Innherji

Myndi hjálpa tölu­vert að fá skila­boð um að það yrðu ekki á­tök á vinnu­markaði

Hörður Ægisson skrifar
„Tímasetningin á hækkun vörugjalda á ökutæki var eins slæm og hugsast gat, bæði vegna uppsagnarákvæða í kjarasamningum næstkomandi haust og síðan núna með hækkandi olíuverði. Þegar svona margt fellur saman er mikil hætta á umtalsverðum annarrar umferðar áhrifum,“ segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.

Það myndi draga úr óvissu og slá á hækkun verðbólguvæntinga ef aðilar vinnumarkaðarins kæmu strax út með þau skilaboð að það væru ekki að fara hefjast átök á vinnumarkaði með því að virkja uppsagnarákvæði kjarasamninga, að sögn seðlabankastjóra. Að því marki sem frumvarp stjórnvalda sem miðar að því að tengja bætur almannatrygginga við launavísitölu hefur áhrif á trúverðugleika ríkisfjármála þá væri það jákvætt innlegg að falla frá þeim áformum við núverandi aðstæður.

Tengdar fréttir

Áform um að vaxa út úr vandanum sögð bjartsýn eða í „versta falli hrein tálsýn“

Fyrirætlanir stjórnvalda um að hægt verði að ná tökum á ríkisrekstrinum með því að vaxa út úr vandanum eru „í besta falli bjartsýnar og í versta falli hrein tálsýn“, að mati greinenda Acro verðbréfa, en ófjármögnuð útgjaldaloforð hafa nú þegar valdið hækkun fjármagnskostnaðar á markaði. Án eignasölu verður nokkur bið á skuldalækkun ríkissjóðs og því er þeim varnarorðum beint að ríkisstjórninni að boðaður halli á lánsfjárjöfnuði næstu árin, sem er í sögulegu samhengi umtalsverður, gæti hæglega orðið jafnvel enn meiri.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×