Vatn frá Ölfusi í sádiarabískri íþróttaþvottavél Kjartan Kjartansson skrifar 10. febrúar 2026 08:57 Liðsmenn Cleeks skála í íslensku blávatni frá Icelandic Glacial. Frá vinstri: Victor Perez, Martin Kaymer, fyrirliði, Adrian Meronk og Richard Bland. Cleeks Golf Club Íslenski drykkjarframleiðandinn Icelandic Glacial er nýr styrktaraðili liðs á LIV-mótaröðinni í golfi. Sádar stofnuðu mótaröðina til höfuðs PGA-mótaröðinni árið 2022 til þess að fegra eigin ímynd með svokölluðu íþróttaþvætti.
Cleeks, lið Martins Kaymer, tilkynnti um samstarfið við Icelandic Glacial áður en opnunarmót LIV-tímabilsins í Ríad í Sádi-Arabíu hófst í síðustu viku. Í tilkynningu á vefsíðu liðsins segir að Icelandic Glacial verði „samþættað ímynd Cleeks-golfklúbbsins á vellinum“. Þannig verði vörumerki íslenska fyrirtækisins á pokum liðsmanna. Haft er eftir Reza Mirza, forstjóra Icelandic Glacial, að skýrleiki skipti mestu máli þegar mest á ríður. „Að vinna með Cleeks-golfklúbbnum leyfir okkur að birtast á stundum þar sem skýrleiki er ekki bara hugmynd heldur nauðsyn,“ segir Mirza. Icelandic Glacial tappar íslensku vatni á flöskur í Ölfusi. Stærstu eigendur fyrirtækisins eru þó erlendir. Sá stærsti er Iceland Star Property, skráð í Liechtenstein, sem Jón Ólafsson, stofnandi fyrirtækisins sagði í eigu alþjóðlegs hóps fjárfesta árið 2023. Næststærsti eigandi er bandaríski fjárfestingasjóðurinn Blackrock. Íslenska vatnið virðist ekki hafa hjálpað Kaymer og félögum að vera skýrir í kollinum í Ríad. Cleeks enduðu í næstneðsta sæti í liðakeppninni. Adrian Meronk var efstur Cleeks-manna í einstaklingskeppninni, jafn í 27. sæti af 57 keppendum. Richard Bland og Victor Perez höfnuðu í 54. og 55. sæti.
Ölfus LIV-mótaröðin Sádi-Arabía Vatn Golf Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira