Bein útsending: Kynna lista Viðreisnar borginni Árni Sæberg skrifar 5. mars 2026 17:34 Björg Magnúsdóttir er oddviti Viðreisnar í Reykjavík í kosningunum í vor. Vísir/Lýður Valberg Viðreisn í Reykjavík kynnir lista sinn fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor við hátíðlega athöfn í Laugarnesskóla klukkan 18. Sjá má beina útsendingu frá viðburðinum hér á Vísi.
Ljóst varð þann 31. janúar síðastliðinn að Björg Magnúsdóttir myndi leiða listann, þegar prófkjöri Viðreisnar í Reykjavík lauk. Lúxusvandamál að stilla upp Fjórir buðu sig fram; Aðalsteinn Leifsson, Róbert Ragnarsson, Signý Sigurðardóttir og Björg, sem hlaut 1.011 atkvæði (48 prósent) en um 2.109 greiddu atkvæði. Aðalsteinn var í öðru sæti með tæplega sex hundruð atkvæði (27,9 prósent), svo Róbert með tæplega fimm hundruð (22,8 prósent) og Signý með 28 atkvæði (1,3 prósent). „Það verður lúxusvandamál að koma saman öflugum lista,“ sagði Björg í viðtali við Sýn þegar úrslitin höfðu verið kynnt en uppstillinganefnd skipar í neðri sætin. Aðalsteinn sagði á dögunum að hann gæfi að sjálfsögðu kost á sér á listann en hann hætti nýverið sem aðstoðarmaður utanríkisráðherra til þess að einbeita sér að guðfræðinámi. Þorvaldur Davíð? Björg birti í dag auglýsingu á Facebook, sem sýnir hana ásamt fimm öðrum en hún er sú eina sem snýr fram. Ætla má að þau fimm sem snúa aftur skipi sæti á listanum en ekkert hefur fengist gefið upp í þeim efnum. Á myndinni eru án efa áðurnefndur Róbert Ragnarsson og Eyþór Máni Steinarsson, kenndur við rafhjólaleiguna Hopp. Björg birti þessa mynd klukkan 12:30.Viðreisn Þá er mál manna að við hægri hlið Bjargar sé leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson, sem ítrekað hefur verið orðaður við framboð undanfarna mánuði. Í byrjun nóvember sagði hann í samtali við Vísi að hann væri ekki á leið í framboð og hefur síðan þá ítrekað þá staðhæfingu. Ekki hefur náðst í hann í dag. Beina útsendingu frá kynningu listans má sjá í spilaranum hér að neðan:
Viðreisn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ Sjá meira