„Það er bara ólöglegt“ Agnar Már Másson skrifar 15. mars 2026 20:55 Atli Björn Þorbjörnsson lögmaður (t.h.) segir það af og frá að framkvæmdastjóri Rammagerðarinnar hafi farið með fleipur í fjölmiðlum, eins og Sveinbjörn Indriðason forstjóri Isavia hélt fram í yfirlýsingu. Aðgerðir Isavia gegn versluninni séu ólöglegar. Samsett Mynd Lögmaður Rammagerðarinnar vísar ásökunum Isavia á bug um að forsvarsmenn verslunarinnar fari með rangfærslur um deilu Rammagerðarinnar við ríkisfyrirtækið. Isavia lokaði þremur verslunum Rammagerðarinnar í fyrrinótt þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól. Lögmaðurinn segist búinn að setja inn lögbannsbeiðni til sýslumanns sem verði vonandi afgreidd á morgun, mánudag.
Isavia lokaði í fyrrinótt öllum þremur verslunum Rammagerðarinnar á Keflavíkurflugvelli þrátt fyrir að félagið hafi fengið greiðsluskjól vegna vangreiddrar leigu samkvæmt dómsúrskurði. Rammagerðin skuldar leigu en forsvarsmenn verslunarinnar vilja meina að forsendur leigusamningsins séu með öllu brostnar og telur sig meðal annars eiga kröfu á Isavia vegna vanefnda við afhendingu á húsnæði. Í yfirlýsingu Isavia í dag var haft eftir Sveinbirni Indriðasyni, forstjóra ríkisfyrirtækisins, að forsvarsfólk Rammagerðarinnar hefði farið með rangfærslur í fjölmiðlum og að vandi Rammagerðarinnar skrifaðist á rekstraraðila verslunarinnar. „Hann segir ekki hvaða rangfærslu félagið á að hafa farið með,“ segir Atli Björn Þorbjörnsson, lögmaður Rammagerðarinnar, í samtali við Vísi, „en ef hann er að vísa til þess að félagið telur aðgerðir Isavia á vellinum vera ólöglegar þá er það alveg klárt að það eru engar rangfærslur.“ Atli Björn Þorbjörnsson lögmaður.AX Lögmannastofa Segja vanefndir hafa verið við afhendingu verslunarplássins Rammagerðin vill í grófum dráttum meina að Isavia hafi ekki efnt sinn hluta leigusamningsins sem Rammagerðin og Isavia gerðu eftir útboð verslunarplássa árið 2023. Vísa kaupmennirnir meðal annars til þess að fjöldi ferðamanna sé langt undir þeim spám sem Isavia gerði ráð fyrir þegar samningurinn var undirritaður og þeir benda einnig á að afhending húsnæðisins hafi dregist um níu mánuði þrátt fyrir að verslunin hafi greitt fullt leiguverð. Kveðið sé á um endurskoðun á samningnum ef forsendur hans eru brostnar en framkvæmdastjóri Rammagerðarinnar sagði við Vísi í gær að fyrirtækið hefði ekki viljað leita lausna. Á miðvikudag lokaði svo Isavia verslunum Rammagerðarinnar en verslunin fékk svo að opna aftur daginn eftir. Forsvarsmenn ríkisfyrirtækisins sögðu að Isavia hafi gert þeim að greiða Isavia 100 milljónir í leigu fyrir föstudag og afsala sér öllum hugsanlegum skaðabótakröfum sem félagið gæti átt í ljósi meintra vanefnda Isavia. Eftir þetta fór Rammagerðin fram á greiðsluskjól og fékk það samþykkt á föstudag. „Það er bara ólöglegt“ Í úrskurði sem Vísir hefur undir höndum kemur fram að á föstudag, 13. mars, hafi héraðsdómur Reykjavíkur veitt Rammagerðinni heimild til greiðslustöðvunar til 1. apríl, eða svokallað greiðsluskjól, sem þýðir að lánardrottnar megi tímabundið ekki beita félag vanefndarúrræðum. Atli segir að Rammagerðin hafi upplýst Isavia um úrskurðinn og þar með hefði félagið ekki mátt „standa í einhverjum æfingum,“ eins og hann orðar það. „En þeir gerðu það samt,“ heldur lögmaðurinn áfram og vísar til þess þegar Isavia lokaði í fyrrinótt öllum þremur verslunum Rammagerðarinnar í flugstöðinni. „Og það er bara ólöglegt.“ „Skrýtin afstaða og furðuleg lögskýring“ Isavia segist hafa rift leigusamningi við Rammagerðina á þriðjudag, 10. mars, en Atli segir að þeirri riftun hafi bæði verið mótmælt og að deilt væri um gildi hennar. „En segjum sem svo að [riftunin] hafi átt rétt á sér, þá mega þeir samt ekki láta einhverjar afleiðingar ná til okkar út af riftuninni. Það er það sem gjaldþrotalögin banna,“ bætir hann við. „Þannig að þess vegna finnst mér þetta skrýtin afstaða hjá þeim og furðuleg lögskýring.“ Hann segir enn fremur að þar sem búðir Rammagerðarinnar hafi verið í rekstri þegar félagið fékk greiðslustöðvun sé athæfi Isavia ólöglegt. „Það ástand á bara að vera óhaggað meðan að félagið er í greiðslustöðvun allan greiðslustöðvunartímann,“ heldur hann áfram. „Ég er hins vegar búinn að setja inn lögbannsbeiðni til sýslumannsins á Suðurnesjum og ég vona að sýslumaður taki það fyrir sem fyrst. Vonandi bara strax á morgun.“ Hann undirstrikar að lokum að deilan snúist af hálfu Rammagerðarinnar bæði um aðlögun samnings út af forsendubresti en einnig kröfu sem að Rammagerðin telji sig eiga á Isavia út af vanefndum við afhendingu á húsnæði. „Þeir hafa bara ekki haft vilja til þess að setja það mál á dagskrá. Því hefur þetta endað á þessum stað,“ segir hann. „En það er ennþá ekki öll von úti um að það náist bara góð lending í þessu öllu saman. Það vona ég að minnsta kosti.“
Tíska og hönnun Isavia Mest lesið Eins og James Bond: Huggulegur, ferðast, leysir vandamál og drekkur martini Atvinnulíf Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Viðskipti innlent Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Samstarf Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Viðskipti innlent Verðmæta samtalið er oft við kaffivélina eða á ganginum Atvinnulíf John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Viðskipti innlent Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Viðskipti erlent Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Viðskipti innlent Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Milla ætlar í formanninn Efna til útboðs hlutabréfa að virði 125 milljóna dala Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Ekki sést til lands í deilunni sem hefur haft áhrif á yfir sjö þúsund farþega Sigurjón nýr framkvæmdastjóri Mediacom Ógnarlöng stefna Samkeppniseftirlitsins kemst að eftir allt saman Hakkarar geti lesið gögn af læstri tölvu á tíu mínútum án lykilorðs Sýndareftirlit ef fylgjast eigi með skemmtistöðum á skrifstofutíma Tillögur ráðherra sagðar rýra virði bankanna um tugi milljarða Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Sjá meira