Taylor segir myndbandið hluta af rógsherferð en Dakota vill nálgunarbann Magnús Jochum Pálsson skrifar 20. mars 2026 15:15 Taylor og Dakota voru saman um árabil, eiga einn son saman og hafa átt í stormasömu sambandi. Getty Raunveruleikastjarnan Taylor Frankie Paul segir myndband af henni beita fyrrverandi kærasta sinn, Dakota Mortensen, ofbeldi tekið úr samhengi, það sé hluti af áframhaldandi ófrægingarherferð gegn henni og hann hafi beitt hana ofbeldi. Mortensen hefur aftur á móti farið fram á nálgunarbann á hendur Paul og hafnar öllum ásökunum hennar. Sjónvarpsstöðin ABC tók nýjustu þáttaröð The Bachelorette af dagskrá þremur dögum fyrir frumsýningu eftir að myndskeið af raunveruleikastjörnunni Taylor Frankie Paul að beita fyrrverandi kærasta sinn heimilisofbeldi fór í dreifingu. Paul, sem er þriggja barna móðir, er best þekkt sem aðalstjarna raunveruleikaþáttanna The Secret Lives of Mormon Wives auk þess sem hún hefur haslað sér völl sem áhrifavaldur í svokölluðum MomTok-kima samfélagsmiðilsins TikTok. Vegna þessarar frægðar var hún valin sem piparjónka (eða piparmey) fyrir nýjustu seríuna af The Bachelorette. Í myndbandinu sem TMZ birti og er frá 2023 stendur Paul í stimpingum við þáverandi sambýlismann sinn, Dakota Mortensen, ber hann ítrekað og kastar stólum í hann að barnungri dóttur hennar viðstaddri. Varað er við myndefninu hér að neðan: Paul var í kjölfarið handtekin og ákærð fyrir alvarlega líkamsárás og heimilisofbeldi vegna málsins. Hún játaði sekt í einum ákærulið, sem sneri að líkamsárás, en restin voru felldir niður og hlaut hún þriggja ára skilorðsbundinn dóm fyrir það. Handtakan og eftirmálar hennar voru til umfjöllunar í The Secret Lives of Mormon Wifes þó myndefnið hefði ekki verið sýnt. Tökum á fimmtu seríu The Secret Lives of Mormon Wives voru svo skyndilega stöðvaðar í síðasta mánuði vegna rannsóknar lögreglu á meintu heimilisofbeldi sem tengist Paul og Mortensen en þar höfðu gengið ásakanir um ofbeldi á báða bóga. Það mál er enn til rannsóknar og hefur Mortensen farið fram á nálgunarbann á hendur Paul. Í þessari frétt er fjallað um heimilisofbeldi. Verðir þú fyrir heimilisofbeldi eða ef grunur vaknar um slíkt er bent á lögreglu í síma 112, Kvennaathvarfið í síma 561-1205 og hjálparsíma Rauða krossins í 1717. Paul hafi borið harm sinn í hljóði Bæði Paul og Mortensen hafa tjáð sig um málið í kjölfar þess að myndbandið var gert opinbert. Talsmaður Paul sendi frá sér yfirlýsingu fyrir hennar hönd þar sem hún segir myndbandsbirtinguna hluta af níðherferð Mortensen í garð Paul. Taylor Frankie Paul segir myndbandið tekið úr samhengi.Getty „Taylor er mjög þakklát fyrir stuðning ABC meðan hún forgangsraðar öryggi fjölskyldu sinnar. Eftir að hafa þolað í hljóði umfangsmikið andlegt og líkamlegt ofbeldi í mörg ár semog hótanir um hefndaraðgerðir, hefur Taylor loksins safnað nægilegum kröftum til að mæta kæranda sínum og taka skref til að verja sig og börn sín fyrir frekari skaða,“ sagði í tilkynningunni. Taylor á átta ára dótturina Indy og fimm ára soninn Ocean með fyrrverandi eiginmanni sínum, Tate Paul, og tveggja ára soninn Ever sem hún eignaðist með Dakota Mortensen í mars 2024. „Það eru of margar konur sem bera harm sinn í hljóð meðan þær lifa af árásargjarna og afbrýðisama fyrrverandi kærasta sem neita þeim um að halda áfram með líf sitt. Taylor hefur verið hljóðlát af ótta við frekara ofbeldi, hefnd og opinbera smánun. Hún er að svo stöddu að kanna alla kosti sína, leita að aðstoð og undirbúa það að eigna sér sína eigin sögu og deila henni,“ sagði í tilkynningunni. Hafnar ásökunum Taylor, vill nálgunarbann og einblínir á soninn Dakota Mortensen, sem fór fram á nálgunarbann á hendur Frankie Taylor Paul í gær, sendi einnig frá sér yfirlýsingu um málið til Entertainment Weekly. „Eins og allir sem hafa séð myndbandið munu skilja eru þetta mjög óþægilegar kringumstæður,“ sagði Mortensen þar. „Ég er, því miður, vanur þessum tilhæfulausu fullyrðingum um mig og samband okkar, sem ég hafna afdráttarlaust. Ég ætla að einblína á son okkar og öryggi hans og vona að Taylor muni gera slíkt hið sama,“ sagði hann jafnframt. Bandaríkin Hollywood Raunveruleikaþættir Heimilisofbeldi Mest lesið Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Lífið Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Lífið Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti Tónlist Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Lífið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Opnar sig um þunglyndi og depurð Lífið „Ég vil vera bestur í öllu“ Lífið Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Bíó og sjónvarp Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið Fyrsta platan í tuttugu ár Lífið Fleiri fréttir „Ég vil vera bestur í öllu“ Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Sjá meira
Í þessari frétt er fjallað um heimilisofbeldi. Verðir þú fyrir heimilisofbeldi eða ef grunur vaknar um slíkt er bent á lögreglu í síma 112, Kvennaathvarfið í síma 561-1205 og hjálparsíma Rauða krossins í 1717.
Bandaríkin Hollywood Raunveruleikaþættir Heimilisofbeldi Mest lesið Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Lífið Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Lífið Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti Tónlist Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Lífið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Opnar sig um þunglyndi og depurð Lífið „Ég vil vera bestur í öllu“ Lífið Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Bíó og sjónvarp Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið Fyrsta platan í tuttugu ár Lífið Fleiri fréttir „Ég vil vera bestur í öllu“ Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Sjá meira