Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Samúel Karl Ólason skrifar 12. mars 2026 14:10 Mynd af Mojtaba Khamenei fyrir framan föður hans, Ali Khamenei. AP/Vahid Salemi Mojtaba Khamenei, sem tók nýverið við embætti æðstaklerks Íran af föður sínum, heitir því að halda Hormússundi lokuðu. Hann segir einnig að árásir á nágrannaríki Íran muni halda áfram og þá sérstaklega á bandarískar herstöðvar í þessum ríkjum.
Hinn 56 ára æðstiklerkur hét því að gefast ekki upp fyrir Bandaríkjunum og Ísrael en kallaði eftir því að nágrannar Íran lokuðu bandarískum herstöðvum þar. Þetta er meðal þess sem kom fram í yfirlýsingu frá nýja æðstaklerkinum sem lesin var upp í ríkissjónvarpi Íran og birt á netinu. Khamenei, sem er sagður hafa særst skömmu eftir að Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir sínar á Íran, hefur ekki sést opinberlega síðan þá. Ekki er útskýrt af hverju hann las ekki sjálfur yfirlýsinguna. متن کامل اولین پیام حضرت آیتالله سیدمجتبی حسینی خامنهای رهبر معظّم انقلاب اسلامی ۱۴۰۴/۱۲/۲۱ https://t.co/u73wbcPv5Z— رسانه رهبر انقلاب اسلامی (@Rahbarenghelab_) March 12, 2026 Faðir hans, eiginkona og dóttir dóu öll í upphafi árásanna. Ein af systrum hans féll einnig, auk annarra fjölskyldumeðlima og sagði Khamenei að þessi dauðsföll hefðu aukið á staðfestu hans í að standa í hárinu á andstæðingum Íran. Sjá einnig: Mojtaba Khamenei særður en óhultur Í yfirlýsingunni segir Khamenei að Íranar muni halda áfram að ráðast á skip á Hormússundi en verulega hefur dregið úr ferðum olíuflutningaskipa og annarra skipa um hafsvæðið síðan stríðið hófst. Rúmur fimmtungur allrar olíu heimsins fer þar um og hefur olíuverð hækkað töluvert vegna stríðsins. Æðstiklerkurinn sagði einnig til skoðanir að opna nýjar vígstöðvar gegn Bandaríkjunum og Ísrael, þar sem þau ríki séu viðkvæm. Þá sagði hann að Íranir myndu hefna fyrir þá sem hefðu fallið þar í landi í árásunum og vísaði sérstaklega til stúlkna í skóla sem sprengdur var, að virðist af Bandaríkjamönnum, snemma í stríðinu. Ummæli hans þykja, samkvæmt AP fréttaveitunni, gefa til kynna að Khamenei hafi áhuga á að ýta undir hryðjuverkastarfsemi gegn Bandaríkjunum. Íran
Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Ísrael Hernaður Skipaflutningar Tengdar fréttir Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Verð á Brent hráolíu er komið aftur yfir 100 dollara á tunnu og ríki út um allan heim íhuga nú aðgerðir til að mæta yfirvofandi orkuskorti vegna aðgerða Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran og hefndaraðgerða Írana. 12. mars 2026 06:50 Þrír handteknir í tengslum við sprengingu í Ósló Þrír hafa verið handteknir grunaðir um að hafa sprent sprengju fyrir utan bandaríska sendiráðið í höfuðborg Noregs. Mennirnir þrír eru bræður. 11. mars 2026 19:30 Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Donald Trump, Bandaríkjaforseti, segir að stríðið gegn Íran gæti verið búið innan skamms. Vísaði hann til þess að þar væri „nánast ekkert eftir til að ráðast á“. Embættismenn í bæði Bandaríkjunum og Ísrael segjast þó vera að undirbúa sig fyrir áframhaldandi árásir í að minnsta kosti tvær vikur. 11. mars 2026 14:48 Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Ráðist var á að minnsta kosti þrjú flutningaskip á og við Persaflóa í grennd við Hormuz-sund í nótt. Tvö þeirra urðu fyrir tiltölulega litlum skemmdum en áhöfn þess þriðja þurfti að yfirgefa skipið eftir að eldur kviknaði þar um borð. Svo virðist sem skipin hafi orðið fyrir eldflaugum en það hefur ekki verið staðfest. 11. mars 2026 08:52 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira
Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Verð á Brent hráolíu er komið aftur yfir 100 dollara á tunnu og ríki út um allan heim íhuga nú aðgerðir til að mæta yfirvofandi orkuskorti vegna aðgerða Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran og hefndaraðgerða Írana. 12. mars 2026 06:50
Þrír handteknir í tengslum við sprengingu í Ósló Þrír hafa verið handteknir grunaðir um að hafa sprent sprengju fyrir utan bandaríska sendiráðið í höfuðborg Noregs. Mennirnir þrír eru bræður. 11. mars 2026 19:30
Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Donald Trump, Bandaríkjaforseti, segir að stríðið gegn Íran gæti verið búið innan skamms. Vísaði hann til þess að þar væri „nánast ekkert eftir til að ráðast á“. Embættismenn í bæði Bandaríkjunum og Ísrael segjast þó vera að undirbúa sig fyrir áframhaldandi árásir í að minnsta kosti tvær vikur. 11. mars 2026 14:48
Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Ráðist var á að minnsta kosti þrjú flutningaskip á og við Persaflóa í grennd við Hormuz-sund í nótt. Tvö þeirra urðu fyrir tiltölulega litlum skemmdum en áhöfn þess þriðja þurfti að yfirgefa skipið eftir að eldur kviknaði þar um borð. Svo virðist sem skipin hafi orðið fyrir eldflaugum en það hefur ekki verið staðfest. 11. mars 2026 08:52