Einn alvarlega slasaður af sextán sem voru inni í húsinu Árni Sæberg og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 20. mars 2026 09:23 Mikill viðbúnaður var á vettvangi. Vísir/Vilhelm Sextán manns voru inni í húsnæði Fóðurblöndunnar að Korngörðum í Reykjavík þegar sprenging varð þar laust upp úr klukkan 07 í morgun. Þrír hafa verið fluttir á sjúkrahús og einn þeirra er alvarlega slasaður.
Þetta segir Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu á vettvangi. Enginn eldur Þegar viðbragðsaðila bar að garði hafi verið stórt gat á einni hlið hússins en enginn eldur í húsnæðinu. Viðbragðsaðilar hafi strax farið inn í húsið til þess að bjarga þeim sem þar voru inni en þeir hafi verið sextán. Þrír þeirra hafi verið fluttir á sjúkrahús og þar af sé einn alvarlega slasaður. Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.Vísir/Vilhelm „Við erum ekki komin með mynd af hvað veldur sprengingunni en það voru menn að vinna í þessu rými þar sem sprengingin varð.“ Margir á vettvangi Allt tiltækt lið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins hafi verið kallað út og mannskapur frá Rauða krossinum sé á vettvangi. Frá lögreglu séu alls vel á annan tug manna, rannsóknarlögreglumenn, tæknideild og einkennisklæddir lögreglumenn. Þá sé unnið náið með Fóðurblöndunni og öðrum rekstraraðilum á vettvangi. Fjölmennt lið viðbragðsaðila er á vettvangi.Vísir/Vilhelm „Við fáum hjálp frá þeim og frá forsvarsmönnum fyrirtækja og fengum líka aðstoð frá nærliggjandi fyrirtækjum til að koma fólki inn því að það er kalt hérna og mikill vindur og við þurftum að koma fólki sem fyrst í skjól. Við erum gríðarlega þakklát fyrir þá aðstoð sem við fengum hérna frá nærliggjandi fyrirtækjum.“ Þá segir hann að búið sé að tryggja vettvang og ekki sé talið að frekari hætta steðji að. „Það er bara kuldinn sem er alltaf erfiður en við vinnum verkefnið áfram á fullu. Það er okkar hlutverk.“ Í spilaranum hér að neðan má sjá myndefni frá vettvangi:
Slökkvilið Lögreglumál Reykjavík Sprenging hjá Fóðurblöndunni Tengdar fréttir Þrír fluttir á slysadeild vegna sprengingar í Korngörðum Lögregla segir vinnuslys í Fóðurblöndunni í Korngörðum í Reykjavík alvarlegan atburð. Þrír hafa verið fluttir á slysadeild og fólki einnig sinnt á staðnum. Slökkvilið var kallað út í morgun og er töluverður viðbúnaður á svæðinu. 20. mars 2026 07:51 Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Sjá meira
Þrír fluttir á slysadeild vegna sprengingar í Korngörðum Lögregla segir vinnuslys í Fóðurblöndunni í Korngörðum í Reykjavík alvarlegan atburð. Þrír hafa verið fluttir á slysadeild og fólki einnig sinnt á staðnum. Slökkvilið var kallað út í morgun og er töluverður viðbúnaður á svæðinu. 20. mars 2026 07:51