Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Jakob Bjarnar og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa 2. mars 2026 08:19 Í raun ríkir þjóðarsorg nú þegar einhver atkvæðamesti stjórnmálamaður seinni tíma, líklega allra tíma, er allur. Fjöldi manna, bæði samherjar og pólitískir andstæðingar, minnast Davíðs Oddssonar og kunna af honum sögur að segja. vísir/samsett Landsmenn vöknuðu flestir við þau tíðindi að einn áhrifamesti stjórnmálamaður sögunnar er fallinn frá. Sífellt fjölgar í hópi þeirra sem minnast Davíðs á samfélagsmiðlum og koma kveðjur úr öllum áttum; bæði þeirri hægri og vinstri en líka frá samfélagi samkynhneigðra.
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, er meðal þeirra sem minnast Davíðs. Hún segist hafa hitt hann nýlega og fundið fyrir hlýju hans. Tíðindin séu þung og sorgleg. Guðrún Hafsteinsdóttir er formaður Sjálfstæðisflokksins.Vísir/vilhelm „Með Davíð er horfinn af vettvangi einn áhrifamesti stjórnmálamaður í sögu lýðveldisins og að mínu mati einn sá allra merkasti. Hann var leiðtogi af sjaldgæfri stærð, skýr í sýn, sterkur í sannfæringu og með hæfileika til að móta samfélagið með hugmyndum sínum og forystu. Davíð mótaði íslensk stjórnmál, efnahagslíf og þjóðmálaumræðu um áratuga skeið. Hann gegndi embætti forsætisráðherra á tíma sem margir telja mesta blómaskeið í lýðveldissögunni. Á þeim árum urðu miklar framfarir í íslensku samfélagi, efnahagslífið styrktist og trú fólks á framtíð landsins var sterk. Í þeirri vegferð var Davíð í lykilhlutverki,“ segir Guðrún í færslu á Facebook. „Fyrir okkur sjálfstæðismenn var hann meira en stjórnmálamaður. Hann var leiðtogi sem mótaði heila kynslóð. Hann hafði sterka trú á Íslandi, á frelsi einstaklingsins, á dugnað fólksins í landinu og á getu þjóðarinnar til að standa á eigin fótum. Sú trú einkenndi verk hans og málflutning alla tíð. Hvort sem menn voru honum sammála eða ekki fór enginn varhluta af áhrifum hans. Hann skildi eftir sig djúp spor í sögu þjóðarinnar. Flaggað er í hálfa stöng við húsnæði Seðlabanka Íslands í tilefni dagsins.Vísir/Vilhelm Ég hitti Davíð nýverið og það verður mér minnisstætt hversu hlýlega hann tók á móti mér. Hann var jafn skarpur og jafn áhugasamur um stjórnmál heima og erlendis og alla tíð.“ „Leiddi þjóðina til farsældar“ Eyþór Arnalds, fyrrverandi oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, minnist Davíðs fyrir hugrekki í erfiðum málum. Eyþór Arnalds kom að rekstri Morgunblaðsins um tíma sem stjórnarmaður og hluthafi í útgáfufélaginu Árvakri.Sröð 2/Egill „Davíð Oddsson var merkasti stjórnmálamaður Ísland. Ferill hans var einstakur og merkur. Hann hafði djúpan skilning á hinu stóra sem og hinu smáa. Hann hafði hugrekki til að taka af skarið í erfiðum málum og leiddi þjóðina til farsældar.“ Illugi Jökulsson fjölmiðlamaður og rithöfundur stingur niður penna í tilefni dagsins. „Fáir hafa verið áhrifameiri Íslendingar í minni tíð en hann. Pólitísk arfleifð hans verður gerð upp smátt og smátt en á þessari stundu votta ég einlæga samúð ástvinum hans og vinum. Hann var sannarlega stór í sniðum.“ Hermann Nökkvi Gunnarsson blaðamaður á Morgunblaðinu og Sjálfstæðismaður rifjar upp kynni sín af Davíð. Hermann Nökkvi Gunnarsson.Sýn „Ég hitti Davíð Oddsson í fyrsta sinn árið 2016 þegar Bogga frænka fékk mig með sér á framboðsfund hans, ég þá aðeins 13 ára gamall. Mér fannst hann strax hnyttinn en ekki síður var hann yfirburðamaður í að útskýra flókin mál á einfaldan og aðgengilegan hátt. Þótt ég hafi verið ungur man ég vel eftir ræðunni sem hann flutti á Park Inn-hótelinu í Keflavík. Það var eitthvað við nærveru hans og orðfæri sem sat eftir,“ segir Hermann Nökkvi. Hann sjái engan stjórnmálamann sem komist með tærnar þar sem hann hafði hælana. Hermann Nökkvi birtir mynd af forsíðu Morgunblaðsins í dag. „Undanfarin ár, eftir að ég hóf störf á Morgunblaðinu, hef ég lesið meira eftir hann, ýmist leiðara og Reykjavíkurbréf í Morgunblaðinu eða gamlar ræður. Hann var með einstakan stíl og sína eigin nálgun á málin. Það verður aldrei neinn eins og hann. Það eru forréttindi að hafa fengið að starfa með svona ritstjóra en ekki síður er maður þakklátur fyrir að fá að alast upp á Íslandi í kjölfar þeirra miklu breytinga sem hann fór í á sinni stjórnartíð. Ísland er á þeim góða stað sem það er í dag ekki síst þökk sé því þrekvirki sem hann og aðrir unnu í stjórnartíð hans. Davíð er án vafa merkilegasti stjórnmálamaður Íslandssögunnar!“ Ólafur Thors, Hannes Hafstein og Davíð Oddsson „Ég vil byrja á því að votta aðstandendum hans mínar innilegustu samúðarkveðjur,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hún sagði hann einn áhrifamesta stjórnmálamann síðari tíma. „Þegar maður lítur til baka hugsar maður um hann og Ólaf Thors og Hannes Hafstein,“ segir hún og að það séu fyrstu nöfnin sem komi til hugar. Hann hafi haft mikil áhrif, eins og Jón Baldvin Hannibalsson, á það hvernig íslenskt samfélag þróaðist og hafi fært íslenskt samfélag í nútímann. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er utanríkisráðherra.Vísir/Lýður „Hann breytti íslensku samfélagi að mínu mati þannig að það náðist almennileg viðspyrna,“ segir Þorgerður og að hann hafi verið litríkur karakter. „Það var náttúrulega mjög lærdómsríkt að vinna og starfa í kringum hann. Hann er leiftrandi og skapandi, mikill listamaður líka,“ segir hún og að það megi sjá í textum hans. „Sterkur karakter er genginn og það er margt hægt að læra frá hans tímum.“ Góður siður að segja eitthvað fallegt Katrín Oddsdóttir lögmaður segir það góðan sið að segja eitthvað fallegt um fólk þegar það fellur frá. Katrín Oddsdóttir er formaður Stjórnarskrárfélags Íslands.Vísir/Arnar Halldórsson „Um Davíð Oddsson má segja það að hann stóð fallega með réttindabaráttu samkynhneigðra í upphafi hennar þegar slík afstaða var ekki sjálfsögð. Til dæmis skilst mér að hann hafi látið Samtökin 78 hafa Gula húsið í Lindargötu þegar hann var borgarstjóri og þar með þak yfir höfuðið. Sem forsætisráðherra skipaði Davíð nefnd til að kanna ítarlega réttarstöðu samkynhneigðs fólks og gera tillögur um úrbætur. Mér hefur alltaf þótt þetta fara furðu lágt í umræðum um þennan stóra karakter en hafi hann þökk fyrir og megi hann hvíla í friði.“ Davíð í Siggu og Viggu Stefán Pálsson sagnfræðingur segir Davíð Oddsson einn fárra Íslendinga sem skaut upp kollinum í vinsælum erlendum myndasagnaflokki - og mögulega eini pólitíkusinn. Það var í bókunum um Sigga og Viggu eða Suske en Wiske, vinsælustu myndasögum Hollendinga á síðustu öld. Í myndasögunni spyr ferðamaður á Íslandi Davíð: „Segið mér, góði maður, ætlið þér að bera farangurinn minn?“ Maðurinn í græna útskýrir að þarna sé á ferðinni Davíð Oddsson, borgarstjórinn í Reykjavík, sem býður ferðalanginn velkominn. „Davíð hefur nú verið betur teiknaður en á þessari mynd, en hann birtist þarna árið 1987 sem borgarstjóri Reykjavíkur. Níu ára borgarstjóratíð hans var á gríðarlega miklum umbrota- og framkvæmdatímum í Reykjavík og væri hægt að hafa langt mál um allar breytingarnar sem urðu á borginni í hans valdatíð. Umfangið er þeim mun merkilegra ef haft er í huga að hve miklu leyti borginni var persónulega stjórnað frá skrifstofu borgarstjóra. Þeir stjórnunarhættir höfðu ýmsa galla en á móti kom að hægt var að taka ákvarðanir og hrinda þeim í framkvæmd ótrúlega hratt.“ Kveið því að hitta Davíð Snærós Sindradóttir sem rekur SIND gallerí og starfaði um árabil í fjölmiðlum segist ekki hafa snúsað í morgun eftir að hafa vaknað við tíðindin af andláti Davíðs. Snærós Sindradóttir. „Davíð Oddsson var forsætisráðherra æsku minnar, risastór fígúra sem ég heyrði fullorðið fólk tala linnulaust um og sem ég myndaði mér snemma skoðun á í því samhengi. Hann var forsætisráðherra þegar Kárahnjúkavirkjun varð að lögum og þegar Íraksstríðið hófst. Tvö mál sem kveiktu pólitískan áhuga minn og voru risavaxin dæmi um óréttlæti heimsins og ósvífni stjórnmálamanna. Stundum heyrðist hvíslað að eitt sinn hefði Davíð verið afar skemmtilegur maður en svo hefði hann forherst í hlutverki sínu og sá sjarmi gufað upp með árunum,“ segir Snærós og rifjar upp forsetaframboð Davíðs árið 2016. „Þegar Davíð bauð sig fram til forseta 2016 ætlaði allt um koll að keyra. Alls höfðu 22 lýst yfir framboði, aldrei fleiri, en niðurstaðan varð að 9 tóku slaginn. Ég var ekki lengur barn, orðin blaðamaður á Fréttablaðinu og falið það verkefni að taka viðtöl við frambjóðendur í þremur hollum. Davíð og aðrir toppframbjóðendur voru ósáttir við skiptinguna, en við höfðum ákveðið að splitta þeim upp frekar en að efna til kappræðna. Dreifa gæðunum.