Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Árni Sæberg skrifar 4. febrúar 2026 16:03 Maðurinn reyndi að sækja grasið á pósthús. Vísir/Vilhelm Þrítugur serbneskur karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til fíkniefnalagabrots með því að sækja tvo pakka á pósthús, sem hann hélt að innhéldu samtals 2,5 kíló af maríhúana.
Þetta kemur fram í fyrirkalli og ákæru, sem birt voru í Lögbirtingablaðinu í dag. Það er gert þegar ekki tekst að birta ákæru fyrir manni á hefðbundinn hátt. Þarf að mæta fyrir dóm Í fyrirkallinu er maðurinn kvaddur til að koma fyrir dóm þann 10. mars, hlýða á ákæru, halda uppi vörnum og sæta dómi. Sæki hann ekki þing, við þingfestingu máls eða á síðari stigum þess, megi hann búast við því að fjarvist hans verði metin til jafns við það að hann viðurkenni að hafa framið brot það sem hann er ákærður fyrir og dómur verði lagður á málið að honum fjarstöddum. Lögregla skipti efnunum út Í ákærunni segir að maðurinn hafi í desember árið 2024 sótt og gert tilraun til að taka við tveimur póstsendingum sem innihéldu alls rétt tæplega 2,5 kíló af maríhúana, sem annars vegar hafi komið með póstsendingu til Íslands þann 3. desember og hins vegar póstsendingu sem kom til Íslands þann 18. desember. Lögregla hafi lagt hald á fíkniefnin í póstmiðstöðinni að Stórhöfða 32 í Reykjavík og skipt þeim út fyrir gerviefni. Maðurinn hafi sótt póstsendingarnar í póstmiðstöðina, veitt þeim viðtöku og gengið með þær út á bifreiðastæði við póstmiðstöðina þar sem hann var handtekinn.
Fíkniefnabrot Pósturinn Dómsmál Lögreglumál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira