Erlent

Stað­festa and­lát Larijani og Soleimani

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Ali Larijani var háttsettur og gegndi lykilhlutverki innan herstjórnar klerkaveldisins.
Ali Larijani var háttsettur og gegndi lykilhlutverki innan herstjórnar klerkaveldisins. AP

Ali Larijani, yfirmaður þjóðaröryggisráðs Írans, lést í loftárás Ísraelshers í gærkvöldi ásamt yfirmanni Basij-hersveitanna í Teheran.

Fyrr í dag hafði Ísrael Katz varnarmálaráðherra Ísraels tilkynnti fyrr í dag um að Larijani hefði farist í loftárás og íranskir ríkismiðlar staðfestu það nú í kvöld.

Larijani var náinn bandamaður Ali Khamenei æðstaklerks sem drepinn var í loftárásum og lykiltengiliður milli ólíkra stólpa klerkaveldisins og gegndi sömuleiðis veigamiklu hlutverki í samskiptum Írana við nágranna sína og umheiminn, meðal annars við ríkin handan Persaflóa.

Fyrr í kvöld staðfestu íranskir miðlar að Gholamreza Soleimani yfirmaður Basij-sveitanna hefði farist í loftárásum gærkvöldsins. Basij-sveitirnar eru fjölmennar sjálfboðaliðasveitir sem heyra undir byltingarvörðinn.

„Hinar hreinu sálir píslarvottanna tóku á móti hinni hreinsuðu sál réttláts þjóns Guðs, píslarvottsins dr. Ali Larijani,“ segir í tilkynningu frá þjóðaröryggisráðinu.

„Eftir ævilanga baráttu fyrir framgangi Írans og íslömsku byltingarinnar náði hann loks langþráðu markmiði sínu, svaraði guðlegu kalli og hlaut með sæmd hina ljúfu náð píslarvættis í þjónustu sinni,“ segir svo.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×