Segir dómgæslu skaða titilvonir Man City Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. mars 2026 16:00 Bernardo Silva, fyrirliði Manchester City, kennir dómurum deildarinnar um að liðið sé ekki nær Arsenal í toppbaráttunni. Getty/ Simon Stacpoole Bernardo Silva, fyrirliði Manchester City, hefur gefið í skyn að dómar sem falla gegn Manchester City séu að kosta lið Pep Guardiola mikið í titilbaráttunni.
City er nú sjö stigum á eftir toppliði Arsenal eftir 2-2 jafntefli við Nottingham Forest á Etihad-leikvanginum í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á miðvikudagskvöld. Silva var sérstaklega vonsvikinn með ákvörðun dómarans Darren England um að dæma ekki vítaspyrnu eftir brot Matz Sels á Erling Haaland þegar staðan var 2-1. Eftir leikinn viðurkenndi Portúgalinn að gremja ríkti í búningsklefanum vegna þeirrar tilfinningar að vafaatriði hefðu ekki fallið með City á þessu tímabili. Það er ansi svekkjandi „Mér finnst bara að öll 50/50 atriði á þessu tímabili hafi fallið gegn okkur, öll sem eitt. Og það er ansi svekkjandi, því þegar upp er staðið skiptir það miklu máli í titilbaráttunni,“ sagði Bernardo Silva. City var 2-1 yfir þegar Haaland féll í vítateignum eftir að Sels renndi sér í fætur Norðmannsins. “All the 50-50s have gone against us!” Bernardo Silva expresses his frustrations with the decisions after sharing the points with Nottingham Forest 🗣️@Sports_EmmaD 🎙️📺 @tntsports & @discoveryplusUK pic.twitter.com/HAqjBPpYyK— Football on TNT Sports (@footballontnt) March 4, 2026 England vísaði frá kröfunum og atvikið var yfirfarið og afgreitt af myndbandsdómaranum Tony Harrington. „Þannig að ef Erling er á hlaupum og markvörðurinn keyrir bara á hann, hvað getur hann gert, bara horfið?“ spurði Silva. „Á hann að hverfa?“ „Getur markvörðurinn bara keyrt á einhvern? Hann ætlar ekki að skjóta boltanum, því markvörðurinn kemur á móti honum. Svo hvað, á hann að hverfa?“ Stigin tvö sem töpuðust á móti Forest ásamt naumum sigri Arsenal á Brighton þýðir að City á fjall að klífa í titilbaráttunni enda sjö stigum frá toppsætinu. Lið City stendur frammi fyrir mikilvægri leikjahrinu fyrir landsleikjahléið í mars með fimm leikjum í þremur keppnum, þar á meðal bikarslag á laugardag gegn Newcastle, tveimur leikjum í Meistaradeildinni gegn Real Madrid og úrslitaleik deildabikarsins gegn Arsenal. „En við getum tapað miklu“ „Ég myndi segja að á þessum fáu vikum munum við ekki vinna mikið en við getum tapað miklu,“ sagði Silva. „Þannig að þessi mánuður getur haldið okkur á lífi, fyrir utan deildabikarúrslitaleikinn auðvitað, restin af þessum mánuði getur haldið okkur á lífi til að berjast um titlana til loka, eða hann getur slegið okkur niður og við förum bara í eina eða tvær keppnir. Vonandi verðum við enn með í öllum fjórum keppnunum eftir mánuð,“ sagði Silva.
Enski boltinn Manchester City Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Íslenski boltinn Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Fleiri fréttir Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Sjá meira