Besta fimleikafólk Danmerkur gefur góð ráð og sýnir á Íslandi Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 11. mars 2026 21:02 Linda Ósk Þorvaldsdóttir, þjálfari hjá fimleikadeildinni (t.h.) og Andrea Ýr Grímsdóttir, formaður Fimleikadeildar UMF. Selfoss en báðum finnst þeim frábært að hafa fengið danska hópinn í heimsókn. Magnús Hlynur Hreiðarsson Allt besta fimleikafólk Danmerkur er hér á landi þessa dagana til að heimsækja fimleikadeildir víða á landinu til að kenna og vera með vinnustofur. Hópurinn, sem er á heimsmælikvarða, hefur á síðustu sex mánuðum verið á ferðalagi um heiminn.
Hér erum við að tala um danska sýningarhópinn Verdensholdet, sem hefur verið á Selfossi síðustu daga að aðstoða við margt og leiðbeina hjá Fimleikadeild Selfoss. Hópurinn, sem skipar 28 manns fer líka á nokkra aðra staði á landinu en markmið heimsóknanna er að veita innblástur, miðla þekkingu og kynnast mismunandi menningu ekki aðeins með sýningum heldur líka með vinnustofum, æfingum og fræðslu. Á Selfossi héldu þau glæsilega fimleikasýningu en aðalsýningin verður þó í íþróttahúsinu Ásgarði i Garðabæ föstudaginn 13. mars. Linda Ósk Þorvaldsdóttir, þjálfari hjá fimleikadeildinni (t.h.) og Andrea Ýr Grímsdóttir, formaður Fimleikadeildar UMF. Selfoss en báðum finnst þeim frábært að hafa fengið danska hópinn í heimsókn.Magnús Hlynur Hreiðarsson „Þau eru náttúrulega bara búin að ferðast um allan heiminn og upplifa margt og þau eru alltaf glöð og jákvæð. Og þau eru með svolítið öðruvísi fimleika en við erum vön frá Íslandi. Þau æfa svona sýningafimleika þar sem það gengur ekki bara út á keppni,” segir Linda Ósk Þorvaldsdóttir, þjálfari hjá fimleikadeildinni á Selfossi. Mikill kraftur er í starfi deildarinnar á Selfossi. „Já, við erum með hátt í 500 iðkendur, fjögur hundruð og eitthvað alveg frá núll ára í íþróttaskólanum en við erum með risastóran íþróttaskóla og líka með risastóran meistaraflokk en við höfum aldrei verið stærri í meistaraflokk,” segir Andrea Ýr Grímsdóttir, formaður Fimleikadeildar UMF. Selfoss. Danirnir eru ánægðir með heimsóknina til Íslands. Lucas Balleby, sem er upplýsingafulltrúi hópsins frá Danmörku en hópurinn hefur verið að ferðast um heiminn síðustu sex mánuði.Magnús Hlynur Hreiðarsson Fréttamaður gat ekki annað en stokkið aðeins á trampólíninu en árangurinn var þó ekkert sérstakur, allavega ekki miðað við danska fimleikafólkið. Nuddari fylgir dönunum enda nóg hjá honum að gera á bekknum.Magnús Hlynur Hreiðarsson Heimasíða liðsins frá Danmörku
Árborg Danmörk Fimleikar Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira