Reykjadalur fær ekki styrki og fellir niður hluta starfsins Árni Sæberg skrifar 24. febrúar 2026 15:22 Ráðuneyti þeirra Ingu Sæland og Ragnars Þórs Ingólfssonar hafa stutt verkefnin undanfarin ár en nú hefur orðið breyting á. Vísir Gló stuðningsfélag hefur ekki fengið áframhaldandi styrki til aukaverkefna á vegum Reykjadals fyrir næstkomandi sumar. Ekkert verður því af svokölluðum Ævintýrabúðum og Vinahópum í sumar.
Í tilkynningu þess efnis á vef Glóar segir að síðastliðin sex ár hafi félagið rekið tvö stór verkefni að frumkvæði stjórnvalda. Þetta séu annars vegar svokallaðar Ævintýrabúðir fyrir börn og unglinga með stuðningsþarfir tengdar ADHD, einhverfu og/eða andlegum áskorunum. Sumarbúðirnar hafi verið styrktar af mennta- og barnamálaráðuneytinu. Þær voru fyrst um sinn í Háholti í Skagafirði en síðar í Hlíðardalsskóla í Ölfusi. Hins vegar sé um að ræða verkefni styrkt af félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, svokallaða Vinahópa Reykjadals, sem sé sumardvöl og tómstundaúrræði fyrir ungt fatlað fólk á aldrinum 20 til 30 ára. Engin svör fengist Þessi verkefni hafi bæði hafist í covid-19 faraldrinum og verið ætlað að rjúfa félagslega einangrun ungs fatlaðs fólks og styðja fjölskyldur á erfiðum tímum. Í ljós hafi komið að mikil eftirspurn var eftir þjónustunni eftir að faraldrinum lauk og því hafi hafa styrkir verið framlengdir ár frá ári. „Nú er svo komið að ekki hafa fengist svör frá ráðuneytunum um að halda verkefnunum áfram og því ekki forsendur til að halda þjónustunni áfram að svo stöddu og tími til undirbúnings fyrir næsta sumar á þrotum.“ Hefðbundin starfsemi í sumarbúðunum í Reykjadal verði óbreytt en nú hafi um 250 börn með þroska- og/eða hreyfihömlun á aldrinum 8 til 19 ára, sótt um dvöl næsta sumar. Félagið muni vegna þessara aðstæðna sem upp eru komnar, bjóða aukalega upp á dvöl fyrir gesti á aldrinum 20 til 21 árs (árgangar 2005 og 2006) næsta sumar og leita jafnframt leiða til að bjóða uppá styttri viðburði og heimsóknir í Reykjadal fyrir þau sem eldri eru og það verði fjármagnað með söfnunarfé félagsins. Reiðarslag fyrir gesti „Við vitum að þetta er mikið reiðarslag fyrir okkar góðu gesti og fjölskyldur þeirra. Tækifærin sem bjóðast til að taka þátt í félagslífi af þessu tagi eru fá og háð stuðningi sem einnig er oft af skornum skammti. Það er því veruleg hætta á félagslegri einangrun og einmanaleika.“ Stjórn félagsins skori á stjórnvöld að huga vel að þessum viðkvæmu hópum barna og ungs fólks sem fari oftar en ekki á mis við tækifæri sem flestum þyki sjálfsögð og eigi ríkan þátt í að móta hamingju- og innihaldsríkt líf, að taka þátt með jafnöldrum, tilheyra vinahópi og upplifa skemmtilegar og uppbyggjandi stundir með þeim. Félagið sé nú sem fyrr reiðubúið að leggja sitt lóð á vogarskálarnar en það dugi því miður skammt án stuðnings frá hinu opinbera. „Við höfum alltaf fundið fyrir velvilja, bæði í ráðuneytunum og úti í samfélaginu, og trúum því að fundin verði farsæl lausn til framtíðar í anda samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem hefur nú öllum til heilla verið bundinn í lög.“
Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira