Yrði glaður að fá Ísland í ESB: Atkvæðagreiðsla á næstu mánuðum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 25. febrúar 2026 18:11 Kristrún Frostadóttir og Donald Tusk. EPA Forsætisráðherra Póllands talaði ítrekað fyrir því að Ísland myndi ganga í Evrópusambandið á sameiginlegum blaðamannafundi hans með Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra Íslands. Hún ítrekaði að ákvörðun um áframhaldandi viðræður við ESB ættu eftir að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún tók fram að atkvæðagreiðslan verði á næstu mánuðum.
Á leiðinni heim frá Úkraínu stoppaði Kristrún í Varsjá, höfuðborg Póllands, og fundaði þar með Tusk. Í kjölfar fundarins héldu þau sameiginlegan blaðamannafund þar sem til umræðu var Evrópusambandið og Tusk tók fyrst til máls, þakkaði Kristrúnu fyrir komuna og ítrekaði hversu gott samband Ísland og Pólland ættu. Forsvarsmenn landanna væru sammála um grunngildin hvað varðar aðstoð við Úkraínu og mikilvægi þess. Hann þakkaði einnig Íslendingum fyrir að taka við pólskum ríkisborgurum sem hafa flutt til Íslands. Tusk sneri síðan máli sínu að Evrópusambandinu. „Ég yrði mjög glaður ef Ísland, Noregur og önnur lönd í Evrópu myndu verða hluti af sama ríkjaveldi og Pólland.“ Tusk ítrekaði mikilvægi Íslands og sagðist tala fyrir mögulegum samrunaviðræðum Íslendinga við sambandið. Hann greip líka tækifærið og skaut á sinn eigin forseta en þeir koma frá sitthvorri fylkingunni, Tusk talar frekar fyrir nánara samstarfi við önnur lönd á meðan Karol Nawrocki, forseti Póllands, er heldur þjóðernissinnaðri. Íslendingar fái valið Kristrún kom einnig inn á fjölda pólskra ríkisborgara sem búa hér á landi, en þeir eru tæplega þrjátíu þúsund. „Ég er að koma frá Kiev en þetta er líka mikilvæg heimsókn til að styrkja tengslin milli Póllands og Íslands,“ segir hún. Hún segir komu pólskra ríkisborgara til landsins vera sögu velgengis og nefnir að uppáhaldsleikskólakennari dóttur hennar sé pólskur. Þá hefur pólska samfélagið á Íslandi aðlagast vel samfélaginu en einnig haldið í sína menningu. Kristrún talaði einnig fyrir nánara samstarfi við Atlantshafsbandalagsríkin og nefnir að á næstu mánuðum muni Íslendingar greiða atkvæði um hvort halda eigi áfram viðræðum við Evrópusambandið. „Við erum ekki búin að velja daginn en á næstu mánuðum munum við halda þjóðaratkvæðagreiðslu,“ sagði Kristrún. Evrópusambandið geti verið tækifæri fyrir Ísland sem hafi upp á margt að bjóða, til að mynda endurnýtanlega orku, gott heilbriðgiskerfi og góð gildi. Þá sé það kostur að Ísland eigi ekki landamæri að öðru landi. Þá sé það mikilvægt að Evrópusambandsríkin viti að Ísland sé sitt eigið land. „Við munum hlusta á það sem Íslendingar vilja gera en það er gott að heyra að löndin í Evrópu haldi áfram að vera einstök lönd þrátt fyrir að þau gangi í Evrópusambandið.“ Hafi mikla þekkingu á Íslandi Samúel Karl Ólason, blaðamaður Vísis, er á staðnum og ræddi við Kristrúnu að loknum fundinum. Hann spurði út í orð Tusk um mögulegar viðræður Íslands við Evrópusambandið. „Donald hefur aðallega áhuga á Íslandi myndi ég segja. Hann hefur greinilega mikla þekkingu á íslenskri þjóðarsál og mér fannst bara mjög áhugavert og í rauninni fréttnæmt að maður eins og hann sem hefur verið svo hátt settur innan Evrópusambandsins, hafi skilning á sérstöðu Íslands og ég held að það sé eitthvað sem hljóti að sitja eftir,“ segir hún. Í gær var Kristrún í höfuðborg Úkraínu þar sem hún var viðstödd minningarathöfn, nákvæmlega fjórum árum eftir að Rússar réðust inn í landið. „Ég myndi segja að það sem helst stendur upp úr varðandi gærdaginn er að við erum að fara inn í fimmta ár þessa stríðs og það er enn þá mjög mikil samstaða með Úkraínumönnum.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Evrópusambandið Pólland Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Fleiri fréttir Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Sjá meira