Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Hólmfríður Gísladóttir skrifar 20. febrúar 2026 07:49 Framtíð Lindex á Íslandi er björt, segir Tinna. Ýmsir möguleikar séu í skoðun varðandi framhaldið. Nýjar verslanir Lindex í Kringlunni, Smáralind og á Akureyri verða opnaðar á vormánuðum. Fyrirtækið S4S tekur formlega við Lindex-umboðinu 1. mars næstkomandi og opnar fyrir netsölu í gegnum lindex.is í byrjun mars, þar sem bilið verður brúað fram að opnun verslananna.
Þetta segir Tinna Sigrún Pétursdóttir, markaðsstjóri S4S. S4S á og rekur verslanir Ellingsen, Air, Steinar Waage, Ecco, Skór.is, Skechers og Kaupfélagsins. Það tekur við Lindex-vörumerkinu af Lóu Dagbjörtu Kristjánsdóttur og Alberti Þór Magnússyni, sem hafa tryggt sér umboðið fyrir Kappahl á Íslandi og hyggjast opna verslanir tengdar vörumerkinu þar sem áður voru verslanir Lindex. Verslanir Lindex voru tíu talsins en verslununum tveimur í Kringlunni hefur þegar verið lokað. Hinar verslanirnar voru í Smáralind, á Glerártorgi á Akureyri, í Firðinum í Hafnarfirði, í Holtagörðum, í Reykjanesbæ, á Selfossi, á Akranesi og á Egilsstöðum. „Við höfum unnið hörðum höndum að því að tryggja hentugt verslunarrými svo við getum opnað sem fyrst eftir að núverandi staðsetningum verður lokað,“ segir Tinna, spurð að því hvort S4S hyggst opna verslanir á öllum þeim stöðum þar sem þær voru áður. „Miðað við stöðuna í dag stefnum við á opnun í vor í Kringlunni, Smáralind og á Akureyri. Við erum einnig að skoða fleiri möguleika,“ bætir hún við. Áhersla verði lögð á framúrskarandi þjónustu á lindex.is, þar sem sendingatíminn verði í mesta lagi tveir dagar. „Það sem er nýtt og spennandi er að viðskiptavinir geta verslað af fleiri vefsíðum S4S á sama tíma og fengið allt afgreitt saman í einni sendingu. Þú getur því keypt vörur af Lindex.is, Skor.is, Ellingsen.is og AIR.is og vörukörfurnar sameinast í eina fyrir viðskiptavininn. Þetta einfaldar verslunina til muna.“ Áfram verður boðið upp á dömufatnað, nærfatnað fyrir dömur og barnaföt. Tinna segir framtíðina bjarta fyrir Lindex á Íslandi og að S4S hyggist halda ótrautt áfram í því að setja viðskiptavininn í fyrsta sæti og bjóða upp á framúrskarandi þjónustu. Ýmsar hugmyndir eru á lofti varðandi frekari útbreiðslu. „Okkur langar að opna á Selfossi og erum að skoða möguleikana þar. Við sjáum fyrir okkur að opna samhliða Steinar Waage og Ellingsen, þannig að við þurfum nokkuð stórt og hentugt rými. Það væri mjög spennandi skref.“
Neytendur Verslun Tíska og hönnun Árborg Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira