Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 22. febrúar 2026 14:19 Bandaríkjaforseti á setrið Mar-a-lago í Flórída-fylki. Getty Austin Martin, 21 árs gamall karlmaður, var skotinn til bana í Mar-a-Lago, sveitaklúbbi og heimili í eigu Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, af fulltrúum lögreglu og Lífvarðarsveit forsetans. Hann var vopnaður og hafði smyglað sér inn fyrir hliðið umhverfis bygginguna.
Atvikið átti sér stað klukkan hálf sjö í morgun á íslenskum tíma samkvæmt BBC sem greinir frá. Fulltrúar lífvarðarsveitar forsetans segjast hafa séð til mannsins við norðurhlið hússins, fyrir innan hliðið við bygginguna, með það sem leit út fyrir að vera haglabyssa og gaskútur. Ric Bradshaw, lögreglustjórinn í Palm Beach, staðfestir þessa frásögn á blaðamannafundi. Hann lýsir því hvernig fulltrúar lögreglunnar og lífvarðrarveitarinnar hafi farið til að ræða við manninn og skipað honum að leggja frá sér báða hlutina. Maðurinn lagði frá sér gaskútinn en mundaði haglabyssuna. Vegna þessa skutu fulltrúar lögreglunnar og lífvarðarsveitarinnar manninn. Ekki liggur fyrir hversu mörgum skotum var skotið. Þá liggur ekki fyrir hvort skotfæri hafi verið í haglabyssunni. Hann var úrskurðaður látinn á vettvangi. Samkvæmt umfjöllun Sky News var sá látni frá Norður-Karólínu-fylki og hafði verið tilkynntur til lögreglu sem týndur. Uppfært 16:38: Lögreglan hefur greint frá að maðurinn hét Austin Martin og var 21 árs gamall frá Norður-Karólínu-fylki. Hér má sjá hvar Mar-a-Lago er. Anthony Guglielmi, fulltrúi lífvarðarsveitarinnar, sagði að grunur væri um að hann hefði yfirgefið fylkið og keypt byssu á leiðinni til Flórída. Kassinn utan um byssuna fannst í ökutæki mannsins. Hann hafði keyrt í gegnum hliðið inn í Mar-a-Lago á sama tíma og öðru ökutæki var keyrt út. Alríkislögreglan fer með rannsókn málsins og óskar eftir því að íbúar í nágrenni hússins skoði myndefni úr öryggismyndavélum. Trump ver gjarnan helgunum sínum þar og spilar golf. Hann og Melania Trump forsetafrú voru hins vegar í Hvíta húsinu í nótt. Klúbburinn er í Flórída-fylki í Bandaríkjunum. Þann 13. júlí 2024 reyndi Thomas Matthew Crooks að skjóta Trump til bana en hæfði hann í hægra eyrað. Þann 15. september 2024 var Ryan Weseley Routh handtekinn grunaður um banatilræði gegn Donald Trump á golfvelli hans í Flórída. Fréttin hefur verið uppfærð.
Bandaríkin Donald Trump Skotárásir í Bandaríkjunum Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira