Spá því að verðbólga fari strax undir fimm prósent Árni Sæberg skrifar 12. febrúar 2026 10:33 Bergþóra Baldursdóttir, hagfræðingur í greiningardeild Íslandsbanka. Vísir/Anton Brink Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að verðbólgja hjaðni úr 5,2 prósentum í 4,9 prósent milli mánaða og muni halda áfram að hjaðna næstu mánuði. „Lokahnykkur að verðbólgumarkmiði mun reynast ansi erfiður,“ segir þó í spánni. „
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,7% í febrúar frá fyrri mánuði. Ef spáin rætist mun ársverðbólga hjaðna úr 5,2% í 4,9%. Hækkun vísitölunnar skýrist einkum af því að vetrarútsölur ganga til baka og flugfargjöld hækka. Hagstofan birtir vísitölu neysluverðs þann 26. febrúar næstkomandi,“ segir í grein á vef Íslandsbanka. Útsölurnar í janúar hafi verið í takti við það sem greiningardeildin gerði ráð fyrir í síðasta mánuði. Líklegt sé að þær gangi til baka nú í febrúar, þó að hluti áhrifanna af útsölulokum dragist til næsta mánaðar. Í verðmælingaviku Hagstofunnar hafi lokadagar útsalna enn verið í gangi í sumum verslunum. Deildin spái því að verð á fatnaði og skóm hækki um 4,4 prósent of hafi 0,15 prósent áhrif á vísitöluna til hækkunar og verð á húsgögnum, heimilisbúnaði og fleira hækki um 4,5 prósent og hafi 0,18 prósenta áhrif á vísitöluna til hækkunar. Hóflegar verðhækkanir húsnæðis Þá segir að húsnæðisflokkurinn hækki um 0,5 prósent á milli mánaða og hafi 0,14 prósenta áhrif á vísitölu til hækkunar. Mestu muni um reiknaða húsaleigu, sem hækki um 0,4 prósent. „Rólegt hefur verið á leigumarkaði að undanförnu samkvæmt vísitölu leiguverðs frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Þó hafa verðsveiflur einkennt markaðinn á síðustu mánuðum, en við gerum ráð fyrir hóflegum verðhækkunum næstu mánuði. Þá hefur hækkun sorphirðugjalda einnig sitt að segja í febrúar, þar sem gjaldskrár margra sveitarfélaga tóku breytingum í mánuðinum.“ Flugfargjöld muni hækka samkvæmt verðmælingu deildarinnar um 4,2 prósent á milli mánaða og hafa 0,1 prósenta áhrif á vísitölu til hækkunar. Þar sé um að ræða árstíðaráhrif eftir árvissa lækkun flugverðs í janúar. Líklega muni flugverð hafa sveiflukennd áhrif á ársverðbólgu næstu mánuði, þar sem flugverð muni að öllum líkindum hækka mest í mars í stað apríl vegna tímasetningar páska. Verð á matar-og drykkjarvörum hafi óvænt hækkað um 1 prósent í janúar og hækkunin hafi dreifst yfir helstu undirflokka. Deildin telji að matvörur hækki hægar í febrúar og hún spái 0,3 prósent hækkun milli mánaða, sem hafi 0,05 prósenta áhrif á vísitölu til hækkunar. Yfir efri vikmörkum fram að miðju ári Loks segir að ársverðbólga hafi mæslt 5,2 prósent í janúar og hafi ekki mælst meiri síðan í september 2024. „Helstu ástæður hækkunarinnar voru aukin opinber gjöld, en fleiri liðir hækkuðu einnig. Samkvæmt fastskattavísitölu neysluverðs – mati Hagstofunnar á vísitölunni þar sem breytingar á sköttum og gjöldum á neysluvörur og þjónustu eru undanskildar - hefði verðbólga mælst í 4,8% í janúar. Útlit er fyrir að verðbólga muni hjaðna á næstu mánuðum en vera áfram yfir efri vikmörkum verðbólgumarkmiðs Seðlabankans (4%) fram að miðju ári.“ Bráðabirgðaspá greiningardeildar Íslandsbanka fyrir næstu þrjá mánuð sé eftirfarandi: mars: 0,6% hækkun VNV (5,2% ársverðbólga) – Útsölur ganga að fullu til baka, flugverð hækkar í aðdraganda páska. apríl: 0,3% hækkun VNV (4,5% ársverðbólga) – Lítilsháttar hækkun í flestum liðum, minni hækkun á flugfargjöldum vegna tímasetningar páska. maí: 0,2% hækkun VNV (4,5% ársverðbólga) – Lítilsháttar hækkun í flestum liðum, flugverð lækkar smávegis.
Íslandsbanki Verðlag Efnahagsmál Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira