift EA var stofnað í lok 2024 með það að markmiði að styðja við frumkvöðla, nýsköpun og atvinnulífið á Akureyri og í Eyjafirði með aðstöðu, faglegri ráðgjöf, fjármagni, tengslaneti og viðburðum sem efla nýsköpun og verðmætasköpun í heimabyggð.
Auglýsinga- og markaðsmál Akureyri Vistaskipti Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira