Segist hafa rætt tvisvar við prinsinn í gini ljónsins Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 20. febrúar 2026 13:42 Ólafur Ragnar Grímsson fór mikinn á Davos ráðstefnunni árið 2010 vegna Icesave málsins. Vísir/Vilhelm Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti Íslands segist hafa rætt í tvígang við Andrew fyrrverandi Bretaprins í Davos í Sviss árið 2010. Í bæði skiptin hafi hann rætt við hann um hagsmuni Íslands og sjónarmið í Icesave deilunni og í bæði skiptin innan um annað fólk. Hann segir samskiptunum ítarlega lýst í bóki sinni, Þjóðin og valdið sem kom út árið 2024. Prinsinn fyrrverandi var handtekinn í gær vegna gruns um að hann hafi nýtt sér stöðu sem erindreki bresks viðskiptalífs árið 2010 og lekið trúnaðargögnum til vina sinna í bankageiranum. Breska blaðið Telegraph greindi frá því að meðal þess væri minnisblað frá breska fjármálaráðuneytinu um stöðu mála vegna Icesave deilunnar sem prinsinn hafi áframsent á félaga sinn. Kemur fram í tölvupóstsamskiptum ritara prinsins fyrrverandi að prinsinn hafi rætt við forsætisráðherra Íslands í Davos í Sviss það árið. Ljóst er að þar er ruglast og átt við forseta Íslands enda var Ólafur Ragnar Grímsson á fundinum en ekki Jóhanna Sigurðardóttir þáverandi forsætisráðherra. Óskaði Andrew í kjölfar fundarins með Ólafi eftir uppfærðu minnisblaði um stöðu mála milli Bretlands og Íslands. Áframsendi hann það svo á félaga sinn Jonathan Rowland þáverandi forstjóra Banque Havilland sem hafði nýlega keypt eignir af Kaupþingi eftir bankahrun. Hafi rætt við Andrew í gini ljónsins „Ég veit nú ekkert um tölvupósta Andrew en ég fór til Davos í janúar 2010 til þess að verja málstað Íslands þegar Icesave deilan var í hámæli og hitta þar fjölda manna og þessum samtölum og viðburðum er ítarlega lýst í bók sem ég gaf út fyrir einu og hálfu ári síðan í sérstökum kafla ef ég man rétt,“ segir Ólafur Ragnar í samtali við Vísi. „Meðal annars fór ég í stórt samkvæmi sem breska sendinefndin hélt til þess að fara bara beint í gin ljónsins og ræða við breska forystumenn um málstað Íslands og hitti þar meðal annars Alistair Darling sem þá var fjármálaráðherra og einn af andstæðingum Íslands í þessu máli. Gestgjafinn var Andrew prins sem þá var sérstakur fulltrúi Breta og er þessum viðburði ítarlega lýst í bókinni minni, þannig þetta er ekki búið að vera neitt leyndarmál nema síður sé.“ Úr bók Ólafs Ragnars, Þjóðin og valdið, bls. 237:Við Dorrit fórum um kvöldið 28.1. í móttöku sem hertoginn af York, Andrew prins, hélt fyrir hönd Bretlands, en við þekkjum hann vel. Þegar við komum inn var Andrew að halda ræðu. Stóðum við Dorrit innan við dyrnar. Stuttu síðar kom Alistair Darling og stóð rétt hjá okkur. Þegar Andrew var búinn með ræðuna ákvað ég að heilsa AD: „Chancellor, nice to see you!“ Hann tók því vel en nokkuð þurrlega, sagðist vita hver ég væri, hefði séð mig á Newsnight. Þegar ég sagði að vonandi fyndist lausn á deilunum sagði hann: „You know about the meeting in the Hague tomorrow with all the party leaders,“ og sagðist vona að sá fundur yrði constructive! Hélt uppi málstað Íslands Ólafur segist hafa rætt við prinsinn tvívegis og þá innan um annað fólk. Þar hafi hann fyrst og fremst nefnt málstað Íslands og að Bretar hefðu engan lagalegan rétt til að ganga fram í Icesave málinu eins og þeir hafi gert á þessum tíma. „Ég ræddi það ekki bara við hann heldur marga aðra eins og legið hefur fyrir í nokkurn tíma opinberlega á Íslandi. Svo veit ég ekkert hvað hann gerði eftir þetta, ég hef enga hugmynd um það.“ Úr bók Ólafs Ragnars, Þjóðin og valdið bls. 238:Nefndi líka að sökin lægi að hluta hjá okkur að hafa ekki farið með málið á top political level. Fyrri forsætisráðherra Íslands hefði verið of shell shocked eftir hrunið og sú sem væri núna talaði ekki ensku og væri ekki vön alþjóðlegum vettvangi. PM tók þessu afar vel og sagðist hafa móttekið skilaboðin. Hann var svo afar vinsamlegur við mig þegar við hittumst á fundum næstu daga. Ég tók sérstaklega í höndina á honum þegar við stóðum úti eftir eitt boðið og Dorrit var að setja fæturna upp á öxl mína til að sýna hvað hún væri fim! PM meðtók greinilega skilaboðin og fannst þetta vera fín operation hjá mér: að mæta hjá Andrew og tala svona við þá! Andrew prins sagði við mig þegar ég hitti hann næsta dag, þar sem hann var að tala við Hákon, krónprins Noregs, að ef hann gæti hjálpað til við að leysa deiluna þá væri hann tilbúinn til þess! Þetta var allt mjög merkilegt. Skilaboð inn í innsta hring bresku ríkisstjórnarinnar!” Ólafur er nú staddur í San Francisco í stífum fundarhöldum meðal annars vegna Hringborðs Norðurslóða sem fram fer í Róm í byrjun mars auk þess sem Ólafur er nýkominn af árlegri öryggisráðstefnu í Munchen. Hann segist þannig ekki hafa haft tíma til að fylgjast fylgst með máli fyrrverandi prinsins öðruvísi en rétt í fréttum. „Eftir því sem ég hef lesið, án þess að vita nokkuð meira, þá hefur hann beðið um einhverjar upplýsingar frá bresku ríkisstjórninni og sent þær áfram til einhverra manna sem ég veit ekkert um, en það byggist ekkert á því sem ég sagði, ég var bara að koma því á framfæri við hann að allar aðgerðir og málflutningur Breta væru ólöglegar og ósanngjarn og ætti ekki rétt á sér, vegna þess að ég taldi mikilvægt eins og ég gerði í samtali við aðra ráðamenn að koma röksemdum Íslendinga á framfæri, en hvaða upplýsingar hann svo fékk frá breskum stjórnvöldum hef ég ekki hugmynd um.“ Mál Andrésar prins Icesave Ólafur Ragnar Grímsson Tengdar fréttir Ólafur Ragnar í Davos: Engir Icesave fundir, en.... Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands segir að uppsveifla hefjist á Íslandi fyrr en áætlanir gerðu ráð fyrir. Hann er nú staddur Í Davos í Sviss þar sem áhrifamestu menn heimsins í stjórnmálum og viðskiptum funda. 27. janúar 2010 17:16 Ólafur Ragnar í Davos: Ísland í betri stöðu en nokkur þorði að vona Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands segir að efnahagskerfi Íslands sé á mun hraðari batavegi en nokkur þorði að vona. Ólafur Ragnar er staddur í Davos þar sem árleg ráðstefna World Economic Forum fer nú fram. 28. janúar 2011 10:16 Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Erlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Fleiri fréttir Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Danir sigurvegarar og ofurfólk í Heiðmörk Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Sjá meira
Prinsinn fyrrverandi var handtekinn í gær vegna gruns um að hann hafi nýtt sér stöðu sem erindreki bresks viðskiptalífs árið 2010 og lekið trúnaðargögnum til vina sinna í bankageiranum. Breska blaðið Telegraph greindi frá því að meðal þess væri minnisblað frá breska fjármálaráðuneytinu um stöðu mála vegna Icesave deilunnar sem prinsinn hafi áframsent á félaga sinn. Kemur fram í tölvupóstsamskiptum ritara prinsins fyrrverandi að prinsinn hafi rætt við forsætisráðherra Íslands í Davos í Sviss það árið. Ljóst er að þar er ruglast og átt við forseta Íslands enda var Ólafur Ragnar Grímsson á fundinum en ekki Jóhanna Sigurðardóttir þáverandi forsætisráðherra. Óskaði Andrew í kjölfar fundarins með Ólafi eftir uppfærðu minnisblaði um stöðu mála milli Bretlands og Íslands. Áframsendi hann það svo á félaga sinn Jonathan Rowland þáverandi forstjóra Banque Havilland sem hafði nýlega keypt eignir af Kaupþingi eftir bankahrun. Hafi rætt við Andrew í gini ljónsins „Ég veit nú ekkert um tölvupósta Andrew en ég fór til Davos í janúar 2010 til þess að verja málstað Íslands þegar Icesave deilan var í hámæli og hitta þar fjölda manna og þessum samtölum og viðburðum er ítarlega lýst í bók sem ég gaf út fyrir einu og hálfu ári síðan í sérstökum kafla ef ég man rétt,“ segir Ólafur Ragnar í samtali við Vísi. „Meðal annars fór ég í stórt samkvæmi sem breska sendinefndin hélt til þess að fara bara beint í gin ljónsins og ræða við breska forystumenn um málstað Íslands og hitti þar meðal annars Alistair Darling sem þá var fjármálaráðherra og einn af andstæðingum Íslands í þessu máli. Gestgjafinn var Andrew prins sem þá var sérstakur fulltrúi Breta og er þessum viðburði ítarlega lýst í bókinni minni, þannig þetta er ekki búið að vera neitt leyndarmál nema síður sé.“ Úr bók Ólafs Ragnars, Þjóðin og valdið, bls. 237:Við Dorrit fórum um kvöldið 28.1. í móttöku sem hertoginn af York, Andrew prins, hélt fyrir hönd Bretlands, en við þekkjum hann vel. Þegar við komum inn var Andrew að halda ræðu. Stóðum við Dorrit innan við dyrnar. Stuttu síðar kom Alistair Darling og stóð rétt hjá okkur. Þegar Andrew var búinn með ræðuna ákvað ég að heilsa AD: „Chancellor, nice to see you!“ Hann tók því vel en nokkuð þurrlega, sagðist vita hver ég væri, hefði séð mig á Newsnight. Þegar ég sagði að vonandi fyndist lausn á deilunum sagði hann: „You know about the meeting in the Hague tomorrow with all the party leaders,“ og sagðist vona að sá fundur yrði constructive! Hélt uppi málstað Íslands Ólafur segist hafa rætt við prinsinn tvívegis og þá innan um annað fólk. Þar hafi hann fyrst og fremst nefnt málstað Íslands og að Bretar hefðu engan lagalegan rétt til að ganga fram í Icesave málinu eins og þeir hafi gert á þessum tíma. „Ég ræddi það ekki bara við hann heldur marga aðra eins og legið hefur fyrir í nokkurn tíma opinberlega á Íslandi. Svo veit ég ekkert hvað hann gerði eftir þetta, ég hef enga hugmynd um það.“ Úr bók Ólafs Ragnars, Þjóðin og valdið bls. 238:Nefndi líka að sökin lægi að hluta hjá okkur að hafa ekki farið með málið á top political level. Fyrri forsætisráðherra Íslands hefði verið of shell shocked eftir hrunið og sú sem væri núna talaði ekki ensku og væri ekki vön alþjóðlegum vettvangi. PM tók þessu afar vel og sagðist hafa móttekið skilaboðin. Hann var svo afar vinsamlegur við mig þegar við hittumst á fundum næstu daga. Ég tók sérstaklega í höndina á honum þegar við stóðum úti eftir eitt boðið og Dorrit var að setja fæturna upp á öxl mína til að sýna hvað hún væri fim! PM meðtók greinilega skilaboðin og fannst þetta vera fín operation hjá mér: að mæta hjá Andrew og tala svona við þá! Andrew prins sagði við mig þegar ég hitti hann næsta dag, þar sem hann var að tala við Hákon, krónprins Noregs, að ef hann gæti hjálpað til við að leysa deiluna þá væri hann tilbúinn til þess! Þetta var allt mjög merkilegt. Skilaboð inn í innsta hring bresku ríkisstjórnarinnar!” Ólafur er nú staddur í San Francisco í stífum fundarhöldum meðal annars vegna Hringborðs Norðurslóða sem fram fer í Róm í byrjun mars auk þess sem Ólafur er nýkominn af árlegri öryggisráðstefnu í Munchen. Hann segist þannig ekki hafa haft tíma til að fylgjast fylgst með máli fyrrverandi prinsins öðruvísi en rétt í fréttum. „Eftir því sem ég hef lesið, án þess að vita nokkuð meira, þá hefur hann beðið um einhverjar upplýsingar frá bresku ríkisstjórninni og sent þær áfram til einhverra manna sem ég veit ekkert um, en það byggist ekkert á því sem ég sagði, ég var bara að koma því á framfæri við hann að allar aðgerðir og málflutningur Breta væru ólöglegar og ósanngjarn og ætti ekki rétt á sér, vegna þess að ég taldi mikilvægt eins og ég gerði í samtali við aðra ráðamenn að koma röksemdum Íslendinga á framfæri, en hvaða upplýsingar hann svo fékk frá breskum stjórnvöldum hef ég ekki hugmynd um.“
Úr bók Ólafs Ragnars, Þjóðin og valdið, bls. 237:Við Dorrit fórum um kvöldið 28.1. í móttöku sem hertoginn af York, Andrew prins, hélt fyrir hönd Bretlands, en við þekkjum hann vel. Þegar við komum inn var Andrew að halda ræðu. Stóðum við Dorrit innan við dyrnar. Stuttu síðar kom Alistair Darling og stóð rétt hjá okkur. Þegar Andrew var búinn með ræðuna ákvað ég að heilsa AD: „Chancellor, nice to see you!“ Hann tók því vel en nokkuð þurrlega, sagðist vita hver ég væri, hefði séð mig á Newsnight. Þegar ég sagði að vonandi fyndist lausn á deilunum sagði hann: „You know about the meeting in the Hague tomorrow with all the party leaders,“ og sagðist vona að sá fundur yrði constructive!
Úr bók Ólafs Ragnars, Þjóðin og valdið bls. 238:Nefndi líka að sökin lægi að hluta hjá okkur að hafa ekki farið með málið á top political level. Fyrri forsætisráðherra Íslands hefði verið of shell shocked eftir hrunið og sú sem væri núna talaði ekki ensku og væri ekki vön alþjóðlegum vettvangi. PM tók þessu afar vel og sagðist hafa móttekið skilaboðin. Hann var svo afar vinsamlegur við mig þegar við hittumst á fundum næstu daga. Ég tók sérstaklega í höndina á honum þegar við stóðum úti eftir eitt boðið og Dorrit var að setja fæturna upp á öxl mína til að sýna hvað hún væri fim! PM meðtók greinilega skilaboðin og fannst þetta vera fín operation hjá mér: að mæta hjá Andrew og tala svona við þá! Andrew prins sagði við mig þegar ég hitti hann næsta dag, þar sem hann var að tala við Hákon, krónprins Noregs, að ef hann gæti hjálpað til við að leysa deiluna þá væri hann tilbúinn til þess! Þetta var allt mjög merkilegt. Skilaboð inn í innsta hring bresku ríkisstjórnarinnar!”
Mál Andrésar prins Icesave Ólafur Ragnar Grímsson Tengdar fréttir Ólafur Ragnar í Davos: Engir Icesave fundir, en.... Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands segir að uppsveifla hefjist á Íslandi fyrr en áætlanir gerðu ráð fyrir. Hann er nú staddur Í Davos í Sviss þar sem áhrifamestu menn heimsins í stjórnmálum og viðskiptum funda. 27. janúar 2010 17:16 Ólafur Ragnar í Davos: Ísland í betri stöðu en nokkur þorði að vona Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands segir að efnahagskerfi Íslands sé á mun hraðari batavegi en nokkur þorði að vona. Ólafur Ragnar er staddur í Davos þar sem árleg ráðstefna World Economic Forum fer nú fram. 28. janúar 2011 10:16 Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Erlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Fleiri fréttir Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Danir sigurvegarar og ofurfólk í Heiðmörk Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Sjá meira
Ólafur Ragnar í Davos: Engir Icesave fundir, en.... Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands segir að uppsveifla hefjist á Íslandi fyrr en áætlanir gerðu ráð fyrir. Hann er nú staddur Í Davos í Sviss þar sem áhrifamestu menn heimsins í stjórnmálum og viðskiptum funda. 27. janúar 2010 17:16
Ólafur Ragnar í Davos: Ísland í betri stöðu en nokkur þorði að vona Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands segir að efnahagskerfi Íslands sé á mun hraðari batavegi en nokkur þorði að vona. Ólafur Ragnar er staddur í Davos þar sem árleg ráðstefna World Economic Forum fer nú fram. 28. janúar 2011 10:16