Tíu ára fangelsi fyrir að verða manni að bana í Kiðjabergi Árni Sæberg skrifar 19. febrúar 2026 15:06 Málið varðar atvik sem áttu sér stað í sumarhúsi í Kiðjabergi í apríl árið 2024. Vísir/Vilhelm Gedirninas Saulys, litáískur karlmaður, hefur verið sakfelldur fyrir meiri háttar líkamsárás sem leiddi til dauða í sumarhúsi í Kiðjabergi í apríl árið 2024 og dæmdur til tíu ára fangelsisvistar.
Dómur Landsréttar þess efnis var kveðinn upp klukkan 15 en dómurinn hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir að svo stöddu. Elimar Hauksson, verjandi Gedirninas, segir í samtali við Vísi að niðurstaðan hafi komið honum á óvart og séu mikil vonbrigði. Málinu verði áfrýjað og fyrirséð sé að áfrýjunarleyfi fáist, þar sem Gedirninas hafi verið sýknaður í héraði en sakfelldur í Landsrétti. Aðalkrafa fyrir Hæstarétti verði frávísun frá héraði vegna óskýrleika ákæru. Upphaflega vísaði Héraðsdómur Suðurlands málinu frá dómi á þeim grundvelli. Landsréttur sneri þeim úrskurði héraðsdóms og ekki var hægt að kæra þá niðurstöðu til Hæstaréttar. Elimar telur, miðað við fordæmi Hæstaréttar frá því að hann var eini áfrýjunardómstóll landsins og tók því á frávísunarúrskurðum, að Hæstiréttur muni fallast á kröfu um frávísun frá héraðsdómi. Sakfelldur fyrir minni háttar líkamsárás í héraði Í málinu var litáískur karlmaður ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás sem var sögð hafa orðið til þess að Litái á fertugsaldri hlaut bana af. Hin meinta árás mun hafa átt sér stað í sumarhúsi í Kiðjabergi í Grímsnes- og Grafningshreppi á laugardagsmorgni þann 20. apríl í fyrra. Litáanum var gefið að sök að hafa beitt manninn margþættu ofbeldi sem beindist að höfði, hálsi og líkama hans. Fyrir vikið hefði hann hlotið margþætta áverka. Hann er talinn hafa látist vegna heilaáverka. Maðurinn var í héraði dæmdur fyrir að veitast að hinum látna en ekki var talið sannað að árásin hefði leitt til dauða hins látna. Hæfileg refsing fyrir það var að mati héraðsdóms tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi, en litið var til þess að maðurinn hafði ekki áður gerst sekur um brot hér á landi, og vegna þess að hann játaði. Ríkissaksóknari sætti sig ekki við niðurstöðuna Ríkissaksóknari ákvað að áfrýja niðurstöðu Héraðsdóms Suðurlands í ágúst síðastliðnum.
Dómsmál Manndráp í Kiðjabergi Grímsnes- og Grafningshreppur Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira