Reynslan skiptir máli – við þurfum að meta hana af sanngirni Edda Jóhannesdóttir skrifar 24. febrúar 2026 13:31 Í íslensku samfélagi eru fjölmargir sem hafa byggt upp mikla þekkingu og færni í starfi án þess að hafa lokið formlegu námi. Þetta er fólk sem hefur lagt sitt af mörkum á vinnumarkaði árum saman, oft í krefjandi störfum, en stendur samt frammi fyrir því að skorta „réttu pappírana“. Ástæður þess að fólk fer ekki hefðbundna námsleið eru margar og vel þekktar. Fjárhagsstaða, fjölskylduaðstæður, tímaleysi eða einfaldlega skortur á áhuga á skóla á ákveðnu skeiði ævinnar. Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að fólk lærir gríðarlega mikið í starfi. Sú þekking hverfur ekki þótt hennar hafi ekki verið aflað í skólastofu. Raunfærnimat byggir á einfaldri en mikilvægri hugmynd: að reynsla og færni sem aflað er í starfi eigi að teljast með þegar fólk sækir sér frekara nám. Fyrir marga getur það skipt sköpum að þurfa ekki að byrja alveg frá byrjun, heldur fá viðurkenningu á því sem maður kann nú þegar. Það gerir námið auðveldara, sérstaklega fyrir þá sem hafa verið lengi frá skóla og bera ábyrgð á fjölskyldu og vinnu. Ég hef séð hvernig slíkt mat getur haft djúpstæð áhrif á einstaklinga. Margir ganga inn í ferlið með litlar væntingar, jafnvel vantrú á eigin getu. En þegar færnin er sett í orð og metin formlega breytist sjálfsmyndin. Sjálfstraust eykst, áhugi á áframhaldandi námi kviknar og fólk sér nýja möguleika sem áður virtust lokaðir. Ávinningurinn er ekki aðeins persónulegur heldur samfélagslegur. Þegar við nýtum þá þekkingu sem þegar er til staðar, í stað þess að hunsa hana, styrkjum við fagmennsku, gæði starfa og stöðu fólks á vinnumarkaði. Við sendum jafnframt skýr skilaboð um að nám sé ekki einsleitt ferli sem allir verða að fara á sama tíma og á sama hátt. Raunfærnimat er ekki afsláttur af námi. Það er sanngjörn viðurkenning á því að fólk lærir á mismunandi hátt og á ólíkum tímum ævinnar. Dæmin sýna að margir sem fá reynslu sína metna halda áfram í formlegt nám, ljúka prófum og ná markmiðum sem þeir töldu áður óraunhæf. Að lokum langar mig að nefna dæmi um einstakling sem hafði unnið lengi í sinni faggrein án þess að ljúka námi. Hann hafði gefist upp á skóla snemma á lífsleiðinni og sannfært sjálfan sig um að það skipti í raun engu máli. Þegar hann loks lét verða af því að láta meta reynslu sína kom í ljós að hann var mun nær markmiðinu en hann hélt. Þegar sveinsprófið var í höfn sagði hann að stærsta breytingin hefði ekki verið í starfinu heldur í honum sjálfum. Hann hafði loksins látið draum sinn rætast – fyrir sjálfan sig. Ef við ætlum að tala af alvöru um ævilangt nám og jafna stöðu fólks á vinnumarkaði verðum við að viðurkenna gildi reynslunnar. Hún skiptir máli – og hún á skilið að vera metin. Höfundur er náms- og starfsráðgjafi og deildarstjóri í Iðunni fræðslusetri Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Vinnumarkaður Mest lesið Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Skoðun Vefurinn kom á undan félaginu Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Macklemore, Robert Kraft og sniðganga fyrir Palestínu Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar Skoðun „Við ætlum að læra af þessu“ – enn einu sinni! Davíð Bergmann skrifar Skoðun Af hverju ég elska Ísland Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Hugleiðing á degi náttúrunnar Kolbrún Haraldsdóttir skrifar Sjá meira
Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun