Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusardaginn 52 ára Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 11. febrúar 2026 11:19 Páll Óskar Hjálmtýsson fagnaði á dögunum þriggja ára sambandsafmæli sínu með Edgar Antonio Lucena Angarita. Vísir/Vilhelm „Ég rankaði við mér fyrsta árið okkar saman og áttaði mig á því að ég hafði aldrei áður verið á föstu á Valentínusardaginn,“ segir popp-prinsinn Páll Óskar sem ætlar að eiga rómantískan dag á laugardag með hans heittelskaða Antonio en fyrst kemur hann fram á tónleikunum Allskonar ást í Laugarneskirkju. „
Ég hlakka gríðarlega til að fá að syngja með barnakór Laugarneskirkju og þetta lagaval er virkilega skemmtilegt. Þau eru búin að vera að æfa þetta í spað og ég ætla að njóta þess að þetta verði eina giggið sem ég geri þann daginn klukkan 14:00, því auðvitað ætla ég svo að njóta dagsins með Antonio mínum,“ segir Palli brosandi. Barnakór Laugarneskirkju hyllir ástina á Valentínusardaginn og flytur alls konar lög um alls konar ást. Hljómsveitina skipa Þórður Árnason á gítar, Einar Sigurðsson á bassa, Hjörleifur Valsson á fiðlu, Ásgeir Óskarsson á trommur og sérstakur gestur er enginn annar en ástmögur þjóðarinnar, sjálfur Páll Óskar. Stjórnendur eru Elísabet Þórðardóttir og Þórunn Gréta Sigurðardóttir en hér má nálgast nánari upplýsingar um tónleikana. Páll Óskar og Antonio eru gullfallegir saman.Vísir/Viktor Freyr Páll Óskar segist stöðugt vera að læra betur inn á rómantíkina en hann fann ástina í örmum Edgar Antonio Lucena Angarita, sem er gjarnan bara kallaður Antonio, fyrir þremur árum síðan. „Við áttum þriggja ára sambandsafmæli 26. janúar. Ég rankaði við mér fyrsta árið okkar saman og áttaði mig á því að ég hafði aldrei áður verið á föstu á Valentínusardaginn. Þannig það má segja að rómantíkerinn í mér sé í þróun. Eina sem er í raun planað hjá okkur á laugardag er að eyða deginum saman og ég finn upp á einhverju rómantísku. Kannski kemur Antonio mér á óvart líka,“ segir hann kíminn að lokum.
Tónleikar á Íslandi Tónlist Valentínusardagurinn Ástin og lífið Kórar Reykjavík Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Arnór Sig kominn á fast Lífið Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Fleiri fréttir Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira