Dóru Björt hafnað: „Nú eru kaflaskil“ Agnar Már Másson skrifar 26. febrúar 2026 19:55 Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi færði sig yfir í Samfylkinguna í haust og vonaðist eftir því að fá sæti á lista flokksins. Það hlaut hún ekki. Vísir/Vilhelm Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi og fyrrverandi Pírati, segir komið að kaflaskilum hjá sér eftir að henni var hafnað á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Listi Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í maí var samþykktur á fundi fulltrúaráðs flokksins í dag. Dóra Björt fékk ekki sæti en hún hafði sótt eftir 3. til 4. sæti í prófkjöri flokksins í janúar, en fékk ekki brautargengi þar heldur. „Viðmið uppstillingarnefndar um breiða samstöðu um skipanir ofarlega á lista gagnast frekar óumdeildara fólki,“ skrifar Dóra Björt á Facebook, sem segist virða niðurstöurnar. „Í mínum huga er það hvalreki að Regína Ásvaldsdóttir vermi 7. sætið, sá reynslumikli og öflugi leiðtogi,“ skrifar hún en Regína er bæjarstjóri Mosfelssbæjar. Dóra kveðst engu að síður stolt af sínum störfum sem borgarfulltrúi. „Mér þótti vænt um að mælast nýverið sem einn vinsælasti borgarfulltrúinn, þrátt fyrir oft á tíðum óvægna umfjöllun,“ skrifar hún einnig. Hún segist hafa lagt sig fram um að útskýra, fræða og skapa meiri sátt, með því að víkja sér ekki undan að svara fyrir erfið mál og setja með því andlit á kerfið. „Það leiddi til þess að ég varð andlit umdeildasta máls kjörtímabilsins, að ósekju. En svona er pólitíkin,“ segir hún, væntanlega með vísan til Græna gímaldsins svokallaða við Álfabakka. „Skipulagsmálin eru auk þess það umdeildasta sem við fáumst við. Allir hafa á þeim skoðun.“ Hún segir nú komið að kaflaskilum hjá sér eftir að hafa unnið í borgarstjórn í átta ár. „Ég hef samið með góðum árangri um þrjá meirihluta. Gegnt formennsku í fimm ráðum og nefndum, tveimur stjórnarformennskum og komið að því að stýra gerð sjö fjárhagsáætlana, þar á meðal í gegnum heimsfaraldur,“ skrifar hún. „Nú eru kaflaskil. Ný ævintýri og ný tækifæri til að vaxa.“
Samfylkingin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Píratar Vöruskemma við Álfabakka Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira