Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Árni Sæberg skrifar 6. febrúar 2026 15:46 Valhöll var reist árið 1975 og hefur alla tíð hýst Sjálfstæðisflokkinn. Vísir/vilhelm Alva fasteignir, félag Skorra Rafns Rafnssonar, er langt komið með að ná samningum við Sjálfstæðisflokkinn um kaup á Valhöll. Enn á þó eftir að ganga frá lausum endum á borð við undirritun kaupsamnings. Skipulagsfulltrúi hefur tekið jákvætt í fyrirspurn Alva fasteigna um hótelrekstur í húsinu.
Þetta staðfesta bæði Skorri Rafn og Tryggvi Másson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Vísi. Þeir vildu að svo stöddu ekki tjá sig frekar um málið. Skipulagsfulltrúi útilokaði nýja hæð en ekki hótelrekstur Þann 16. desember síðastliðinn tók skipulagsfulltrúi Reykjavíkur fyrirspurn Alva fasteigna um Valhöll til afgreiðslu. Alva fasteignir óskuðu eftir afstöðu skipulagsfulltrúa til þess hvort mögulegt væri að fá leyfi til að breyta notkun hússins í gistiheimili eða hótel, koma fyrir matsal í kjallara þess og að bæta við einni inndreginni hæð ofan á húsið. Niðurstaða skipulagsfulltrúa var að taka neikvætt í fyrirspurn um hækkun hússins en að hótelstarfsemi á lóðinni samræmdist aðalskipulagi. Þó þyrfti að breyta deiliskipulagi til að breyta nýtingu byggingarinnar í hótel. Byggð sérstaklega fyrir flokkinn Valhöll var byggð sérstaklega undir starfsemi Sjálfstæðisflokksins árið 1975 en þar hefur ýmis önnur starfsemi einnig verið rekin. Í umsögn skipulagsfulltrúa segir að varðveislugildi Valhallar sé ótvírætt. Í ritinu Byggðakönnun: Borgarhluti 3 – Hlíðar: I. hluti: Saga byggðar í borgarhlutanum: Fornleifaskráning og varðveislumat fornleifa og yngri minja: Niðurstöður varðveislumats húsa og hverfisheilda segi eftirfarandi: Skorri Rafn Rafnsson er stofnandi og forstjóri Alva capital. Alva capital „Reist 1975 og hönnuð af arkitektunum Halldóri H. Jónssyni og Garðari Halldórssyni. Byggingin er merk fyrir þær sakir að hún er eina byggingin sem var sérhönnuð til að hýsa höfuðstöðvar stjórnmálaflokks og hefur ótvírætt verndargildi sem slík. Borgarsögusafn bendir á að byggingin var hönnuð til að setja svip á umhverfið. Enn fremur segir þar að „útlit hússins og staðsetning endurspeglar hlutverk þess. Hefur hátt varðveislugildi, einkum sem áberandi kennileiti á hornlóð og táknræn bygging. Þarf umhverfislegt andrými sem slíkt.“ Umsvifamikill athafnamaður Skorri Rafn Rafnsson er stofnandi og forstjóri Alva capital, sem er móðurfélag Alva fasteigna. Hann hefur stofnað og leitt fjölda fyrirtækja, meðal annars Inkasso, Netgiro, Moberg, Heimkaup, Hópkaup og Bland, og gegnt bæði stöðum forstjóra og stjórnarformanns, að því er segir á vef Alva capital. Hann hefur í gegnum tíðina einnig átt nefmiðla á borð við hun.is, sport.is og 433.is. Þá var hann einn af stofnendum smálánafyrirtækisins Hraðpeninga. Í október síðastliðnum var greint frá því að félag hans Alva capital hefði samið við alþjóðlega hótelkeðju um rekstur hótels í húsnæði félagsins að Rauðarárstíg 27, þar sem utanríkisráðuneytið var áður til húsa.
Fasteignamarkaður Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavík Hótel á Íslandi Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira