Þórdís gerði gömlu félögunum grikk og endurkoma hjá Þrótturum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. febrúar 2026 18:38 Mark Þórdísar Hrannar Sigfúsdóttur skildi Víking og Val að. vísir/diego Víkingur er með fullt hús stiga á toppi riðils 2 í Lengjubikar kvenna í fótbolta eftir 1-0 sigur á Val í dag. Þróttur kom til baka og vann FH, 3-2, í riðli 1.
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir skoraði eina mark leiksins á 73. mínútu. Hún kom til Víkings frá Val fyrir síðasta tímabil. Þórdís lék um þriggja ára skeið með Val. Víkingur er með sex stig á toppi riðils 2 og markatöluna 8-0 eftir tvo leiki. Valur er í 2. sætinu, einnig með sex stig. Í hinum leik dagsins í riðli 2 skildu Fram og ÍBV jöfn, 1-1. Una Rós Unnarsdóttir kom Frömurum yfir eftir klukkutíma leik en Milena Mihaela Patru jafnaði fyrir Eyjakonur ellefu mínútum fyrir leikslok. ÍBV og Fram eru bæði með eitt stig í riðli 2. FH komst í 0-2 gegn Þrótti eftir aðeins sextán mínútna leik. Birna Kristín Björnsdóttir og Hrönn Haraldsdóttir skoruðu mörk FH-inga sem enduðu í 2. sæti í deild og bikar í fyrra. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir og stöllur hennar í Þrótti fara vel af stað í Lengjubikarnum.vísir/diego Þrátt fyrir slæma byrjun gáfust Þróttarar ekki upp. Björg Gunnlaugsdóttir minnkaði muninn í 1-2 á 59. mínútu og tíu mínútum síðar jafnaði Kayla Rollins, 2-2. Þórdís Nanna Ágústsdóttir skoraði svo sigurmark Þróttar þremur mínútum fyrir leikslok. Þróttur er með sex stig í riðli 2, líkt og Stjarnan sem rúllaði yfir FHL í Fjarðabyggðarhöllinni, 0-12. Úlfa Dís Úlfarsdóttir Kreye skoraði þrennu fyrir Stjörnukonur og Snædís María Jörundsdóttir, Birna Jóhannsdóttir og Hrefna Jónsdóttir tvö mörk hver. Jana Sól Valdimarsdóttir, Ásthildur Lilja Atladóttir og Anna Katrín Ólafsdóttir voru einnig á meðal markaskorara hjá Garðbæingum í dag. Þá sigraði Þór/KA Grindavík/Njarðvík, 1-0, í Boganum á Akureyri. Hin bráðefnilega Bríet Fjóla Bjarnadóttir skoraði eina mark leiksins á 10. mínútu. Þetta var fyrsti sigur Akureyringa í Lengjubikarnum en fyrsta tap Suðurnesjakvenna.
Lengjubikar kvenna Víkingur Reykjavík Valur Fram ÍBV Þróttur Reykjavík FH FHL Stjarnan Þór Akureyri KA UMF Grindavík UMF Njarðvík Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira