Gera Wolt-sendla starfsmenn en á óhefðbundnum kjörum Kjartan Kjartansson skrifar 13. febrúar 2026 14:48 Wolt-sendill á hjóli. Finnska fyrirtækið vill halda sendlum sínum sem sjálfstæðum verktökum frekar en starfsmönnum sínum. Mika Baumeister Heimsendingarfyrirtækið Wolt hefur í fyrsta skipti ráðið sendla sem starfsmenn í Finnlandi eftir að dómstóll skikkaði það til þess. Sendlarnir fá þó hvorki greitt á milli sendinga né fyrir að sendast á eigin bílum.
Stjórnsýsludómstóll í Finnland komst að þeirri niðurstöðu í fyrra að líta ætti á sendla Wolt sem starfsmenn en ekki sjálfstæða verktaka. Wolt áfrýjaði og vill fá að halda áfram að ráða sendlana sem verktaka. Í millitíðinni segir Joel Järvinen, framkvæmdastjóri Wolt í Norður-Evrópu, að hundrað sendlar verði ráðnir fyrir lok næsta mánaðar. Tuttugu sendlar hafi hafið bein störf fyrir fyrirtækið í síðasta mánuði. Kjör sendlanna eru þó ekki þau sem ganga og gerast almennt í Finnlandi, að því er kemur fram í frétt finnska ríkisútvarpsins. Þeir fá aðeins greitt fyrir þann tíma sem þeir sendast með varning, ekki á meðan þeir bíða nýrra pantana. Þá þurfa þeir að vera á eigin farartæki en fá ekki greitt fyrir það. Järvinen segir að sendlarnir geti ákveðið eigin vinnutíma. Laun þeirra byggist á áætluðum vinnutíma og vegalengdum sem þeir þurfa að ferðast. Sendlarnir fái að minnsta kosti tólf evrur á tímann á meðan þeir vinna, jafnvirði rúmra 1.700 íslenskra króna. Wolt var stofnað í Helsinki árið 2014. Fyrirtækið lýsir þjónustu sinni sjálft þannig að það tengi þá sem vilja kaupa sér mat, vörur eða annan varning annars vegar og þá sem vilja selja hann og senda hins vegar. Sendlar Wolt á Íslandi eru sjálfstæðir verktakar samkvæmt vefsíðu fyrirtækisins.
Finnland Veitingastaðir Vinnumarkaður Heimsendingarþjónusta Mest lesið Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Greiðsluáskorun Samstarf Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Viðskipti erlent Fleiri fréttir Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira