VG vex og býður á stefnumót og Vor til vinstri leitar að fólki Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 13. febrúar 2026 12:12 Líf Magneudóttir, oddviti VG í Reykjavík, gefur kost á sér áfram og Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Sósíalista, leiðir nýtt framboð Vors til vinstri í kosningunum í vor. Vísir/samsett Framboðið Vor til vinstri auglýsir nú eftir fólki sem hefur áhuga á að gefa kost á sér í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík. Sanna Magdalena Mörtudóttir fer fyrir framboðslistanum sem ætlar að bjóða fram í bandalagi við Vinstri græn í borginni í vor. Þá hefur félögum í Vinstri grænum í Reykjavík fjölgað um tæplega tuttugu prósent á síðustu vikum en VG heldur forval um efstu sæti sem falla í hlut VG á sameiginlegum lista flokkanna. „
Markmið okkar er að stilla fram sterkum og trúverðugum lista sem endurspeglar gildi Vors til vinstri um efnahagslegt og félagslegt réttlæti, og þann fjölbreytileika sem við viljum sjá í forystu og fulltrúum okkar. Við hvetjum fólk með ólíkan bakgrunn, reynslu og þekkingu til að gefa kost á sér eða tilnefna aðra,“ segir meðal annars í auglýsingu sem Vor til vinstri birti á samfélagsmiðlum í gær. Þá er gerð sú krafa á að viðkomandi deili gildum um félagshyggju, hafi áhuga á þátttöku í pólitísku starfi hreyfingarinnar og treysti sér til að vera í framboði. Þegar tilkynnt var um bandalag Vors til vinstri og VG var greint frá því að gert væri ráð fyrir að Sanna Magdalena myndi leiða listann, fulltrúar VG muni skipa sæti tvö, þrjú og sex á listanum en fulltrúar Vors til vinstri sæti fjögur og fimm. Þá verði stillt upp í önnur sæti með hefðbunum fléttulista. Sjá einnig: Hljóp á sig Vinstri græn hafa boðað forval þar sem átta hafa gefið kost á sér til að skipa þrjú efstu sæti VG á sameiginlegum lista. Forvalið fer fram næstu helgi, en í tilkynningu sem birtist á vef Vinstri grænna í vikunni segir að mikil fjölgun hafi orðið í félaginu undanfarnar vikur. „Tæplega 400 manns hafa skráð sig í félagið frá áramótum. Félagar í svæðisfélaginu eru nú um 2.500 og hefur félögum því fjölgað um tæplega 20% á undanförnum sex vikum,“ segir meðal annars í tilkynningunni. „Öflugt starf hefur verið í félaginu í aðdraganda borgarstjórnarkosninga en félagið mun halda sinn fjórða opna fund á árinu á laugardaginn kemur. Þar verður boðið upp á hraðstefnumót við frambjóðendur í forvalinu og útfærslur sameiginlegs vinnuhóps um málefni sameinaðs vinstriframboðs kynntar fyrir félögum,“ segir ennfremur í tilkynningunni. Svo vill til að hraðstefnumótið á laugardaginn ber upp á sjálfan Valentínusardaginn, þann 14. febrúar.
Vinstri græn Vor til vinstri Reykjavík Borgarstjórn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Sjá meira