“ Forsíða Fréttablaðsins í júní 2016. Davíð ásamt Hildi Þórðardóttur og Elísabetu Jökulsdóttur sem einnig buðu sig fram til forseta. Hún hafi kviðið því örlítið að hitta Davíð. „Og leið eins og hann hlyti að vita að frá barnæsku hefði hann verið litlu skárri en Grýla í mínum bókum. Hann mætti á svæðið í hlutverki sterka mannsins en ég átti nokkur smjörstykki uppi í erminni til mýkingar; talaði um afa og ömmu sem hann hafði kynnst þegar hann var ungur ráðinn sem ritari Leikfélags Reykjavíkur og svo um alla kallana á Morgunblaðinu sem ég hafði kynnst sem krakki.“ Hún hafi hins vegar hitt skemmtilega Davíð. „Hann var hnyttinn og kátur, leið vel í frekar pressulausu samtali við mótframbjóðendur sína og lék við hvern sinn fingur. Sérstaklega var gaman að fylgjast með tangó þeirra Davíðs og Elísabetar Jökulsdóttur en þar mættust þau, bæði stríðin og jafn eldklár, og skemmtu sér konunglega saman. Þau skutu glettilega á hvort annað, hún á valdið og hann á frelsið. Þetta voru eftirminnilegir neistar og gaman að fá að upplifa Davíð í þessu essi.“ Hún fagnar því að Davíð hafi þó ekki orðið forseti. „Bessastaðir eiga helst ekki að vera móttökustöð fyrir stjórnmálamenn sem eru orðnir þreyttir á erfiðum ákvörðunum en vilja áfram njóta heitra handabanda almennings. Eftir lifði minning af þessu eina skipti sem ég hitti manninn sem stöðugt var talað um í mín eyru á mótunarárunum. Og af þeim hitting mátti draga lærdóm sem ég geymi enn og hefur margsannast síðan.“ Sá uppteknasti svaraði kallinu Konráð Jónsson lögmaður á nokkrar góðar sögur af Davíð Oddssyni. Konráð er sonur Jóns Steinars Gunnlaugssonar hæstaréttarlögmanns. „Ruslafatan í bústað foreldra minna var í skápnum undir vaskinum. Hún var með loki, og lokaðist þegar skápurinn var lokaður. En um leið og skápurinn opnaðist lyftist lokið af henni. Davíð þótti þetta skemmtilegt og reyndi ítrekað að opna skápinn hratt og reyna að „nappa“ ruslafötuna með lokinu á. Hann hafði ekki erindi sem erfiði en mér þótti gaman að sjá þessa leikhlið á honum. Hann sagði um iðnaðarmenn að þeir sviku aldrei meira en þeir lofuðu – hnyttni sem ég gríp ítrekað í þegar eitthvað bjátar á í samskiptum mínum við þá.“ Konráð rifjar upp þegar hann gaf út skólablað í Hlíðaskóla. „Ég stakk upp á því að taka viðtal við Davíð. Þetta var á þeim tíma þegar hann var úti um allt í umræðunni og það var hlegið að þessu. En ég er þakklátur honum, þessum líklega uppteknasta manni á Íslandi, fyrir að hafa gefið sér tíma til að svara spurningunum frá mér. “ Konráð Jónsson lögmaður er sonur Jóns Steinars, sem um áratugaskeið var einn helsti bandamaður Davíðs.vísir/vilhelm Margt hafi verið skrifað og sagt um hans opinberu hlið. En ég upplifði ekkert nema hlýju og húmor þegar ég hitti hann. „Einhvern tímann kom hann í heimsókn til foreldra minna að horfa á fótboltaleik og ég tók að mér að stökkva út í búð fyrir hann og pabba að kaupa popp og diet coke. Á þessum tíma var hann seðlabankastjóri. Hann rétti mér fimmhundruðkall og sagði að ég hlyti að sjá að þetta væri seðill úr hans eigu af því að undirskriftin hans væri þarna.“ Hannes kveður með ljóði Hannes Hólmsteinn Gissurarson, stórvinur Davíðs, minnist vinar síns með ljóði eftir Sigurð Nordal. Hannes Hólmsteinn Gissurarson er sá maður sem hafði Davíð í mestum hávegum.vísir/vilhelm Falla hinar öldnu eikur, — ófullt skarð til tveggja handa, — rótafastar, fagurkrýndar, friðarmerki skógarlanda. Úfnar af þjósti og úlfaþyti eftir birkirenglur standa. Orðheppinn og fimur Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur hefur ekki verið á sömu línu og Davíð pólitískt en hann minnist merks manns á Facebook; segir hann briddsspilara og sagnaskáld og að hann hafi nálgast stjórnmálin úr tveimur áttum: „Hann var á sínum bestu árum meistari sviðsetninga og náði að búa til áhrifamiklar sögur með einföldum og sterkum andstæðum góðs og ills sem náðu til fólks. Og orðheppinn og fimur var hann. Með einni snöggri setningu gat hann afgreitt mótbárur við sífellt meiri hlátur og aðdáun. Hann lék leikinn af hugkvæmni og fimi en sagnir hans urðu með tímanum æ stærri og í minni tengslum við spilin á hendi.“ Guðmundur Andri segir að í Davíð hafi verið togstreyta en þar hafi tekist á: frjálslyndi og stjórnlyndi, skilingur og þótti, glaðværð og ofsi.vísir/vilhelm En svo tók að halla undan fæti, að mati Guðmundar Andra sem segir sögurnar smám saman orðið fjarstæðukenndari fyrir fólkið: illmennin ótrúlegri og málstaður hins góða óljósari. „Í honum toguðust á frjálslyndi og stjórnlyndi, skilningur og þótti, glaðværð og ofsi. Farsælastur var hann þegar hann söðlaði um, breytti yfirlýstri stefnu og tók höndum saman við jafnaðarmenn um að koma Íslandi inn í EES með öllum þeim umbótum sem þvi fylgdu. Ég votta fjölskyldu Davíðs og vinum samúð vegna fráfalls hans.“ Dýravinurinn Davíð Andrea Sigurðardóttir blaðamaður á Morgunblaðinu grætur sinn yfirmann og segir Íslendinga hafa misst merkan mann. Andrea dregur fram einn þátt í fari Davíðs sem er dálæti hans á dýrum. „Davíð átti á þessum árum glæsilegan scheffer hund sem hét Tanni. Á leið heim úr leikskólanum voru foreldrar mínir ósjaldan beðnir um að krækja inn Lynghagann til að kíkja á Tanna. Mér skilst að Davíð hafi gjarnan ráðfært sig við Tanna um pólitískar ákvarðanir og að þeir hafi jafnan verið sammála.“ Andrea segir að ekki hafi sér þótt verra þegar Davíð flutti í Skerjafjörðinn í kringum aldamót, í næsta nágrenni við ömmu og afa, þar sem ég ólst upp fyrstu árin. Síðar lágu leiðir þeirra saman á Morgunblaðinu. Andrea að störfum, þarna þegar stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans var kynnt.vísir/vilhelm „Ég ber sérstaklega mikla virðingu fyrir því hversu mikill dýravinur Davíð var. Sú mjúka hlið hans skapaði fallegt jafnvægi við stjórnmálamanninn sem þótti svo harður í horn að taka. Í mínum huga segir það meira en margt annað um manngerð fólks hvernig það kemur fram við dýr.“ Vinátta Davíðs við ferfætlinga var ekki bundin við hans eigin dýr, frænka Andreu sem býr nú í húsinu hvar Andrea ólst upp í segir svo frá að Davíð hafi lagt það í vana sinn að setja skál fyrir utan heimili sitt, með mjólk eða rjóma fyrir nágrannakisurnar. „Ég nefndi þetta við Andrés frænda minn Magnússon sem bætti um betur og sagði mér frá því að í eitt skipti hefði blaðamaður setið um fyrir Davíð við heimili hans. Sá sagði farir sínar ekki sléttar, þar sem Davíð hefði ekki virt hann viðlits. Ekki nóg með það, heldur hefði Davíð þess í stað gefið sig á tal við kött einn sem var þar staddur á sama tíma. Þetta þótti viðkomandi blaðamanni fullkomna niðurlæginguna. Hann vissi ekki þá að þetta var ekki einu sinni kötturinn hans Davíðs.“ Andrea minnist frækins stjórnmálamanns, hetju æsku sinnar, dýravinar og nú síðast yfirmanns, með mikilli hlýju og af djúpri virðingu. Segin saga Pétur Már Ólafsson útgefandi segir merka sögu af tilurð útgáfu bókarinnar Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar. Í október hafði Davíð, þá forsætisráðherra, samband við Ólaf Ragnarsson hjá Vöku-Helgafelli og kvaðst jafnvel vera með handrit að bók og spurði hvort hann væri til í að skoða. „Við Ólafur fórum síðdegis sama dag til fundar við Davíð niðri í Ráðherrabústað en ég var á þeim tíma útgáfustjóri Vöku-Helgafells. Það er skemmst frá því að segja að ég fór heim það kvöld með það verkefni að lesa og meta.“ Að sögn Péturs var þar komið safn fínustu smásagna sem honum þótti lítið þurfa að eiga við svo ákveðið var kýla á þetta, þótt tíminn væri naumur. Bókin var gefin út á mettíma og safnið sló rækilega í gegn. Þeir urðum að endurprenta bókina á milli jóla og nýárs sem er fáheyrt. Og titillinn varð fleygur og notaður við ýmis tilefni. „Ég man að ég velti fyrir mér röð sagnanna en þá benti höfundurinn mér á að hún yrði eiginlega að vera svona því að ef upphafsstafirnir í titlum sagnanna væru lesnir lóðrétt kæmi út: SEGIN SAGA.“ Davíð varðist allra frétta Bókin var svo gefin út á þýsku. „Ég skaupaði eitthvað við útgefandann, Gerhard Steidl, um að það væri kannski hægt að fá Schröder kanslara til að gefa komment á kápu en þeir Davíð þekktust. Steidl sá engin sérstök tormerki á því – þeir Schröder hefðu verið miklir mátar í ungliðahreyfingu þýskra jafnaðarmanna fyrr á tíð. Davíð og Pétur Már kynna bókina Stolið frá höfundi stafrófsins sem kom út 2002. Facebook Af því varð þó ekki en bókin fékk hins vegar fínustu viðtökur, m.a. í dagblaðinu taz sem er mjög til vinstri í pólitík. Blaðið gerði að umtalsefni að það gengi sjaldan upp að blanda saman stjórnmálum og listum en að á Íslandi væri þessu öðruvísi farið, þar væri nánast hefð fyrir því að stjórnmálamenn kæmu úr listaheiminum.“ Árið 2002 hafði Davíð aftur samband og var nú kominn með nýtt safn sem nefndist Stolið frá höfundi stafrófsins. Það samstarf var að sögn Péturs Más ekki síður ánægjulegt. „Við kynntum bókina á blaðamannafundi í Iðnó þar sem hann sagðist m.a. vera með stærra bókmenntaverk í smíðum. Því miður varð ekki framhald af útgáfu á skáldverkum Davíðs - að minnsta kosti ekki á meðan hann var á lífi, hvað svo sem kann að leynast í fórum hans. Ég spurði hann stundum út í bókaskrif og hvatti hann líka til að rita ævisögu sína sem mikill fengur hefði verið að en hann varðist ævinlega allra frétta.“ „Þið þurfið að spyrja mig!“ Bubbi Morthens tónlistargoðsögn í lifanda lífi segir af kynnum sínum við Davíð. „Davíð Oddsson var í níunni maðurinn í íslenskri pólitík, ungur, ferskur og bjó yfir hroka í bland við kaldhæðni og sjarma sem einhvern veginn stafaði ljóma af. Við sem þoldum hann ekki dáðumst samt að honum.“ Bubbi Morthens segir að við komum og við förum. Blessuð sé minning Davíðs.vísir/lýður Leiðir þeirra lágu stundum saman og í tvígang hjálpaði Davíð Bubba með aðgang að byggingum sem Bubbi fékk að nota undir útgáfuhóf í sambandi við plötuútgáfu og svo þegar bókin góða um Bubba, sem Silja Aðalsteinsdóttir skrifaði, kom út. „Ég fékk sem sagt að nota fokhelda Perluna og ég fékk að nota Sundhöll Reykjavíkur um kvöld. Báðir þessir viðburðir slógu í gegn. Perluna fengum við Þorstein Kragh þannig að við stóðum í biðröð á Bæjarins bestu og þar var Davíð líka. Við spurðum hann hvað við þyrftum að gera til að fá að halda partí í Perlunni. Hann glotti og svaraði: Þið þurfið að spyrja mig! Þá spurðum við og hann sagði já. Sama var með Sundhöllina. Við höfðum fengið nei á öllum stöðum en hann svaraði: Góð hugmynd!“ Boð í ráðhúsið Einar Þorsteinsson, oddviti Framsókarmanna í borginni, bauð Davíð í hádegismat á skrifstofuna þegar hann var borgarstjóri. „Ég var örlítið óviss um hvernig hádegisverðurinn yrði því síðustu samskipti okkar voru eftir kappræður daginn fyrir forsetakosningarnar 2016 og þar var hann frekar ósáttur við rimmu sem við áttum í þættinum. „Davíð gleymir engu“ hugsaði ég.“ Einar ákvað engu að síður að bjóða Davíð í ráðhúsið því honum þótti áhugavert að ræða við hann um borgarmálin. Davíð hafði forgöngu að byggingu ráðhússins og Einar bauð honum til hádegisverðar þangað.Facebook „Hann þáði boðið undir eins enda hafði honum aldrei áður verið boðið á skrifstofu borgarstjóra í ráðhúsinu við Tjörnina sem hann þó hafði forgöngu um að yrði byggt. Hann sagðist frekar vilja fisk en kjöt því hann væri að passa upp á heilsuna. Ég fann að honum þótti vænt um að vera boðið.“ Einar segir að einkar gaman hafi verið að hitta Davíð, þennan mikla karakter sem mótaði stjórnmál æsku sinnar kynslóðar. „Davíð fór á kostum í hádegisverðinum, sagði frá hinum og þessum uppákomum í borgarstjóratíð sinni, meðal annars því þegar hann fékk fjarstýringu að gosbrunninum í Tjörninni og notaði hana til að kveikja á honum og bregða fólki sem gekk framhjá.“ „Fyrir mér verður hann alltaf Bubbi kóngur“ Signý Pálsdóttir lék á móti Davíð í uppfærslu MR í hinni frægu og rómuðu sýningu Bubbi kóngur eftir Jarre. Líklega hefur engin menntaskólasýning verið rifjuð upp jafn reglulega og einmitt þessi sýning. Signý minnist þessa gamla mótleikara síns: „Glæstur var ferill Davíðs Oddssonar heitins, en fyrir mér var hann alltaf Bubbi kóngur í Herranótt MR á sviði Þjóðleikhússins og í sjónvarpi 1969 þar sem mér hlotnaðist sú upphefð að leika Bubbu drottningu hans. Davíð var frábær leikari og gott að leika á móti honum. Blessuð sé minning hans og samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina. Eldklár maður og skjótur til ákvarðana Önnur úr leikhúsheiminum sem minnst DAvíðs, en hann lét til sín taka á þeim vígstöðvum og gegndi um hríð stöðu ritara Leikfélags Reykjavíkur hjá Iðnó, er Þórunn Sigurðardóttir leikstjóri. Hún segir að sér hafi brugðið við þessar fréttir í morgun. „Stór í sniðum, stórbrotinn, já það munu margir minnast hans með hlýju og bros á vör. Ógleymanlegur maður sem ég þakka fyrir að vera samtíða. Ég tók meira að segja þátt í að semja með honum og fleirum reviu í Iðnó í gamla daga.“ Þórunn Sigurðardóttir segir að Davíð hafi verið stóran í sniðum, stórbrotinn í raun og að margir muni minnast hans með hlýju og með bros á vör. Þórunn segir víst að margir muni ekki sakna stjórnmálamannsins Davíðs. „Ég kynntist eiginlega öllum hliðum á honum, bæði eldklárum manni, sem tók ákvarðanir eins og að drekka vatn, hafði afgerandi áhrif á minn feril í menningu, gaf mér góð ráð og var ekkert að skafa utan af því. Þegar það var ljóst að ég var höll undir vinstri öflin, lét hann mig líka finna fyrir því. Öll þessi kynni voru ógleymanleg. Ég sendi hans góðu konu og ástvinum samúðarkveðjur.“ Þrumuræða Davíðs á Landsfundinum 2010 Hermann Guðmundsson forstjóri segir að nú, þegar hann hafi fengið þær fregnir að Davíð Oddsson væri allur, sé fyrsti Landsfundur Sjálfstæðisflokksins sem hann sat það sem er honum efst í huga. Hermann Guðmundsson forstjóri Kemi segir rafmagn hafa farið um salinn þegar Davíð gekk á svið.vísir/vilhelm „Þetta var árið 2010 og samfélagið var eins og opið sár eftir allt það sem gekk á í bankahruninu en ekki síst eftirmálum þess. Þar sem ég sat á borði Hafnarfjarðardeildar varð ég var við að mikill kurr fór allt í einu um salinn rétt fyrir kl.13 þennan dag.“ Hermann litaðist um, sá ekkert markvert en spurðist þá fyrir á næsta borði og frétti að fyrrum formaður flokksins Davíð Oddsson hefði kvatt sér hljóðs utan dagskrár. „Erindi hans set ég hér undir, það varð mér ógleymanlegt og ég spila það á hverju ári.“ Hermann lýsir því að rafmagn hafi farið um salinn þegar Davíð gekk á svið og í pontu var áþreifanlegt. „Svona sterka áru hef ég ekki fundið fyrr né síðar í troðfullum 2.000 manna sal. Hans afrek eru óteljandi og verða ekki rakin hér. Ég tel hins vegar að mín kynslóð eigi stóran hluta af bættum lífskjörum honum að þakka ásamt hans samstarfmönnum,“ segir Hermann. Stórleikari óvænt stiginn af sviðinu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sem löngum tókst á við Davíð og gekk í fótspor hans sem borgarstjóri, með meiru, minnist Davíðs og segir stórleikaria óvænt stiginn út af sviðinu. Hún segir hann ekki hafa hlaupið eftir því hvað fólki þótti um hann. Ingibjörg Sólrún segir merkan mann nú genginn.vísir/Anton Brink „Hann gegndi mörgum mikilvægum hlutverkum og lét alltaf um sig muna þó að fólk væri missátt við hann eins og gengur.“ Ingibjörg rifjar upp að þau hafi stundum verið samtíða á sviðinu: „Þannig var ég fyrst kosin i borgarstjórn 1982 þegar hann varð borgarstjóri og svo var ég kosin á þing 1991 þegar hann varð forsætisráðherra. Hann var seðlabankastjóri þegar ég var utanríkisráðherra í ríkisstjórn Geirs Haarde á árunum 2007-2009. Öll þessi ár háðum við Davíð marga pólitíska hildi og hann á án efa stærstan þátt í þeirri þjálfun sem ég sem ung kona fékk í pólitískum skylmingum í Borgarstjórn Reykjavíkur.“ Seðlabankastjórar kynna stýrivexti árið 2007. Davíð Oddsson Ingimundur Friðriksson Eiríkur Guðnason Arnór Sighvatsson.vísir/vilhelm Ingibjörg Sólrún segir að þau hafi ekki átt pólitíska samleið og stundum hafi þeim gengið erfiðlega að láta sér lynda hvort við annað en þar hafi þó aldrei verið nein undirmál. „Davíð var hreinskiptinn, hafði skömm á hvers kyns óhreinlyndi og duldi ekki hug sinn. Okkar skylmingar höfðu aldrei nein áhrif á hug hans gagnvart Hjörleifi manni mínum en þar ríkti gagnkvæm væntumþykja frá menntaskólaárunum.“ Ingibjörg Sólrun sendir fjölskyldu Davíðs innilegar samúðarkveðjur: „Merkur maður er genginn.“ Fékk áritaða bók eftir John le Carré frá Davíð Sigurður Kári Kristjánsson, lögmaður og Sjálfstæðismaður, segir af bók sem hann fékk að gjöf frá Davíð Oddssyni. „Þessa bók, áritaða af höfundi, gáfu Davíð og Ástríður mér á afmælisdaginn minn 9. maí 2004. Þá var ég rétt liðlega þrítugur alþingismaður í þingflokki Sjálfstæðisflokksins, en Davíð var formaður flokksins.“ Sigurður Kári segist hafa haldið mikið upp á bókina allar götur síðan enda þykir honum titillinn lýsandi fyrir samband þeirra. „Við Davíð Oddsson vorum vinir og nú þegar þær sorgarfréttir berast að hann sé látinn minnist ég hans með mikilli hlýju og þakklæti. Með Davíð er genginn áhrifaríkasti stjórnmálamaður sinnar tíðar, en ekki síður traustur og kær vinur sem aldrei brást og ég hafði miklar mætur á. Sigurður Kári syrgir Davíð vin sinn.vísir/vilhelm Ég hef alltaf litið á það sem mikla gæfu og forréttindi að hafa sem ungur maður fengið að kynnast Davíð og vinna með honum. Á þann vinskap bar aldrei neinn skugga.“ Sigurður Kári sendir fjölskyldunni samúðarkveðjur og segir að Davíðs verði sárt saknað. Allt skrítið í húsi Davíðs fyrir tvítugan mann Minningarbrotin um Davíð streyma úr öllum áttum. Hér er eitt úr óvæntri átt en Atli Viðar Þorsteinsson, kvikmyndagerðarmaður og plötusnúður, segir einstaka sögu sem byggir á kynnum þeirra tveggja. „Fyrsta daginn sem ég vann fyrir RÚV var ég sendur út af örkinni að hitta Davíð Oddsson. Ég var þá aðstoðarpródúsent í Sunnudagskastljósi Evu Maríu, og upphafsmyndskreyting þáttarins voru gamlar myndir af viðmælandanum, myndir sem ég skannaði heima hjá viðmælandanum því fæstir vildu láta þessar myndir út úr húsi.“ Atli Viðar á afar sérstaka minningu sem tengist Davíð.vísir/ernir Davíð var fyrsti viðmælandi þáttarins en Evu seinkaði. „Ég var allt í einu staddur einn fyrir framan útidyrnar hjá Davíð Oddssyni, manninum sem hafði verið gegnumgangandi rauður þráður í fréttum, spaugstofu og áramótaskaupum alls míns lífs. Ég held ég geti sagt með vissu að fyrir barn sem fæddist árið 1983 hafi ekkert eitt íslenskt nafn verið nefnt jafn oft í kringum mann eins og Davíð Oddsson.“ Atli Viðar hringdi dyrabjöllunni, dyrnar opnast og Davíð birtist, í jakkafötum með blátt bindi. Þeir kynna sig og Davíð býður Atla brosandi inn. Hann segir að það geri ekkert til þó Evu seinki og býður kaffi. Í stofunni spyr hann Atla hvort honum þyki ekki eitthvað skrítið? „Ég, verandi rétt rúmlega tvítugur gutti í stofunni hjá Davíði Oddssyni sé ekkert annað en skrýtið, en svara að ég sjái ekkert áberandi skrýtið, ekki svo að teljandi sé. Björt og falleg stofa, smá afaleg, opið rými og almennt bara soldið kósí. Risastór mynd af Maó formanni á skrifstofu Davíðs „Hér eru engir þröskuldar sjáðu til,“ segir Davíð. „Já það er soldið spes, af hverju er það?“ spyr Atli „Fyrir hundinn. Hann var orðinn svo gamall og lélegur þegar við fluttum að við slepptum þröskuldunum.“ „Já eigið þið hund?“ spyr ég og lít í kringum mig. „Nei. Hann dó þegar við fluttum,“ svaraði Davíð. Fréttamenn sækja að Davíð, einu sinni sem oftar. Þarna eftir síðasta ríkisráðsfund hans.vísir/vilhelm „Svo sýndi hann mér safnið sitt af fyrstu útgáfum Laxness (nokkuð sem hefur setið í mér síðan og áreiðanlega plantaði fræi minnar eigin Laxnesssöfnunaráráttu), sem var komið fyrir á heiðurssæti við hliðina á Clint Eastwood og James Bond DVD-myndum.“ Við svo búið fóru þeir inn á skrifstofu Davíðs sem stúkuð var inn af stofunni. Þar hékk stórt málverk af Maó yfir veglegu skrifborði úr dökkum við. „Hér vakir hann yfir mér formaðurinn,“ sagði Davíð og brosti, og teygði sig svo í babúsku í gluggakistunni. „Þetta fékk ég frá Sovéska sendiráðinu.“ Atli Viðar segir svo frá að babúskan hafi verið babúska af honum sjálfum, og svo tók hann til við að opna babúskuna og út úr henni koma sífellt minni og minni þjóðþekktir Íslendingar, verkalýðsforkólfar, og stjórnmálamenn og -konur. „Svo raðaði hann þeim öllum saman aftur, setti þau inn Babúsku-Davíð og lyfti honum upp. Horfði svo á mig áður en hann lokaði dúkkunni og sagði "oog svo gleeeeypi ég þau öll!" og brosti. Það fannst mér ógeðslega fyndið,“ segir Atli Viðar. Fáir ef nokkrir betri ræðumenn en Davíð Jens Garðar Helgason varaformaður Sjálfstæðisflokksins minnist Davíðs. Og hann birtir ljóðbrot. Ef verð ég að manni, og veiti það sá, sem vald hefur tíða og þjóða, að eitthvað ég megni, sem lið má þér ljá, þótt lítið ég hafi að bjóða, þá legg ég, að föngum, mitt líf við þitt mál, hvern ljóðstaf, hvern blóðdropa, hjarta og sál. „Þetta erindi úr ljóðinu Ástarjátning eftir Hannes Hafstein, flutti Davíð Oddsson á Landsfundi 2011. Þegar Davíð steig í pontu Landsfundar, sló þögn á salinn. Það mátti heyra saummál detta. Á eftir fylgdu sterk hugmyndafræðileg og skýr skilaboð þar sem Davíð blandaði saman alvarleika og hnyttni á sinn einskæra máta. Fáir stjórnmálamenn hafa náð slíkum tökum á ræðulistinni og Davíð.“ Jens segist hafa gengið í Sjálfstæðisflokkinn um það leyti sem Davíð varð formaður flokksins 1991. Því má segja að hann sé af svokallaðri Davíðskynslóð Sjálfstæðismanna. Jens Garðar birtir minningarorð um Davíð, sem Jens segir einn merkasta stjórnmálamann sem þjóðin hefur eignast.vísir/anton brink „Eftir að hafa verið farsæll borgarstjóri, steig Davíð inn í landsmálin. Í kjölfarið hófst eitt mesta umbreytingarskeið í sögu lýðveldisins. Undir forystu Davíðs Oddssonar var þjóðin leyst úr fjötrum ríkisrekstrar og afskipta. Vindar frelsis og trúnni á framtak einstaklingsins blésu um allt land. Nýtt hagvaxtarskeið, byggt á trúnni á einstaklinginn, hófst. Kynslóðirnar sem á eftir hafa komið njóta góðs af verkum þeirra sem á undan gengu og höfðu framtíðarsýn fyrir land og þjóð.“ Jens Garðar segir að frá sé fallinn einn merkasti stjórnmálamaður sem Ísland hefur alið. Maður sem hafði óbilandi trú á þjóð sinni og krafti einstaklingsins til framkvæmda. Markaði djúp spor í sinn samtíma Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra skrifar um Davíð Oddsson látinn. Kristrún segir Davíð mikilhæfan og sterkan leiðtoga sem breytti Íslandi. „Davíð stýrði landinu í 13 ár, lengst allra sem gegnt hafa embætti forsætisráðherra. Hann var við völd nær alla mína barnæsku og fram á unglingsár. Kristrún segir Davíð hafa haft skýra sýn á samfélagið.vísir/lýður Ég var því snemma meðvituð um að þar færi áhrifamikill stjórnmálamaður, sem markaði djúp spor í sinn samtíma og íslenska stjórnmálasögu,“ skrifar forsætisráðherra. Kristrún segir aukinheldur að dýn Davíðs á samfélagið hafi verið skýr: „Hann stóð ætíð með eigin sannfæringu. Og hann var óhræddur við að taka erfiðar ákvarðanir. Það er sannarlega virðingarvert. Ég votta fjölskyldu Davíðs og aðstandendum hans öllum innilega samúð mína.“ Fréttin verður uppfærð með fleiri minningarorðum um Davíð eftir því sem líður á daginn.
Sjálfstæðisflokkurinn Andlát Davíðs Oddssonar Alþingi Reykjavík Fjölmiðlar Mest lesið Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Lífið Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Lífið Tækifærin þurrkuðust upp eftir stuðning við Palestínu Bíó og sjónvarp Ástin blómstraði á sýningu Tolla Menning Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Lífið Fór alla leið inn í hausinn á konu sem treystir ekki eigin skynjun Lífið Rosalía og Björk slógu í gegn á Brit-hátíðinni Lífið Salka Sól látin fara Lífið Var rænd af barnahópi á Filippseyjum Lífið Fleiri fréttir Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Truflað hádegisdjamm í nafni mannréttinda Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Rosalía og Björk slógu í gegn á Brit-hátíðinni Fór alla leið inn í hausinn á konu sem treystir ekki eigin skynjun Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Salka Sól látin fara „Hvernig er hægt að deyja áður en maður fæðist?“ Var rænd af barnahópi á Filippseyjum Vinslit, ofbeldi, líkamssmánun og niðurlæging í ANTM Krakkatía vikunnar: Api, fjall og Barbie Jóhanna Vigdís greindist með MS „Kalli“ setti Höllu í óþægilega stöðu með óvæntri gjöf Fréttatía vikunnar: Harmleikur, þorrablót og körfubolti „Sannkölluð rokk og ról goðsögn“ fallin frá „Valsreiturinn... í Pyongyang“ Trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli vegna meintrar sprengju „Það veit enginn af þessu, ég er að opna mig núna“ Subterranean kemur saman í fyrsta sinn í áratugi Jólakortið barst fimm árum of seint Missti tökin og hengdur á loft í beinni Mun aldrei flytja aftur heim Fimm sparnaðarráð fasteignasala: „Líklega besta tímakaup fólks“ Segir Glover hafa blekkt sig, kyrkt og kastað út Á batavegi fimmtán svæfingum og sex aðgerðum síðar 10cc spilar á Íslandi í sumar Kosning hafin fyrir Hlustendaverðlaunin „Ég var að fatta að þú ert edrú“ Klósettferðin sem getur bjargað þér frá því að brenna út í vinnunni Sjá meira