Hvers vegna gera þau það ekki fyrst sjálf? Tómas Ragnarz skrifar 18. febrúar 2026 14:31 Reykjavíkurborg skorar á fyrirtæki að hvetja starfsfólk sitt til að vinna fjarvinnu. Þetta las ég á netinu fyrir nokkrum dögum og fannst þetta eitthvað skrýtið og þarna fer ekki saman hljóð og mynd. Með því að Reykjavikurborg og ríkið taki skrefið alla leið ( í stað þess að tala um þetta á fjögurra ára fresti rétt fyrir kostningar ) og bjóði fólki upp á meiri sveigjanleika við að vinna nálægt sínu nærumhverfi, þeim til þæginda og þannig laðað til sín sjálfkrafa hæfileikaríkara fólk til vinnu og veita því meiri ánægju í starfi. Það er með ólíkindum hvað stofnanir og fulltrúar þeirra eru góðir í að ráðleggja okkur almúganum sem kaus þessa sömu aðila til starfa. Þetta fólk telur sig eiga að hafa vit fyrir okkur hinum, til að gera hitt og þetta þegar eitthvað hefur klúðrast í þeirra eigin skipulagi. Það er með ólíkindum hvað þau eru dugleg og samviskusöm við að segja og kenna okkur hinum hverning allt er best og hafa vit fyrir okkur en fara svo núll eftir því sjálf. Hvers vegna bjóða stofnanir og aðrir ekki upp á vinnuaðstöðu nær þar sem fólk býr og vill vera. Þannig má auka lífsgæði fólks og fjölskyldna til muna, minnka álag á gatnakerfið, draga úr mengun, spara fjármuni fólks við kaup á orku á farartæki sín og lækkar kílómetragjaldið sem fjölskyldan eða fyrirtækið þarf að greiða. Vinnuaðstaða í nærumhverfi eykur líkur á því að stofnanir og fyrirtæki nái að ráða til sín fólk sem metur hvað boðið er upp á mikinn sveigjanleika, fyrir miku lægri kostnað en kostar að hafa þá á þeim föstu starfstöðum sem þeir hafa til umráða í dag. Það eru margar ransóknir sem sýna fram á að fólk velur sveigjanleika og aukin lífsgæði umfram peninga eða hærri laun þegar það er beðið um að velja. Fólk vill lífsgæði umfram einhverja 100 kalla og vill frekar eyða tíma sínum á skynsamari hátt eins og með fjölskyldu sinni, frekar en að ferðast til og frá vinnu í yfir 30 klukkutíma á mánuði, ef miðað er við til dæmis Hafnarfjörð og Kópavog og niður í miðbæ Reykjavíkur eða Borgartún. Fólki hefur núll áhuga á að eyða stórum hluta af degi sinum að keyra í og úr vinnu, það lítur EKKI á það sem Bónus það lítur á það sem leiðindi í alla staði. Nú þegar eru til lausnir út um allt höfuðborgarsvæðið og einnig á landsbyggðinni sem stendur öllum til boða. Öllum sem vilja auka lífsgæði sín, fara betur með umhverfið sitt, Njóta hvers dags til hins ítrasta og eins og það vill og telur best fyrir sig. Einnig er þessi leið ódýrari í ALLA staði en það húsnæði sem ríkið og borg er að borga fyrir hvern starfsmann í dag og er munurinn allt að 30-40%. Það væri ekki verra fyrir okkur skattgreiðendur ef stjórnendur myndu hugsa svona fyrir okkur og til okkar sem greiða skatta í þessu landi og fara aðeins betur með þá peninga sem við eigum en ekki þau. Kallast að fara betur með almannafé. Höfundur er forstjóri og skattgreiðandi með áhuga á heilbrigðum lífsstíl og umhverfi sínu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Vinnumarkaður Fjarvinna Mest lesið „Ég vissi ekki“ Unnar Þór Sæmundsson Skoðun 4.927 stúdentar borga kaffið og kleinurnar Andrea Edda Guðlaugsdóttir,Eiríkur Kúld Viktorsson Skoðun Loks slitnaði rófan! Hvað gengur Viðskiptaráði til? Kolbrún Halldórsdóttir Skoðun Við yrðum á matseðlinum innan