Árásarmaðurinn á blótinu með langan brotaferil á bakinu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. febrúar 2026 06:48 Árásin átti sér stað föstudagskvöldið 31. janúar. Vísir/Vilhelm Karlmaður á fimmtugsaldri liggur enn alvarlega slasaður á Landspítalanum eftir að ráðist var á hann á þorrablóti HK í Kórnum í Kópavogi föstudagskvöldið 30. janúar. Maðurinn er með alvarlega höfuðáverka. Árásarmaðurinn á sér sögu fyrir ofbeldisbrot.
Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn á rannsóknarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að málið sé rannsakað sem alvarleg líkamsárás. Fyrir vikið sé málið á forræði rannsóknarsviðs en ekki lögreglunnar í Kópavogi. Lögregla fór fram á gæsluvarðhald yfir árásarmanninum eftir árásina. Héraðsdómur hafnaði beiðni lögreglu en Landsréttur sneri þeirri ákvörðun við og úrskurðaði manninn í gæsluvarðhald í tvo daga. Síðan þá hefur hann gengið laus. Langur sakarferill hins grunaða Meintur árásarmaður er á fertugsaldri og á sér sakarferil allt aftur til ársins 2009. Þá var hann dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur. Þegar hann var tvítugur hlaut hann tólf mánaða fangelsisdóm aðallega fyrir ítrekaðan akstur án ökuréttinda eða undir áhrifum en einnig vörslu kylfu og hnífs auk fíkniefna. Ári síðar var hann dæmdur fyrir að hafa ráðist á starfsmann á bílaverkstæði með kylfu og slegið í handlegg. Athygli vakti að þegar málið var til meðferðar hjá dómstólum lýsti brotaþoli því yfir að hafa sæst við árásarmanninn og vildi ekki gera mikið úr málinu. Var maðurinn þó dæmdur fyrir líkamsárás og um leið fyrir vörslu mikils fjölda vopna svo sem úðavopn, slöngubyssu, haglabyssu, loftbyssu, skammbyssu, eftirlíkingu af skammbyssu, raflostbyssu og skotfæri án þess að geyma þau í aðskildum læstum hirslum, einnig hnúajárn, exi, hníf með löngu blaði, þrjár hafnaboltakylfur, kylfu ekki ætlaðri til íþróttaiðkunar, stunguhníf og anabólíska stera. Þá fundust einnig fíkniefni á heimili hans. Langflest brot hans undanfarinn hálfan annan áratug snúa þó að akstri undir áhrifum eða án ökuréttinda. Sleginn þungu höggi Elín Agnes segir málið til rannsóknar en hún hafi ekki önnur tíðindi af brotaþolanum en þau að hann sé enn inniliggjandi á sjúkrahúsi nú átján dögum eftir árásina. Brotaþoli, sem er þriggja barna faðir á fimmtugsaldri, er með alvarlega höfuðáverka en samkvæmt heimildum fréttastofu var hann sleginn þungu höggi í höfuðið. Elín Agnes segist ekki geta rætt á þessari stundu um fjölda vitna að árásinni eða skýrslutöku yfir þeim. Málið sé litið alvarlegum augum og í fullri rannsókn hjá lögreglu. Íþróttafélagið HK sendi frá sér yfirlýsingu vegna málsins þann 14. febrúar síðastliðinn. „Íþróttafélagið HK harmar það ofbeldi sem átti sér stað á þorrablóti félagsins þann 30. janúar sl. Slík hegðun er með öllu óásættanleg og samræmist ekki þeim gildum sem félagið stendur fyrir. HK fordæmir allt ofbeldi og leggur ríka áherslu á gagnkvæma virðingu og öryggi á viðburðum á vegum félagsins. Hugur allra hjá félaginu er hjá þeim sem fyrir árásinni varð. Þá vill félagið koma á framfæri þökkum til sjúkraflutningamanna og lögreglu sem brást afar skjótt við og rannsakar nú málið.“
Kópavogur HK Lögreglumál Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira