Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028 Samúel Karl Ólason skrifar 5. mars 2026 13:30 SLS-eldflaug og Oirion geimfar á skotpalli í Flórída í Bandaríkjunum. Bilun kom upp í eldflauginn þegar til stóð að skjóta geimfarinu á loft á dögunum en til strendur að reyna aftur í næsta mánuði. AP/John Raoux Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa gert nokkrar breytingar á Artemis-áætluninni svokölluðu. Búið er að bæta við einu geimskoti í áætlunina og stendur ekki lengur til að lenda geimförum á tunglinu í þriðja geimskotinu.
Til stendur að reyna að lenda geimförum á yfirborði tunglsins snemma árs 2028. Artemis-áætlunin snýst í stuttu máli um að senda geimfara aftur til tunglsins og koma þar upp varanlegri viðveru. Lengi stóð til að geimskotin vegna áætlunarinnar yrðu fjögur og átti svo að bæta við fleiri reglulegum geimferðum til tunglsins. Artemis I sendi geimfar á braut um tunglið í nóvember 2022. Artemis II er ætlað að senda menn á braut um tunglið en því geimskoti hefur ítrekað verið frestað á undanförnum árum, nú síðast í febrúar vegna bilunar. Það var svo í Artemis III sem til stóð að lenda geimförum á tunglinu, um mitt næsta ár. Síðan átti að gera það aftur í Artemis IV einhverju síðar. Þriðja geimskotið ekki til tunglsins og bæta öðru við Nú er búið að gera töluverðar breytingar á þessari áætlun, eins og fram kemur á vef NASA. Enn stendur til að geimfararnir í Artemis II eigi að fara á braut um tunglið og stendur til að reyna að skjóta þeim af stað í þennan tíu daga leiðangur í apríl. Geimfararnir í Artemis III eiga þó ekki lengur að lenda á tunglinu. Þess í stað eiga þeir, um mitt næsta ár, að fara á braut um jörðina. Þar eiga þeir að prófa að fara úr Orion-geimfari yfir í lendingarfar eða lendingarför sem starfsmenn SpaceX og Blue Origin eru að vinna að. Samkvæmt áætlunum NASA á að flytja geimfara til tunglsins með Orion-geimfari en þar eiga geimfararnir að fara um borð í lendingarfar frá annaðhvort SpaceX eða Blue Origin og nota það til að lenda á yfirborði tunglsins. SpaceX hafði haft betur gegn Blue Origin og gert samning við NASA um að þróa þetta lendingarfar en Sean Duffy, fyrrverandi starfandi yfirmaður NASA, endurskoðaði þá ákvörðun á síðasta ári. SpaceX er á eftir áætlun þegar kemur að þróun lendingarfarsins og sagði Duffy að útboðið um lendingarfarið yrði opnað á nýjan leik. Elon Musk, eigandi SpaceX, brást reiður við þessum fregnum. Það er svo í Artemis IV sem til stendur að lenda geimförum á tunglinu og er enn gert ráð fyrir því að það geimskot eigi að fara fram snemma árs 2028. Í lok árs 2028 stendur svo til að skjóta Artemis V á loft en þá eiga geimfarar að hefja byggingu bækistöðvar á tunglinu. Í kapphlaupi við Kínverja Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra eru í ákveðnu kapphlaupi við Kínverja og Rússa um að reisa bækistöðvar á tunglinu. Þessar bækistöðvar á að knýja með sérstökum kjarnakljúfum sem til stendur að senda til tunglsins á næstu árum. Markmið NASA er að koma slíku orkuveri á yfirborð tunglsins fyrir árið 2030 en það sama ár stefna Kínverjar á að senda sína fyrstu geimfara til tunglsins. Ráðamenn í Kína hafa einnig opinberað áætlanir um að smíða kjarnakljúf og nota hann til að knýja sameiginlega rannsóknarstöð þeirra og Rússa á yfirborði tunglsins. Kjarnakljúfur á tunglinu myndi ekki virka eins og hann gerir á jörðinni. Hann þyrfti bæði að vera minni og léttari en gengur og gerist og þar að auki er hvorki loft né vatn á tunglinu sem hægt er að nota til kælingar. Því þyrfti kljúfur að vera búinn stóru kælikerfi. Sérfræðingar segja áætlanir NASA og Kínverja óraunhæfar.
Bandaríkin Tunglið Artemis-áætlunin Geimurinn Kína Rússland Kjarnorka Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Eftirlýstur og með vopn á sér Innlent Fleiri fréttir Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Sjá meira