ESB Hjörtur J. Guðundsson Skoðun Að vera heil manneskja í brotakenndum heimi Inga Gunnlaugsdóttir Skoðun Skilar Kópavogur auðu í húsnæðismálum? Finnbjörn A. Hermannsson Skoðun Allt að 57% lægra verð í Ísland Duty Free Heiðar Róbert Birnuson Skoðun Noregur er bara betri áfangastaður! Bjarki Gunnarsson Skoðun Hvers vegna gera þau það ekki fyrst sjálf? Tómas Ragnarz Skoðun Börn og vopn Helga Þórólfsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Loks slitnaði rófan! Hvað gengur Viðskiptaráði til? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Spegillinn sem ég límdi sjálfur skrifar Skoðun Skilar Kópavogur auðu í húsnæðismálum? Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Að vera heil manneskja í brotakenndum heimi Inga Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Nýir tímar í landeldi á laxi – stefnumótandi tækifæri fyrir Ísland Steinþór Pálsson skrifar Skoðun Félagslegt réttlæti og geðheilsa Svava Arnardóttir skrifar Skoðun Noregur er bara betri áfangastaður! Bjarki Gunnarsson skrifar Skoðun Loforð eða árangur? Ýmir Örn Hafsteinsson skrifar Skoðun Heimskautalandbúnaður ESB Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Byrjum á rótinni – ekki verðmiðanum Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Styðjum við STEM greinar í grunnskóla Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Þögn er ekki samráð: W.O.M.E.N. svarar fyrir brottfarastöðina Nichole Leigh Mosty,Marion Poilvez skrifar Skoðun Börn og vopn Helga Þórólfsdóttir skrifar Skoðun „Ég vissi ekki“ Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Að vinna undir nýfrjálshyggjumanni Ægir Máni Bjarnason skrifar Skoðun 4.927 stúdentar borga kaffið og kleinurnar Andrea Edda Guðlaugsdóttir,Eiríkur Kúld Viktorsson skrifar Skoðun Stöndum með Grænlendingum Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Við yrðum á matseðlinum innan ESB Hjörtur J. Guðundsson skrifar Skoðun Friðarráð Eleanor Roosevelt lýsir okkur enn Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Rangfærslur Viðskiptaráðs Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Frítt Elliði Vignisson skrifar Skoðun Vaxandi álag á fagfólk innan velferðarþjónustu Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Kvenréttindafélag Íslands viðhefur ósmekklegt persónuníð Huginn Þór Grétarsson skrifar Skoðun Kemst ég örugglega út? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Ofurlaun fyrir leikskólakennara Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Sagði seðlabankastjóri Alþingi ósatt? Örn Karlsson skrifar Skoðun Allt að 57% lægra verð í Ísland Duty Free Heiðar Róbert Birnuson skrifar Skoðun Bakkakot er ekki frávik. Þetta er kerfi sem brást Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Afsökunarbeiðni, skítkast og popúlismi - Alvarleg staða á Alþingi Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Hversu oft þarf að kveikja í? Olga Cilia skrifar Sjá meira
Skoðun Nýir tímar í landeldi á laxi – stefnumótandi tækifæri fyrir Ísland Steinþór Pálsson skrifar
Skoðun Þögn er ekki samráð: W.O.M.E.N. svarar fyrir brottfarastöðina Nichole Leigh Mosty,Marion Poilvez skrifar
Skoðun 4.927 stúdentar borga kaffið og kleinurnar Andrea Edda Guðlaugsdóttir,Eiríkur Kúld Viktorsson skrifar
Skoðun Afsökunarbeiðni, skítkast og popúlismi - Alvarleg staða á Alþingi Hjörvar Sigurðsson skrifar