Vala Matt selur á Ásvallagötunni Magnús Jochum Pálsson skrifar 11. febrúar 2026 12:09 Vala Matt er að selja en hún sýndi ófáar íbúðirnar í sjónvarpsþáttunum Innlit/útlit á Stöð 2 forðum daga. Fjölmiðlakona Valgerður Matthíasdóttir, betur þekkt sem Vala Matt, hefur sett íbúð sína að Ásvallagötu 69 á sölu. Íbúðin er þriggja herbergja, 62,5 fermetrar og er ásett verð hennar 64,9 milljónir króna.
Íbúðin er á fyrstu hæð í fjórbýlishúsi við Ásvallagötu sem var byggt árið 1938. Í lýsingu á fasteignavef Vísis kemur fram að íbúðin hafi verið sérstaklega teiknuð og hönnuð af Völu sjálfri og endurnýjuð töluvert. Hellulagt er fyrir framan íbúðina. Gengið er upp tröppur frá hellulögðum palli fyrir framan húsið inn í íbúðina. Eldhúsið tekur þar við manni en þar er ný og sérhönnuð eldhúsinnrétting og eldhúseyja með kvartsteini. Inni í innréttingunni er uppþvottavél ásamt þvottavél með þurrkara. Borðstofan liggur við eldhúsið og nýtur birtu frá glugga. Borðstofuborðið er við stóran glugga. Eldhúsið og borðstofa eru saman. Blöndunartækin eru forvitnileg. Blöndunartækin í eldhúsinu gefa íbúðinni ákveðna sérstöðu og eru býsna athyglisverð. Þar er hægt að fá kalt sódavatn beint úr öðrum krananum og bullandi heitt vatn úr hinum. Frá eldhúsinu er gengið inn í bjarta stofu með stórum gluggum. Einn veggurinn þar er þakinn speglum sem stækka rýmið. Baðherbergið liggur einnig frá eldhúsinu, það er flísalagt með svörtum Mustang-náttúrusteini og svo er svefnherbergi með töluverðu skápaplássi. Einn veggur stofunnar er þakinn speglum sem stækka hana töluvert. Baðherbergið er lítið og huggulegt. Í kjallara er lítil geymsla og stórt sameiginlegt rými sem áður var þvottahús en er nú notað fyrir frystikistur og skápa. Fyrir framan húsið er búið að leggja hellur og setja skrautmöl og skýli fyrir ruslatunnurnar. Hægt er að skoða fleiri myndir af íbúðinni á fasteignavef Vísis og hjá Fasteignasölunni Lind.
Fasteignamarkaður Reykjavík Hús og heimili Mest lesið Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Lífið Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Lífið Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Lífið „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Lífið Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Áskorun Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið Lífið Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar Tónlist Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Menning Furðubandið sem tryllti netið Lífið Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Tíska og hönnun Fleiri fréttir Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Sjá meira