Tekur ekki undir fullyrðingar um plat Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 18. mars 2026 11:56 Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. Vísir/Ívar Fannar Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir ákvörðun Seðlabankans um hækkun stýrivaxta að einhverju leyti viðbúna en hún sé mikil vonbrigði. Hann segir eðlilegt að fólk sé pirrað vegna málsins en hafnar fullyrðingum verkalýðsleiðtoga um að ríkisstjórnin plati almenning með fullyrðingum um vaxtalækkanir. „
Hún var að einhverju leyti viðbúin. Það er auðvitað hlutverk Seðlabankans að gæta að verðstöðugleika. Hún er mikil vonbrigði en við höfum auðvitað séð þennan verðbólguþrýsting sem liggur til grundvallar ákvörðuninni og það eru auðvitað langtímahagsmunir okkar allra að verðbólga lækki,“ segir Daði Már í samtali við fréttastofu. Seðlabankinn tilkynnti í morgun að stýrivextir verði hækkaðir um 25 punkta. Daði segir ríkisstjórnina hlusta á ákall Seðlabankans um að ríkið sýni aðhald og segir að það muni sjást í komandi fjármálaáætlun. Ekki að plata Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins fór mikinn í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hann sagði Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra plata þegar hún hafi fullyrt að vextir væru að lækka, þar sem vaxtalækkanir hefðu aldrei skilað sér til neytenda, viðskiptabankar hefðu þvert á móti hækkað vexti verðtryggðra lána um eitt prósent frá stöðugleikasamningum 2024. „Það er auðvitað eðlilegt að fólk sé pirrað yfir þessari þróun. Við viljum auðvitað öll að verðbólgan lækki,“ segir Daði þegar ummæli Vilhjálms eru borin undir hann. „Ég vil samt benda á að það hefur verið algjörlega skýrt markmið þessarar ríkisstjórnar að beita ríkisfjármálunum til þess að stuðla að því að Seðlabankinn nái tökum á verðbólgunni og þess vegna tek ég náttúrulega alls ekki undir það að það hafi neitt verið platað. Þvert á móti, þá hefur stefnan verið alveg skýr og við höfum haldið okkur við hana.“
Efnahagsmál Verðlag Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Seðlabankinn Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira