Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Kristján Már Unnarsson skrifar 12. mars 2026 21:00 Hákon ÞH að veiðum undan Snæfellsnesi í gær. Björn Steinbekk Snarpri en góðri loðnuvertíð er að ljúka. Í dag voru aðeins fjögur skip eftir á miðunum og er búist að þau verði öll búin með kvótann á morgun. Nítján íslensk skip sinntu loðnuveiðunum að þessu sinni.
Í fréttum Sýnar mátti sjá myndir frá loðnumiðunum undan Snæfellsjökli þar sem loðnuskipin hafa síðustu daga verið að veiðum. Myndirnar tók Björn Steinbekk í gær um borð í Hákoni ÞH, skipi Gjögurs á Grenivík. Þær sýna vel hvernig nótin hringast um loðnutorfuna. Nótin er svo dregin saman upp að skipinu. Loðnunót Venusar NS búin að herpast saman í loðnupoka. Um 770 tonn voru í þessu kasti við Snæfellsnes í gær.Elís Hólm Þórðarson Neðansjávarmyndir sem Elís Hólm Þórðarson, stýrimaður á Venusi NS, skipi Brims, tók einnig við Snæfellsnes í gær sýna loðnuna í pokanum þegar búið að herpa nótina saman. Loðnunni er síðan dælt inn í lestar skipsins. Þetta var síðasti túr Venusar og kom skipið inn til Akraness í morgun til löndunar. Þar var Víkingur AK að landa og var þá aðeins eitt skip Brims, Svanur RE, enn úti á miðunum að ljúka veiðum. Um borð í Hákoni ÞH í gær.Björn Steinbekk Skip Síldarvinnslunnar í Neskaupstað hafa lokið loðnuveiðum. Börkur NK kom með farm inn til Norðfjarðar í gær og Beitir NK bíður löndunar. Grænlensku skipin Polar Amaroq og Polar Ammassak eiga einnig eftir að landa í Neskaupstað. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar lýsa skipstjórar ánægju með vertíðina. Tómas Kárason á Beiti sagði að þetta hafi verið snörp en góð vertíð. Skip Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum komu til hafnar í fyrrakvöld í síðustu loðnutúrum þessarar vertíðar hjá fyrirtækinu. Á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar segir Sindri Viðarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs, vertíðina hafa gengið afar vel. Vinnslustöðin myndi ná að framleiða allt sem stefnt var að, bæði í heilfrystingu og hrognum. Búið að hringa nótina upp að skipinu.Björn Steinbekk Hjá Ísfélaginu í Vestmannaeyjum sagði Eyþór Harðarson útgerðarstjóri að skip Ísfélagsins hefðu í dag átt eftir um tvöþúsund tonn óveidd. Álsey og Heimaey væru enn á miðunum og þau myndu væntanlega klára kvótann á morgun. Eyþór sagði að loðnukvótinn hafi verið nægilega stór til að fylla á alla mikilvægustu og verðmætustu manneldismarkaði. Þrátt fyrir að ekki hefði reynst unnt að veiða neitt til fiskimjölsvinnslu sagði Eyþór að þetta yrði að teljast góð loðnuvertíð.
Loðnuveiðar Sjávarútvegur Matvælaframleiðsla Efnahagsmál Brim Síldarvinnslan Ísfélagið Akranes Vestmannaeyjar Fjarðabyggð Grýtubakkahreppur Tengdar fréttir Bændur á loðnuvertíð til að eiga fyrir áburðinum Verðmætasti hluti loðnuvertíðarinnar, hrognavinnslan, er að komast á fulla ferð í loðnubyggðum landsins. Á Akranesi eru það sauðfjárbændur af Vesturlandi og úr Húnaþingi sem bera uppi vinnslu hrognanna. 4. mars 2026 20:55 Loðnutorfur á hraðferð með suðurströndinni Loðnuvertíðin er komin á fulla ferð og er loðnan núna á hraðri göngu vestur með suðurströndinni og að nálgast sitt verðmætasta form. Hún er gengin upp á landgrunnið og búin að þétta sig þar í torfur. 13. febrúar 2026 21:24 Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu Skipstjóri loðnuveiðiskips býst við að loðnuvertíðin verði komin á fullt í kringum næstu helgi. Hann segir sérstaka vertíðarstemningu fylgja loðnunni, - hún kveiki líf allsstaðar. 2. febrúar 2026 21:31 Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi telur að komandi loðnuvertíð geti skilað útflutningstekjum upp á 35 til fjörutíu milljarða króna. Hundruð manna muni fá vinnu í sjávarútvegsplássum víða um land en þó í aðeins um sex vikur. 29. janúar 2026 14:12 Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Gleði ríkti á Norðfirði í dag þegar fyrstu loðnunni á þessari vertíð var landað hjá Síldarvinnslunni. Loðnunni er lýst sem stórri og fallegri og fer hún öll í heilfrystingu til manneldis. 20. janúar 2026 21:56 Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira
Bændur á loðnuvertíð til að eiga fyrir áburðinum Verðmætasti hluti loðnuvertíðarinnar, hrognavinnslan, er að komast á fulla ferð í loðnubyggðum landsins. Á Akranesi eru það sauðfjárbændur af Vesturlandi og úr Húnaþingi sem bera uppi vinnslu hrognanna. 4. mars 2026 20:55
Loðnutorfur á hraðferð með suðurströndinni Loðnuvertíðin er komin á fulla ferð og er loðnan núna á hraðri göngu vestur með suðurströndinni og að nálgast sitt verðmætasta form. Hún er gengin upp á landgrunnið og búin að þétta sig þar í torfur. 13. febrúar 2026 21:24
Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu Skipstjóri loðnuveiðiskips býst við að loðnuvertíðin verði komin á fullt í kringum næstu helgi. Hann segir sérstaka vertíðarstemningu fylgja loðnunni, - hún kveiki líf allsstaðar. 2. febrúar 2026 21:31
Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi telur að komandi loðnuvertíð geti skilað útflutningstekjum upp á 35 til fjörutíu milljarða króna. Hundruð manna muni fá vinnu í sjávarútvegsplássum víða um land en þó í aðeins um sex vikur. 29. janúar 2026 14:12
Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Gleði ríkti á Norðfirði í dag þegar fyrstu loðnunni á þessari vertíð var landað hjá Síldarvinnslunni. Loðnunni er lýst sem stórri og fallegri og fer hún öll í heilfrystingu til manneldis. 20. janúar 2026 21:56