Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran Kjartan Kjartansson skrifar 12. mars 2026 08:35 Neytendur greiða um 800 krónum meira fyrir að fylla fjörutíu lítra tank af bensíni en ella ef greining Visku á ætlaðri ofálagningu olíufélaganna á við rök að styðjast. Vísir/Vilhelm Eldsneytisverð gæti verið allt að tuttugu krónum lægra en það er er ef olíufélögin færðu álagningu sína nær langtímameðaltali. Greining stéttarfélagsins Visku bendir til þess að olíufélögin séu fjórfalt líklegri til þess að skila hækkunum til neytenda en lækkunum.
Álagning á bensínlítrann hefur aukist verulega síðustu fimm árum, að því er kemur fram í greiningu sem Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur Visku, skrifar. Hann segir álagninguna hafa verið sögulega háa fyrstu tvo mánuði ársins eftir að kílómetragjald sem bifreiðaeigendur greiða leysti ákveðin opinber gjöld á eldsneyti af hólmi. Rúmlega sjötíu krónur voru lagðar á hvern bensínlítra samkvæmt greiningunni. Það var átján krónum yfir langtímameðaltali álagningarinnar á verðlagi þessa árs. Bensínlítrinn hefði þannig líklega verið um tuttugu krónum ódýrari ef álagningin hefði verið í samræmi við meðaltali undanfarið. „Sterkar vísbendingar eru um að afnám vörugjalda og olíugjalda um áramótin hafi ekki að fullu skilað sér í verðlag á dælu og félögin séu smám saman að hækka álagningu sína,“ segir í greiningunni. Orðin enn ólíklegri til þess að skila verðlækkunum en áður Rekur Vilhjálmur verðlagninguna til fákeppni á eldsneytismarkaði á Íslandi. Frá 2022 hafi olíufélögin verið nærri því fjórfalt líklegri til þess að skila verðhækkunum á heimsmarkaði út í bensínverð en verðlækkunum. „Sést það best á því að fylgni verðhækkana á heimsmarkaði við verðhækkanir á dælu mældist rúmlega 90% á tímabilinu 2022-2025 en fylgni verðlækkana var aðeins um 24%,“ segir í greiningu hagfræðingsins. Fylgni verðlækkana á heimsmarkaði við bensínverð hafi þar að auki farið minnkandi síðustu ár en fylgni við hækkanir aukist verulega. Keyrir upp verðbólgu Stríðsrekstur Bandaríkjastjórnar í Íran hefur leitt til um fjörutíu prósent hækkunar á heimsmarkaðsverði olíu. Vilhjálmur skrifar að svo virðist sem að íslensku olíufélögin hafi þegar velt hlutar þeirrar hækkunar út í verðlag. „Skili þau svo allri hækkuninni í verðlag mun það líklega leiða til verðbólguþrýstings upp á 0,7% til skamms tíma en mun meiri verðbólgu til lengri tíma,“ segir í greiningu Visku. Olíufélögin eru sögð geta hlíft heimilum landsins við áhrifum Íransstríðsins með því að lækka álagningu sína í átt að langtímameðaltali. Áætlar Vilhjálmur að íslenskir neytendur greiði nú á bilinu 276 til 450 krónur fyrir hvern bensínlítra að teknu tilliti til kílómetragjalds. Einstaklingur á sparneytnum bíl á Íslandi greiði rúmlega helmingi hærra verð fyrir bensínlítrann en Danir.
Jarðefnaeldsneyti Bensín og olía Efnahagsmál Stéttarfélög Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira