Tveggja turna tal í Reykjavík Agnar Már Másson skrifar 3. febrúar 2026 22:19 Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, og Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins. Samsett Mynd Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn myndu báðir fá átta fulltrúa inn í borgarstjórn Reykjavíkur samkvæmt nýrri könnun Gallúp. Enn er borgarstjórnarmeirihlutinn fallinn og hafa bæði Framsókn og Flokkur fólksins þurkast út.
Samkvæmt nýrri Gallupkönnun sem framkvæmd var fyrir Viðskiptablaðið 5. til 30. janúar nýtur Sjálfstæðisflokkurinn enn mests fylgis í borginni, eða um 32,7 prósenta, sem er þó tæplega tveggja prósentustiga lækkun frá þjóðarpúlsi Gallup frá því í desember en þá fékk flokkurinn 35,5 prósent. Næststærst er Samfylkingin með um 29,4 prósenta fylgi, sem er sex prósentustiga aukning frá þeim 23 prósentum sem flokkurinn mældist með í þjóðarpúlsinum í desember. Framkvæmd í miðju einvígi Þessi könnun var að mestu framkvæmd þegar enn var uppi óvissa um oddvitasæti Samfylkingarinnar í borginni. Ljóst varð hinn 6. janúar að Hildur Björnsdóttir myndi leiða lista Sjálfstæðismanna, eftir að Guðlaugur Þór Þórðarson útilokaði framboð rétt fyri framboðsfrest. Þá var enn óvissa um oddvitasæti Samfylkingarinnar fram til 24. janúar, þegar Pétur Marteinsson var kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík eftir að hafa skákað sitjandi borgarstjóra, Heiðu Björgu Hilmisdóttur, sem hafði gegnt oddvitastöðu flokksins í rúmt ár. Viðreisn í lykilstöðu Miðað við þetta myndu báðir flokkarnir fá átta fulltrúa, en tólf fulltrúa þarf til þess að mynda meirihluta í 23 manna borgarstjórn. Framsókn fær engan fulltrúa samkvæmt könnuninni, og ekki heldur Flokkur fólksins eða Vor til vinstri. Sósíalistar, Píratar og Vinstri græn fá einn fulltrúa hver. Miðflokkurinn og Viðreisn fá hvor um sig tvo fulltrúa. Miðað við könnunina – vilji Sjálfstæðismenn og Samfylkingarmenn forðast samstarf með hvor öðrum – þyrftu flokkarnir líklegast báðir að sannfæra Björgu Magnúsdóttur, nýjan oddvita Viðreisnar, um að mynda með sér meirihluta. Þannig gæti Sjálfstæðisflokkurinn og Viðreisn myndað tólf manna meirihluta með Miðflokknum, en Samfylkingin og Viðreisn gætu myndað meirihluta með tveimur af þeim þremur flokkum sem hljóta aðeins einn fulltrúa (VG, Pírötum eða Sósíalistum). Vissulega getur allt gerst og enn eiga oddvitar flokkanna eftir að útiloka nokkurt samstarf.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Viðreisn Flokkur fólksins Framsóknarflokkurinn Sósíalistaflokkurinn Vor til vinstri Skoðanakannanir Vinstri græn Píratar Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira