Lækkar tolla á Indland Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. febrúar 2026 23:51 Í færslunni segir Trump Modi vera einn af sínum bestu vinum. AP Bandaríkin og Indland hafa komist að viðskiptasamkomulagi. Þeir fyrrnefndu hafa samþykkt að lækka töluvert tolla sína á indverskar vörur gegn því að Indland hætti að eiga í viðskiptum við Rússland.
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti að samningurinn væri í höfn á samfélagsmiðlum. Hann sagðist hafa rætt við Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, sem á að hafa samþykkt að kaupa olíu af Bandaríkjunum og mögulega Venesúela í stað Rússlands. Trump samþykkti að lækka tolla á indverskar vörur úr fimmtíu prósentum niður í átján prósent. Reuters hefur eftir embættismanni í Hvíta húsinu sem segir að Bandaríkin væru að afnema 25 prósenta refsiaðgerðatoll á allan innflutning frá Indlandi vegna olíukaupa þeirra frá Rússlandi. Í færslu Trumps á samfélagsmiðli hans Truth Social segir hann ákvörðun Modi hjálpa til við að binda enda á stríðið í Úkraínu. „Forsætisráðherra skuldbatt sig einnig til að KAUPA BANDARÍSKT í mun meira mæli, til viðbótar yfir 500 MILLJARÐA DALA virði af bandarískri orku, tækni, landbúnaðarvörum, kolum og mörgum öðrum vörum. Okkar frábæra samband við Indland verður enn sterkara í framtíðinni,“ skrifar forsetinn. Fáeinir dagar eru síðan Modi undirritaði nýjan fríverslunarsamning milli Evrópusambandsins og Indlands sem er sagður munu leiða til þess að útflutningur aðildarríkjanna til Indlands munu tvöfaldast fyrir árið 2032. „Þessi samningur mun skapa 1,4 milljörðum Indverja og milljónum Evrópubúa gríðarleg tækifæri,“ sagði Modi. Um væri að ræða dásamlegt dæmi um það hvernig tvö stærstu hagkerfi heims gætu unnið saman.
Bandaríkin Indland Donald Trump Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira