Bjuggust ekki við því að búa við sprengjuregn í Barein Lovísa Arnardóttir skrifar 3. mars 2026 08:13 Guðlaug og Sebastian á góðri stundu í Barein. Aðsend Guðlaug Sigfúsdóttir hefur verið búsett í Barein í Miðausturlöndum í fjórtán ár. Hún segist aldrei hafa átt von á því að búa við sprengjuárásir, landið sé svo friðsælt. Fjölskyldan hefur lítið sofið fyrir sprengjum og sírenum síðustu nætur og heldur sig bara heima.
Stríð Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran hefur nú breiðst út um öll Mið-Austurlönd, með gagnárásum Írana á herstöðvar og sendiráð Bandaríkjanna og skotmörk í Ísrael. Í erlendum miðlum segir að Íran hafi, til dæmis, ráðist að herstöðvum Bandaríkjanna í Barein. Myndband hér á vef BBC. „Það hafa engar sírenur verið frá því klukkan hálf þrjú í nótt,“ segir Guðlaug en að rétt í þessu hafi verið send viðvörun um að þau ættu að koma sér í skjól. Rætt var við Guðlaugu og Sebastian, sextán ára son hennar, í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Ráðlagt að vera heima Guðlaug segir ekki allt beint lokað heldur sé fólki ráðlagt að vera heima því það sé búið að skjóta niður svo margar eldflaugar á svæðinu. Sebastian sinnir því námi sínu á netinu og segist hafa verið hræddur í byrjun en sé núna að venjast látunum og ekki eins hræddur. „Þeir réðust á álverið í nótt og reyndu að ráðast á Sidra þar sem olíutankarnir eru,“ segir Guðlaug og að það sé búið að rýma ýmis svæði nálægt sem talin séu skotmörk. „Þetta er mjög óhugnanlegt,“ segir Guðlaug. Hún segir stjórnvöld í Barein hafa skotið niður 45 dróna frá Íran en hafi ekki svarað fyrir sig. Samkvæmt fréttum hafi einn látist en blóðbankinn hafi gefið út fyrirmæli í gær um að gefa blóð. Þau Guðlaug og Sebastian segjast lítið sofa. Þau hafi verið rétt búin að sofna í gær þegar sírenur byrjuðu að væla og að eftir það hafi verið erfitt að sofna aftur. Slæmar aðstæður í sprengjubyrgjunum „Við erum bara heima,“ segir hún og að það hafi verið gefin út fyrirmæli um hvert þau geti farið. Það séu byrgi nálægt en það búi ein og hálf milljón á svæðinu og það komist aðeins um 500 til 600 þúsund í byrgin. Guðlaug segist hafa séð myndbönd frá svæðunum sem hafi verið rýmd og aðstæður hafi ekki verið góðar. „Þetta er skrítið, það er enginn skóli, það er búið að færa prófin,“ segir Sebastian. Guðlaug segir dásamlegt að búa í Barein, þetta sé „frjálsasta“ múslimalandið og að þau hafi haft það mjög gott. Sebastian þekki ekkert annað því hann hafi aðeins verið tveggja ára þegar þau fluttu. „Við höfum ekki kvartað hingað til,“ segir Guðlaug og að hún hafi aldrei átt von á því að búa þarna við þessar aðstæður.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Barein Bandaríkin Íslendingar erlendis Bítið Tengdar fréttir Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna Íslendingur búsettur í Kúveit-borg segir að fólk sé beðið um að halda sig innandyra vegna braks frá drónum og flaugum sem hafa verið skotin niður. Hann vonar að árásunum fari að linna en fjölskyldan sé við öllu búin. 2. mars 2026 23:31 Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Stríð Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran hefur nú breiðst út um öll Mið-Austurlönd, með gagnárásum Írana á herstöðvar og sendiráð Bandaríkjanna og skotmörk í Ísrael. 3. mars 2026 06:31 Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Fjórar ungar íslenskar konur sem voru í safarí við Dubai á laugardagsmorgun fréttu frá foreldrum sínum hér heima að drunur sem þær heyrðu væri skotárás að sögn móður einnar þeirra. Þær hafa verið fastar á hóteli síðan þá en vonast er til að þær komist frá borginni á miðvikudag. 2. mars 2026 12:00 Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum „Það er er enginn sem hjálpar okkur eitt né neitt hérna,“ segir Davíð Guðlaugsson, sem hefur setið fastur í Dúbaí ásamt unnustu sinni, Lovísu Ósk Davíðsdóttur. Þau undrast ráðaleysi borgaraþjónustu utanríkisráðuneytis og ætla í nótt að freista þess að komast til Óman á eigin vegum. 2. mars 2026 18:56 Mest lesið Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Innlent „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Innlent Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Erlent Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Innlent „Veiddu“ grænmetissala með dróna Erlent Vill breyta lögum um .is Innlent Fleiri fréttir Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Sjá meira
Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna Íslendingur búsettur í Kúveit-borg segir að fólk sé beðið um að halda sig innandyra vegna braks frá drónum og flaugum sem hafa verið skotin niður. Hann vonar að árásunum fari að linna en fjölskyldan sé við öllu búin. 2. mars 2026 23:31
Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Stríð Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran hefur nú breiðst út um öll Mið-Austurlönd, með gagnárásum Írana á herstöðvar og sendiráð Bandaríkjanna og skotmörk í Ísrael. 3. mars 2026 06:31
Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Fjórar ungar íslenskar konur sem voru í safarí við Dubai á laugardagsmorgun fréttu frá foreldrum sínum hér heima að drunur sem þær heyrðu væri skotárás að sögn móður einnar þeirra. Þær hafa verið fastar á hóteli síðan þá en vonast er til að þær komist frá borginni á miðvikudag. 2. mars 2026 12:00
Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum „Það er er enginn sem hjálpar okkur eitt né neitt hérna,“ segir Davíð Guðlaugsson, sem hefur setið fastur í Dúbaí ásamt unnustu sinni, Lovísu Ósk Davíðsdóttur. Þau undrast ráðaleysi borgaraþjónustu utanríkisráðuneytis og ætla í nótt að freista þess að komast til Óman á eigin vegum. 2. mars 2026 18:56