Starfsfólk á flótta og traustið horfið Bjarki Sigurðsson skrifar 4. febrúar 2026 19:04 Linda Rún Traustadóttir er leikskólastjóri á Borg í Reykjavík. Vísir/Ívar Fannar Allir leikskólastjórar borgarinnar segjast standa frammi fyrir óraunhæfum kröfum og hafa áhyggjur af erfiðri stöðu. Þeir hafa veitt borgaryfirvöldum frest til mánaðamóta til þess að gera úrbætur. Menntað fólk sé að flýja yfir á leikskóla í öðrum sveitarfélögum.
Allir 63 leikskólastjórar borgarrekinna leikskóla Reykjavíkur sendu í vikunni borgarstjóra og borgaryfirvöldum bréf þar sem lýst var yfir áhyggjum af aðgerðarleysi gagnvart langvarandi vanda í starfsumhverfi skólanna. Þeir hafi staðið frammi fyrir óraunhæfum kröfum eftir að stytting vinnuvikunnar var innleidd. Vinnuskylda starfsmanns í fullri vinnu fór þá úr 40 tímum í 36 tíma en stjórnendur máttu ekki ráða inn auka stöðugildi til að mæta styttri vinnutíma. Starfsmenn flýja annað Aldrei áður hafa allir leikskólastjórar skrifað undir slíka yfirlýsingu og því ljóst að vandinn er aðkallandi að sögn Lindu Rúnar Traustadóttur, leikskólastjóra á Borg í Breiðholti. „Traustið er í rauninni ekki neitt því við sjáum ekkert gert. Það eru engar aðgerðir til að mæta þessum vanda, sem er það raunverulegur og alvarlegur, að við erum að missa fólk í önnur sveitarfélög þar sem hefur verið brugðist hraðar við og af meiri festu. Það eru raunverulegar áhyggjur. Við erum að horfa á eftir leikskólastjórum, -kennurum og -leiðbeinendum í önnur sveitarfélög. Það er eitthvað sem Reykjavíkurborg má ekki við,“ segir Linda. Hafa til mánaðamóta Í haust var svokölluð Reykjavíkurleið kynnt sem átti að bæta starfsumhverfið til muna. Í desember var þeim áformum þó frestað. Í kjölfar þess jókst von- og trúleysi leikskólastjóranna verulega. Þeir krefjast aðgerðaáætlunar frá borginni fyrir mánaðamót. Þolinmæðin er á þrotum. „Það breytir engu hver er hér í stjórn, í meirihluta eða minnihluta. Þessi vandi mun ekki hverfa heldur frekar aukast ef það verður ekki gripið til aðgerða. Það er mjög einfalt,“ segir Linda. Finnst þér yfirvöld stinga höfðinu í sandinn? „Já, því við fáum ekkert að vita og það er ekki gott.“ Hér fyrir neðan má lesa bréfið í heild sinni. Tengd skjöl Bréf_til_borgaryfirvalda_frá_leikskólastjórnendum_í_Reykjavík_leiðrétt_lokaútgáfaPDF182KBSækja skjal
Leikskólar Reykjavík Skóla- og menntamál Vinnumarkaður Börn og uppeldi Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira