Endurvekjum hvata til fjárfestinga Hildur Eiríksdóttir skrifar 10. febrúar 2026 08:31 Í upphafi síðasta árs voru væntingar um hraðara vaxtalækkunarferli og minni verðbólgu. Raunin varð allt önnur. Verðbólga reyndist þrálát og vextir hafa haldist háir lengur en flestir áttu von á. Háir innlánsvextir hafa dregið úr hvata til fjárfestinga í verðbréfum, þrátt fyrir að fræðin segi að dreift eignasafn skili betri ávöxtun til lengri tíma en bankainnlán ein og sér. Víða erlendis hafa stjórnvöld brugðist við stöðunni með því að innleiða skattalega hvata og einfaldar tegundir fjárfestingarreikninga, sem hvetja almenning til þátttöku á verðbréfamarkaði. Sænska leiðin er líklega eitt besta dæmið, en bæði Bretland og Noregur hafa einnig náð góðum árangri með svipuðum útfærslum. Leiðirnar hafa tvíþættan ávinning: annars vegar stuðla þær að betri langtímaávöxtun fyrir heimilin og styrkja á sama tíma virkan hlutabréfamarkað, sem er mikilvægur hluti af heilbrigðu hagkerfi og lykilfjármögnunarleið fyrir skráð fyrirtæki. Sameiginlegt með öllum leiðunum er að þær skapa skattalega hvata, eru einfaldar í framkvæmd, hafa engin framlagsmörk, bjóða upp á ótakmarkaðan fjárfestingartíma og heimila fleiri en einn reikning fyrir hvern einstakling, til dæmis hjá ólíkum fjármálastofnunum. Þá bjóða þær einnig upp á fjölbreytt úrval fjárfestingarkosta og stuðla að aukinni samkeppni meðal vörsluaðila. Japanir endurskoðuðu þá fjárfestingarreikninga sem í boði eru þar árið 2024, sem hefur skilaði sér í stóraukinni fjárfestingu. Þá hafa bæði Pólland og Slóvenía formlega kynnt og samþykkt nýja fjárfestingarreikninga með skýrum skattalegum hvötum og langtímaáherslum. Þetta er þróun sem við sjáum víða um heim: skattalegir hvatar sem eiga að auka fjárfestingu í verðbréfum til lengri tíma. Einfaldar og árangursríkar leiðir Að byrja snemma og leyfa vaxtavöxtum að sjá um að skila ávöxtun yfir lengri tíma er jafnframt atriði sem sum lönd, þar sem er unnið er að lagaumgjörð vegna fjárfestingarreikninga fyrir börn, horfa til. Með því er verið að breyta viðhorfi til fjárfestinga á þann hátt að fjárfesting sé stöðug og til langs tíma. Í því felst að horft er í gegnum sveiflur á markaði í stað þess að stunda spákaupmennsku og leyfa tilfinningum að ráða för. Slíkir reikningar eru í raun tæki til að efla fjármálalæsi barna, þekkingu sem þau taka með sér inn í framtíðina. Í Bandaríkjunum hefur ný tegund fjárfestingarreikninga fyrir börn fædd á árunum 2025–2028 verið innleidd, þar sem stjórnvöld leggja 1.000 dollara inn við stofnun reiknings og aðstandendur geta bætt við allt að 5.000 dollurum á ári. Fjárfestingarkostir eru meðvitað takmarkaðir við ódýra, dreifða vísitölusjóði til að beina sparnaði í langtímafjárfestingu. Svipuð nálgun hefur verið tekin upp víða í Evrópu. Í Þýskalandi fá börn til að mynda mánaðarlegt framlag frá ríkinu sem þarf að fjárfesta og foreldrar eru hvattir til að leggja sitt af mörkum. Slík kerfi byggja á þeirri einföldu hugsun að tíminn vinni með börnunum. Þau stuðla að betri fjármálavenjum en koma þó aldrei í staðinn fyrir kennslu um fjármálalæsi eða þýðingu fjármála í hversdeginum. Tækifæri til að efla fjárfestingu og styðja við hagvöxt Það er fagnaðarefni að umræða um fjármál sé að opnast og fleiri leiti sér upplýsinga og ráðgjafar. Samhliða því hefur umræða aukist um leiðir til að hvetja til fjárfestinga í verðbréfum. Líkt og rakið hefur verið þekkist það víða að slíkar leiðir byggist á einföldum verðbréfareikningum með skattalegum hvötum. Slíkir hvatar til fjárfestinga eru ekki óþekktir hér landi en sem dæmi var í gildi sérstakur skattaafsláttur vegna hlutabréfakaupa í kringum aldamótin. Þessi ívilnun, sem tók gildi árið 1984, reyndist eitt mikilvægasta tæki stjórnvalda til að byggja upp virkan hlutabréfamarkað á níunda og tíunda áratug síðustu aldar. Markmiðið var bæði að hvetja almenning til þátttöku og styrkja á sama tíma eiginfjárstöðu fyrirtækja. Árangurinn lét ekki á sér standa: eftirspurn jókst hratt og undir lok níunda áratugarins stóð fólk jafnvel í biðröðum til að nýta „skattaskammtinn“. Þegar reglurnar voru hertar árið 1991, með lengra lágmarkseignarhaldi, dró tímabundið úr þátttöku fólks á hlutabréfamarkaði en umsvif tóku þó fljótt við sér á ný. Þróunin sýnir að slíkir hvatar virka ekki eingöngu á skammtímasparnað, heldur leggja þeir líka grunn að varanlegri þátttöku almennings á verðbréfamarkaði. Virkur hlutabréfamarkaður skiptir sköpum fyrir hagkerfið. Hann styður við hagvöxt, eflir fjárfestingar og veitir fyrirtækjum trausta fjármögnunarleið. Reynsla síðustu ára sýnir jafnframt að almenningur á Íslandi er tilbúinn að taka þátt. Í útboði Íslandsbanka síðasta sumar keyptu meira en þrjátíu þúsund einstaklingar hlutabréf í bankanum, sem undirstrikar hversu öflugur sparnaður og fjárfestingavilji er til staðar. Sparnaður íslenskra heimila er mikill og nema innlán þeirra nú um 1.800 milljörðum króna. Það er verulegt fjármagn sem gæti farið að skila meiri ávöxtun ef fyrir hendi væru einfaldar, aðgengilegar og vel hannaðar leiðir til langtímafjárfestinga. Breytingar á lagaumhverfi sem hvetja almenning til að færa hluta sparnaðar síns yfir í verðbréf gætu því leitt til umtalsverðrar aukningar í fjárfestingum á íslenskum markaði og skilað ávinningi bæði fyrir heimilin sjálf og fyrir hagkerfið til lengri tíma. Höfundur er forstöðumaður Eignastýringar Íslandsbanka. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjármál heimilisins Mest lesið Halldór 19.09.2026 Halldór Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír. Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Skoðun Vefurinn kom á undan félaginu Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Macklemore, Robert Kraft og sniðganga fyrir Palestínu Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar Skoðun „Við ætlum að læra af þessu“ – enn einu sinni! Davíð Bergmann skrifar Skoðun Af hverju ég elska Ísland Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun