Íslenskir barir skoða næturopnun á stórleikjum HM Freyja Þórisdóttir skrifar 21. febrúar 2026 16:30 Stuðningsmenn íslenska landsliðsins í fótbolta hittast líklega á Ölver til að fylgjast með beinni útsendingu HM karla í fótbolta í sumar. Vísir/Anton Brink Bareigendur eru farnir að velta fyrir sér næturopnun á meðan heimsmeistaramóti karla í knattspyrnu stendur næsta sumar. Sparkspekingar hér á landi þurfa að setja sig í stellingar vegna tímamismunar en mótið fer fram í Mexíkó, Kanada og Bandaríkjunum. Fyrir vikið hefjast sumir leikir þegar flestir eru farnir að sofa.
Bareigendur hér á landi hafa gefið sér tíma til að skoða dagskrá heimsmeistaramóts karla í fótbolta en margir leikjanna verða spilaðir utan opnunartíma íslenskra bara. Mótið hefst þann ellefta júní og stendur yfir í um fimm vikur. Róbert Örn Karlsson, starfsmaður Ölver sportbar, segir þau vera með ákveðnar dagsetningar á bakvið eyrað vegna HM karla í sumar.Vísir/Vilhelm Leikirnir fara fram víðs vegar í Norður-Ameríku en þeir eru spilaðir í sextán borgum í Kanada, Mexíkó og Bandaríkjunum. Þá verða sumir þeirra haldnir að kvöldi til á staðartíma en það þýðir að útsending hefst um hánótt á íslenskum tíma enda tímamismunurinn mikill. Leikur Argentínu, núverandi heimsmeistara, og Marokkó í riðlakeppni mótsins hefst til dæmis klukkan átta um kvöld þriðjudaginn tólfta júní á staðartíma. En þó að leikurinn sé á fínum tíma í Kansas hefst útsending ekki fyrr en klukkan er orðin tvö um nótt hér á Íslandi. Með ákveðnar dagsetningar á bakvið eyrað Róbert Örn Karlsson, starfsmaður á Ölver sportbar, segir í samtali við fréttastofu Vísis að þau séu með nokkrar dagsetningar í huga hvað varðar að lengja mögulega opnunartímann. Ölver er staðsettur í Glæsibæ en leikarinn og leikstjórinn Björn Hlynur er einn eiganda.Vísir/Vilhelm „Eins og er þá myndi ég telja mjög ólíklegt að við lengjum opnunartímann út frá mörgum þessum leikjum. Það eru einhverjir leikir í undanúrslitunum sem eru í kringum miðnætti, möguleikinn væri þá að hafa opið lengur ef þeir eru eftirsóttir. Það er til dæmis leikur þarna í fjögurra liða úrslitum, 12. júlí, sem við ætlum að hafa aðeins á bakvið eyrað og skoða betur þegar nær dregur,“ segir Róbert. Vilja taka tillit til fjölskyldufólks í hverfinu Hann bætir einnig við að þau þurfi að taka tillit til nærumhverfisins. Ölver sé staðsett í íbúahverfi og að þau muni hafa það í huga við ákvörðunartöku varðandi lengri opnunartíma. „Við reynum að virða umhverfið í kringum okkur auðvitað. Að hafa opið svona seint er erfiðara hérna, við erum meira í fjölskyldugeiranum,“ segir Róbert. Ekkert ákveðið enn á American bar Síðasta heimsmeistaramót var haldið í Katar árið 2022. Þá var þessu akkúrat öfugt snúið og leikirnir voru margir hverjir sýndir frekar snemma á íslenskum tíma eða um ellefu á morgnana. Staðir eins og American bar eru opnir lengi og ná oftar en ekki að dekka alla sýningartíma á helgum. Ingvar Svendsen, einn eigenda American bar, segist hlakka til að sjá hvernig stemmning myndast á útisvæðinu hjá þeim í sumar.Aðsend „Ég held að það verði ekkert það mikið að gera yfir nóttina í riðlakeppninni. Ef það verða stórir leikir þessa virku daga myndum við líklega sækja um undanþágu til að hafa opið lengur. En við erum ekkert búin að ákveða endanlega,“ segir Ingvar Svendsen einn eigenda American Bar. Hann bætir við að þau búist við miklum fjölda á stórleikina undir lok móts. „Við ætlum að sýna helstu leikina á stórum skjá úti og búa til smá stemmningu. Þetta er náttúrulega um hásumar,“ bætir Ingvar við að lokum.
Reykjavík HM 2026 í fótbolta Neytendur Bíó og sjónvarp Næturlíf Veitingastaðir Mest lesið Hafþór Júlíus misnotað lyf síðustu átján ár Sport Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Enski boltinn Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Íslenski boltinn Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Enski boltinn Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Formúla 1 Bruno bætti metið eða hvað? Enski boltinn Vestri gæti mætt stórveldi á Þróttarvelli Fótbolti Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Fótbolti Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Íslenski boltinn Versta byrjun í sögu FH Íslenski boltinn Fleiri fréttir Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Erfiður dagur á skrifstofunni Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Vestri gæti mætt stórveldi á Þróttarvelli Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Orri á skotskónum Kane með þrennu í úrslitaleik Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Barcelona Evrópumeistari Guðrún vann Íslendingaslaginn og Kristianstad í brasi Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Skikkaðir í einangrun fram að HM Benítez rekinn eftir 40 leiki Spilar sinn síðasta leik í dag Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Slæm stjórnartíð Steve Cooper tekur enda Uppgjörið: Breiðablik - KR 6-3 | Kennslustund í Kópavogi „Ef vængirnir eru úr vaxi þá bráðna þeir“ Sjá meira