„Það er ekkert hæft í þessu“ Oddur Ævar Gunnarsson og Jakob Bjarnar skrifa 7. febrúar 2026 09:52 Frosti Logason hefur rekið Brotkast undanfarin ár svo athygli hefur vakið. Vísir/Vilhelm Frosti Logason verður ekki oddviti Miðflokksins í borgarstjórnarkosningum í vor. Flokkurinn mælist samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum með tvo borgarfulltrúa inni þrátt fyrir að hafa ekki kynnt hver mun leiða lista flokksins í borginni.
Mikil spenna ríkir því eðli málsins samkvæmt fyrir því hver verður oddviti flokksins. Björn Ingi Hrafnsson aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns flokksins sér um að stilla upp á lista og hefur sjálfur sagt í samtali við Vísi að hann verði ekki oddviti. Leitað hefur verið ljósum logum að mögulegum oddvita Miðflokksins á kaffistofum landsins og er nafn Frosta eitt þeirra sem komið hafa upp. Það birtist meðal annars í því að Andrés Jónsson almannatengill og ráðgjafi sagði í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í vikunni að hann teldi líklegast að Frosti yrði næsti oddviti, miðað við þau nöfn sem hann hefði heyrt nefnd. „Hann hefur verið nefndur,“ sagði Andrés í þættinum. Frosti hlaðvarpsstjóri var að lyfta lóðum þegar blaðamaður Vísis náði í hann í gær. Þegar þrálátur orðrómur þess efnis að hann muni taka að sér að leiða lista Miðflokksins í borginni var borinn undir hann þótti Frosta það skondið. „Það er ekkert hæft í þessu,“ sagði Frosti. Miðflokkurinn hefur undanfarna daga kynnt einn frambjóðanda á dag. Meðal þeirra sem hafa gefið kost á sér eru Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir Waage, Breki Atlason, Páll Edwald og Helgi Áss Grétarson. Ekki liggur fyrir hvenær oddviti flokksins verður kynntur en kosningar fara fram 16. maí.
Miðflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Mest lesið Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Innlent Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Innlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Erlent Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Erlent Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Innlent Greinir á við kjósendur sína Innlent Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Fleiri fréttir Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Sjá meira