Lyfjaver opnar nýtt apótek í Klíníkinni Lovísa Arnardóttir skrifar 20. mars 2026 10:58 Apótekið er í Klíníkinni. Aðsend Lyfjaver hefur opnað nýtt apótek í Klíníkinni við Ármúla 7–9. Þetta er fyrsta útibú fyrirtækisins frá því að apótek Lyfjavers við Suðurlandsbraut var opnað árið 2002.
Í tilkynningu segir að í apótekinu verði lögð sérstök áhersla á þjónustu við starfsfólk Klíníkurinnar og skjólstæðinga hennar. Markmiðið sé að bæta aðgengi að lyfjum sem tengjast skurðaðgerðum og meðferðum, auk þess sem boðið verður upp á fjölbreytt úrval hjúkrunarvara sem nýtast fólki bæði fyrir og eftir aðgerðir. „Með opnun apóteksins i Klíníkinni í Ármúla erum við að færa þjónustu okkar enn nær fólki á þeim tímapunkti þegar hún skiptir mestu máli. Lyfjaver var efst í íslensku ánægjuvoginni í flokki apóteka og í gegnum árin hefur fyrirtækið verið með lægsta meðalverðið á lyfjum og öðrum vörum. Markmið okkar er að veita skjólstæðingum og starfsfólki Klíníkurinnar og öllum viðskiptavinum sem eiga leið um Ármúlann, góða þjónustu á frábæru verði,“ segir Hákon Steinsson, framkvæmdastjóri Lyfjavers, í tilkynningu. Hákon, Guðbjörg, Agnes og Kristján í nýja apótekinu. Aðsend Í tilkynningu segir að einnig verði boðið upp á almenna apóteksþjónustu með lyfseðilsskyld lyf, lausasölulyf, bætiefni og aðrar algengar vörur á samkeppnishæfu verði. „Klíníkin er í örum vexti og opnun apóteks Lyfjavers í húsinu er liður í að efla þjónustu við skjólstæðinga okkar og hlökkum við til samstarfsins,“ segir Kristján Jón Jónatansson, framkvæmdastjóri Klíníkurinnar, í tilkynningu.
Lyf Heilbrigðismál Verslun Reykjavík Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira