Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 17. mars 2026 20:32 Joe Kent hefur sagt upp. Getty Forstjóri bandarísku miðstöðvarinnar gegn hryðjuverkum hefur sagt af sér vegna stríðsins í Íran. Hann hvetur forsetann til að snúa við blaðinu.
Joe Kent, sem var æðsti embættismaður gegn hryðjuverkum í ríkisstjórn Bandaríkjaforseta, greindi frá uppsögn sinni með færslu á samfélagsmiðlinum X. Þar segist hann ekki geta með góðri samvisku haldið áfram að styðja stríðið í Íran. „Engin yfirvofandi ógn stafaði af Íran fyrir þjóð okkar og það er ljóst að við hófum þetta stríð vegna þrýstings frá Ísrael og öðrum hagsmunasamtökum þeirra í Bandaríkjunum,“ skrifaði Kent. After much reflection, I have decided to resign from my position as Director of the National Counterterrorism Center, effective today.I cannot in good conscience support the ongoing war in Iran. Iran posed no imminent threat to our nation, and it is clear that we started this… pic.twitter.com/prtu86DpEr— Joe Kent (@joekent16jan19) March 17, 2026 Hann hefur lengi verið ötull stuðningsmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta og starfaði áður sem liðsmaður sérsveitar Bandaríkjanna og CIA. Eiginkona Kent lést árið 2019 í sprengingu í Sýrlandi. „Sem fyrrverandi hermaður sem hefur tekið þátt í átökum ellefu sinnum og sem gullstjörnueiginmaður sem missti ástkæra eiginkonu mína, Shannon, í stríði sem Ísrael skapaði, get ég ekki stutt það að senda næstu kynslóð til að berjast og deyja í stríði sem þjónar hvorki bandarísku þjóðinni né réttlætir kostnað bandarískra mannlífa.“ Í kjölfar uppsagnarinnar sagði Trump, samkvæmt BBC, að honum þætti Kent ágætis náungi en væri hann „veikur í öryggismálum“. Hann hefði áttað sig á að það væri gott að Kent væri hættur. Hvíta húsið hefur vísað bréfi Kents á bug og ítrekaði Trump að hann hefði „óyggjandi sannanir“ fyrir því að Íran hefði ætlað að ráðast á Bandaríkin. Karoline Leavitt, talskona Hvíta hússins, sagði það bæði móðgandi og hlægilegt að gefa í skyn að Trump hefði tekið ákvörðun um að ráðast á Íran vegna þrýstings frá öðru landi.
Bandaríkin Donald Trump Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Fleiri fréttir Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Sjá meira