Handbolti

Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dagur Sigurðsson skemmti sér og öðrum í króatíska hópnum í bronsgleðinni eftir sigurinn á Íslandi.
Dagur Sigurðsson skemmti sér og öðrum í króatíska hópnum í bronsgleðinni eftir sigurinn á Íslandi. @bogihrvati92

Dagur Sigurðsson landsliðsþjálfari Króata er ekki bara frábær handboltaþjálfari heldur er hann einnig frambærilegur með gítarinn líka. Það sýndi hann og sannaði fyrir framan lærisveina sína.

Dagur er orðinn heldur betur hrókur alls fagnaðar hjá Króötum eftir að hafa skilað HM-silfri og EM-bronsi á síðustu tveimur stórmótum.

Dagur tók við króatíska landsliðinu á tímamótum og hefur náð frábærum og óvæntum árangri með liðið undanfarin ár.

Króatar tryggðu sér bronsið með því að vinna íslenska landsliðið í leiknum um þriðja sætið og var það í þriðja sinn á síðustu tveimur stórmótum sem Dagur vinnur Ísland á stórmótum. Báða leikina á nýloknu Evrópumóti unnu Dagur og félagar með aðeins einu marki eftir að hafa byrjað leikina mjög vel.

Þessi þrjú töp (og sigrar Dags) þýða að Króatar hafa fengið tvenn verðlaun um hálsinn en íslenska landsliðið náði bara níunda sæti í fyrra og fjórða sæti í ár. Hefðu úrslitin snúist við væru íslensku strákarnir nær örugglega komnir með verðlaun um hálsinn.

Þegar kom að því að fagna sigri á Íslendingnum um kvöldið eftir bronsleikinn var Dagur hrókur alls fagnaðar. Á Tik Tok mátti sjá myndband af okkar manni taka upp gítarinn við mikinn fögnuð lærisveina sinna. Þar sést Dagur spila og syngja með strákunum sínum í króatíska landsliðinu.

Bogihrvati92 birti myndbandið og skrifaði við það á króatísku: „Besta myndbandið sem þú sérð í dag. Dagur Sigurðsson, goðsögn, heiðursmaður og frábær þjálfari, spilar á gítar og syngur á hátíðarhöldum: Ég er frá Íslandi, þar fæddist éééég.“

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.

@bogihrvati92 🇭🇷🇮🇸#island #hrvatska #fyp #viral #fouryou ♬ original sound - bogihrvati92



Fleiri fréttir

Sjá meira


×